Alþýðublaðið - 23.08.1968, Blaðsíða 4
HEYRT &>
SÉÐ
■ Ansia éra&elgusr
Við skulum Játa ykkur fá afslátt strákar, ef þið kaupiö tólf
kossa hvor...
NORSK STÚLKA VERÐUR
FLUGSTJÓRI HJÁ SAS
Áður en langt' um líður mun
Turid Wideröe flugstjóri setjast
í flugstjórasætið í einni af far-
þegaþotum SAS. Þetta væri í
sjálfu sér ekki í frásögur fær-
andi, ef Wideröe flugstjóri væri
ekki kona. Hingað til hefur eng-
in kona verið flugstjóri farþega-
þotu, svo að þessi atburður mark-
ar tímamót í sögu farþegaflugs
ins. Og ekki síður mun þetta
verða örlagaríkur viðburður f
lífi stúlkunnar frá eyjunni Bodö
við Norður-Noreg, sem verður
þar með fyrsti kvenflugstjórinn
hjá SAS. Turid Wideröe hefur
alltaf verið með annan fótinn
í háloftunum. Hún hefur verið
flugfreyja, skíðakennari og fjall
göngugarpur.
En fyrstu ferð síha yfir norsku
fjöllin fór hún skömmu -eftir
að faðir hennar og frændi stofn-
4
Myndin efst til vinstri sýn.
ir Turid, þar sem hún er að
hjúkra sjúklingi í( sjúkraflugi
en margir í hinum afskektu
héruðum Norður-Noregs eiga
að launa.
<l'
Á myndinni til vinstri sést
Turid Wideröc við stjórnvöl-
inn ásamt aðstoðarflugmanni
sínum. Þau hafa oft komizt í
hann krappan, en aldrei
hlekkzt á.
Hann heitir...
Kekoalauliionapalihaulioke-
ikoolau David Kaapuawaoka-
mehameha er einn þeirra fjög
urra seon bjóða sig fram til
borgarstjóra í HonoiLulu og
eftir nafninu að dæma hefur
hann mikla möguleika á að
ná markinu.
Fornafnið sem erfitt er að
bera fram þýðir einfaldlega
fínustu blöð hawaíska akasíu-
trésins sem vex á grænum
klettunum í Koolaufjöllun-
jum“ en eftirnafnið þýðir að
hann er afkomandi eins af
bruggurum hins mikla kon
ungs Kamehameha.
Mót frambjóðendurnir heita
ekki eins plássfrekum nöfn-
um. Hugsið ykkur bara at-
kvæðaseðlana. Þeir heita And
erson, Lempke og Fasi.
uðu í sameiningu fyrsta einka-
flugfélag í Noregi. Þrátt fyrir
mótmæli föður síns byrjaði hún
að læra flug.
Síðastliðin sex ár hefur hún
. flogið sem flugstjóri á leiðinni
Bodö - Lofoten flugvél af gerð-
inni ,de Havilland Otter DCH”.
Auk þess hefur hún farið í ótelj-
andi sjúkraflugferðir fyrir föður
sinn - í alls konar veðrum og á
öllum árstímum - til að bjarga
Hér til hægri er svo Turid
í . einkennisbúningi sínum.
Þess mun nú ekki langt að
þíða, að hún verði fyrsta kon
an, sem gegni r starfj flug-
stjóra á stærstu farþegaþot-
um SA S.
lífi fólks í hinum afskekktu
héruðum Norður-Noregs. ' Og
benni hefur aldrei hlekkzt á.
Gamli maðurinn, faðir hennar,
kvartaði aldrei yfir því að hafa
ekki eignast son, enda má segja
að dóttirin hafi jafnazt á við
hvaða son sem er.
Turid þarf að fá undanþágu
til að verða flugstjóri hjá SAS,
því að í reglum félagsins er
kveðið svo á , að flugstjórar
skuli áður hafa flogið herþotu
í flughernum, en að sjálfsögðu
getur Turid ekki uppfyllt það
skilyrði.
Turid Wideröe sótti um starf
ásamt 27 flugmönnum, en próf-
dómararnir voru á einu máli um,
að hún væri hæfust allra um-
sækjenda.
4 23. ágúst 19f>8 - ALÞYÐUBLAÐIÐ