Alþýðublaðið - 25.07.1968, Page 10
7. FERÐAHANDBÓKIN 1
Sjöunda útgáfa Ferðahandbók-
arinnar er nýkomin á markað.
Að .vanda hefur efni bókarinnar
verið endurskoðað og ýmsu nýju
efni bætt við. Má þar sérstak-
lega nafna grein um Öræfasveit
eftir Sigurð Björnsson á Kví-
skerjum. í grein sinni segir Sig-
urður sögu Öræfasveitar frá upp-
hafi landnáms og lýsir staðhátt-
um þar. Á kápu Ferðahandbók-
arinnar eru tvær myndir úr Ör-
æfum teknar af Sigglfði Björns-
syni. Ferðahandbókin er að þessu
sinni að nokkru helguð Austur-
landi og auk áðurnefndrar
greinar um Öræfasveit er kafli
eftir Gísla Guðmundsson, ieið-
sögumann, er nefnist Leiðir um
Austurland. í þeim kafla lýsir
Gísli ökuleiðum frá' Mývatni til
Jökulsár á Skeiðarársandi.
Ferðafólk leggur orðið leið
sína í auknum -mæli inn á mið-
hálendi landsins og til að mæta
þörfum þess. birtir Ferðahand-
bókin lýsingu á Bifreiðaslóðum
á miðhálendinu eftir Sigurjón
Rist, vatnamælingamann. Lýsing
um Sigurjóns fylgja nákvæmir
uppdrætíir, sem auðvelt' er að
nota.
Einn viðamesti kafli bókarinn-
ar veitir mjög ítarlegar og ná-
kvæmar upplýsingar um hvers
konar þjónustu og fyrirgreiðslu í
kauptúnum og kaupstöðum, sem
ferðafólki má að gagni koma.
Þessi kafli, eins og raunar allt
efnj bókarinnar, er endurskoðað-
ur árlega í samvinnu við forráða
menn viðkomandi sveitarfélaga.
Auk þess efnis sem áður er
getið er að finna í Ferðahand-
bókinni mjög yfirgripsmikinn
fróðleik varðandi ferðalög, svo
sem skrát yfir veiðiár, veiðifé-
lög og leigutaka, skrá yfir gömul
hús, minja og byggðasöfn, skrá
yfir sæluhús, upplýsingar um
friðun fugla og skrá yfir þá, skrá
yfir alla sundstaði og böð, ítar-
legar áætlanir ferðafélaga, sér-
leyfisbifreiða, flugvéla í innan-
iands og utanlandsflugi, skipa-
félaga, ferðaskrifstofa og fjöl-
margt annað, sem of langt mál
er upp að teija.
FUNDUR SKOLA STIORAI
Dagana 24. - 26. júní s.I. boi
aði fræðslumálastjóri, Helgi
Elíasson, skólastjóra héraðs-mið-
og gragnfræðaskólanna til fund
ar í Gagnfræðaskólanum á Aku-
reyri.
í upphafi gerði fræðslumála
stjóri grein fyrir verkefni fund
arins og minnti á þau mdklu
skrif og umræður, er orðið hefðu
um ísienzk fræðsiumጠsl. vet
ur. ,
Fundarstjórar voru þeir Sverr
ir Páisson, skólasttjóri á Akur-
eyri og Jón R. Hjálmarsson,
skólastjóri í Skógum.
Aðalverkefni fundarins voru:
•>
Landspróf miðskóla og
framtíð þess.
Eðlis- og efniafræðikennsla.
Samræming gagnfræðaprófs.
Andri ísaksson, forstöðumað-
ur skólarannsókna, fluitti ýtar-
legt framsöguerindi um lands-
prófið. Kom þar fram, að lands-
prófsnemiendum fjölgaði ört. Nú
í ár hefðu 31% af 16 ára ung-
Mngum þreytt landspróf, en 26
% 1967. Ræðumaður raktd í ein
istökum atriðum gagnrýni þá,
sem fram hefði komið á iþetta
próf og framkvæmd þe,sis. Þá
gait hann ýmsra breytinga, er
ræddar hefðu veirið og væru í
lathugun bæði á kennsluháttum
fyrir þetta próf, verkefnum og
prófframkvæmdum.
Sveinbjörn Björnsson, eðlis-
fræðingur, flutti gagnmerkt er
indi um eðlis- og efnafræði-
' kennslu í barna- og gagnfræða
skólum. Hann er formaður nefnd
ar, er skipuð var að tiiihluitan
skóla ra nnsókna og gera skyldi
áætlun um kennslu þessara
greina í ísl. skólum. Auk Svein-
bjamar voru eifitirtaldir nefndar
tnienn geistir fiunidarins: Páll
Theódórsson, eðLisfræðingur,
Steingrímur Baldursson, prófess
or og Sigurðuir Elíasison, kennari.
Nefndin hafði gert mjög ýtar-
'lega og hnitmiðaða framkvæmda
áætlun um eðlis- og efnafræði-
fcennslu. Kynnti Sveinbjörn
nefndaráiitið og skýrði í ein-
stökum aitriðum.
Þriðja aðaimál fundarins var
samræming gagnfræðapróf.s.
Fiutti Andri ísaksson framsögu
erindi. Er unnið að því að sam
ræma gagnfræðapróf í íslenzku,
erlendum máiuim og stærðfræði.
Á vegum skólarannsókna var
könnunarpróf í þe.ssum greinum
í öilum gagnfræffladeildum sl.
vor. Var þiað naufflsynleguir und
irbúningur undir gerð fram-
bærilegra prófverkefna við gagn
fræðapróf.
Miklar og almennar umræður
urðu um öll þessi mál. Var það
ályktun fundarins — að
ekki beri að leggja niður lands
próf miðskóla, en hins vegar
breyita gerð þes's og framkvæmd
að nokkru.
Þá voru menn sammála um
nauðsyn þess <a0 siamræma gagn
fræðapróf í vissum greinum að
vissu miarki, en halda þó opnum
'leiðum til frjálsræðis í kennslu
hátfum einstakra skóla. Fundar
menn lýstu mikilli ánægju yfir
framkvæmdum eðlisfræðinefnd-
ar og þökkuð nefndinni sérstak
lega.
Þorsteinn Einarsson, íþrót'a-
fuMtrúi flutti fróðlegt erindi
um íþróttir í skólum. Urðu um
iþað allmiklar umræður.
iega vel unnin stöx-f.
SUPERMARKAÐUR
SJALFSAFGREIÐSLA
ALLAR VÖRUR UNDIR BÖÐARVERÐI -1HEILUM PAKKNINGUM
LANGT UNDIR BÚÐARVERÐI
HÚSMÆÐUR
GERIÐ SAMKAUP
OG SPARIÐ
J_0 25- júlí 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ