Alþýðublaðið - 14.09.1968, Qupperneq 3
ÍSLENZKUR FÁTNAÐUR ’68
NÝ FRAMLEIÐSLA
HX
BUXUR
Þarf aldrei aö pressa
Kynnið yður TEX buxunrnar sem aldrei þarf
að pressa í hinum almenna sýningartíma í dag
kl. 4—10 og á sunnudag kl. 2—10.
Tízkusýningar báða dagana.
DÚKUR HF.
Sími á KAUPSTEFNU 84663.
14. sept. 1968 - ALÞÝÖUBLAÐIÐ 3
Sjónvarpið i vetur:
Dýrlingur og Haröjaxl í frí
Forsyte í stað Hauksins
Útvarpsráð hefur nýlega ákveðið' heildarstefnu fyrir dagskrá
sjónvarps á komandi vetri, og er nú verið' að leggrja síðustu hönd
á und'irbúninginn. Ýmsar breytingar verða frá því, sem var í
fyrravetur, en nú undanfarið má scgja, að ríkt hafi millibilsástand
í dagskránni.
Helztu breytingar sjónvarpsins
verða þessar:
1. Þriðjudaga verða ekki lengur
sérstakir fræðsludagar, heldur
verður slíku efni dreift um
alla viku. Á þriðjudögum verða
m.a. íslenzk viðtöl og og erl-
endar afbrotasögur.
2) Laugardagskvikmyndir verða
ekki endurteknar á miðviku.
dögum (nemh sérstaklega
standi á) heldur verða nýjar
kvikmyndir bæði kvöldin. Er
; þetta efnisaukning.
3) Hingað til hafa verið tveir
fastir þættir fyrir sakamála-
sögur, .t.d. Harðjaxlinn og
Dýrlingurinn. í vetur verður
aðeins einn slíkur þát'tur í
viku, og verður fyrst sýnd
brezk framhaldssagan Melissa
eftir Durbridge, Haukiýinn
sést líklega ekki framar, en
Harðjaxlinn og Dýrlingurinn
koma aftur eftir 6-8 vikna
hvíld.
4) í stað sakamálasögu á mánu-
dögum kemur Saga Forsyte-
ættarinnar eftir tCralswort'hy
Þetta er brezk framhaldssaga,
sem hefur vakið mikla at-
hygli og tæmt götur stórborga
á Norðurlöndum
5) Sýnd verður saga áranna
milli styrjaldanna 1918 og
1939, mikill sögufróðleikur,
og margt fleira efni um landa-
fræði, náttúrufræði, vísindi ofl.
Annað verður að mestu ó-
breytt. Hrói höttur og Lassie
verða á miðvikudögum kl. 18
íþróttir síðdegis á laugardögum,
eftir að enskukennslu lýkur. ís-
lenzkir skemmtiþættir verða á
laugardagskvöldum og einnig
verða brezkir gamanþættir.
Fulíkominn
slökkvibíll
Slökkvílið Reykjavíkur
hefur fengið til notkunar
nýjan fullkominn slökkvibíl.
Tvö þúsund lítra vatns-
geymir er í bílnum og er
hann búinn tækjum til
froðumyndunar. Slökkvibíll
inn er af Ford gerð og kost
aði hann um tvær mllljón
ir króna með ölltun tækj
um.
Hinn nýi slöbkvibíll
Slökkviliðs Heykjavíkur var
sýndur fréttamönnum í
gær. Hann er af gerðinni
Fordi cV'þ'O. ISlöikkvdbHH'nn
er með tvö þúsund lítra
ivatinsgieymi og er búinn
tækjum til að breyta vatni
í froðu. Er hægt að breyta
öllu vatnsmagni bílsins í
froðu. Froðan er miklu
betri til slökkvistarfs við
ýmsar aðstæður, til dæm
Framhald á bls. 10.
Kaupstefnan opin
fyrir almenning
í dag kl. 16 verður kaup-
stefnan „íslenzkur fatnaður
1968” opnuð almenningi. Kaup-
stefnan hefur eingöngu verið
opin innkaupastjórum verzlunar.
fyrirtækja frá því á miðvikudags
morgun og fram til kl. 14,00 í
dag. Fjöldi innkaupastjóra og
eigenda verzlunarfyrirtækja hafa
þegar sótt kaupstefnuna. Hefur
það mælzt mjög vel fyrir að
kaupstefna þessi skuli haldin,
en á kaupstefnunni býðst tæki-
færi til -þess að gera innkaup
hjá mörgum framleiðendum á
einum stað. Talsverður áhugi
hefur komið í ljós fyrir því, að
haldnar verði tvær kaupstefnur
árlega, vor og haust. Fyrjrtæk-
in, sem taka þátt í kaupstefn-
unni hafa öll sölumenn á sýning.
unni. Margar nýjar vöruteg-
undir eru þar á boðstólum og
hafa viðskipti verið lífleg og
margar vörutegundir fengið góð-
ar undirtektir og pantanir gerð-
ar á þeim langt fram í timann.
Sumum fyrirtækjum hafa borizt
það miklar pantanir að fram.
leiðslugeta þeirra er nýtt nokkra
mánuði fram í tímann.
Kl. 17,00 á fimmtudag var
tízkusýning fyrir fulltrúa verzl-
unarfyrirtækja. Sýndur var ým-
is fatnaður, sem á boðstólum
er á kaupstefnunni. Það voru
sjö -meðlimir hjá Model-sam.
tökunum, sem sýndu þarna 50
flíkur. Undirtektir við þessa
nýbreytni voru mjög góðar og
mátti sjá marga fylgjast mjög
vel með því sem sýnt var og
skrifa niður athugasemdir um
hveru cinstakan fatnað.
Framhald á bls. 10.