Alþýðublaðið - 14.09.1968, Síða 12
í
Jane Fonda, sem nú stendur
á þrítugu, virðist ekki nijög
gefnir fyrir fyrirfram gerðar
áætlanir. Meira að segja þótt
hún labbi um baðströndina í
„tækifæriskjól.‘‘
Vísir.
Á sumi'in koma menn við og
við á Arnarhól til að slá, en
allt árið um kring koma menn
af Arnarhóli til að slá.
Helga W. sýnir í Bogasal
Laugardaginn 14. september
kl. 17 opnar Helga Weisshappel
Foster, listmálari, málverkasýn
ingu, í sýningarsalnum Hlið-
skjálf á Laugarvegi 31.
Á sýningunni eru 26 málverk,
bæði í' vatoslLtum og olíu, þar
af nokkrar upphleyptar myndir,
ien stutt er síðan lisfcakonan tók
'að gera slíkar myndir. Á sum
um iþeirra mynda. sem 'þarna
eru, ier ný tengund glers, sem
Iþykir ihafa ýmsa kosti fram
yfir venjulegt gler. Er þetta
ihið svonefnda vattgler.
Helga íhefur (haldið fjölda-
m'argar einkasýningar á verk-
nm sínum bæði hérlendis og
lerlendis. M.a. hefur hún sýnt í
Vinarborg, Osló, Helsinki, Kaup
cmannahöfn og Niew York. Hún
Ibefur tekið þátt í fjölda sam
sýninga bæði hér og eriendis.
Hún hélt síðast sýningu hér
heima síðastliðið vor. ur opin almenningi 14. — 26.
ISýnátngin í Hliðskjálf verð feept. n.k. daglega til kl 22.
Björgvin sýnir í Unuhúsi
í gær klukkan 16.00 opnaði
Björgv :n Sigurgeir Haraldsson
myndlistarsýnjngu í Unuhúsi
við Veghúsastíg. Sýnir Björgv
in 26 kola- og krítarmyndir
og 7 tré- og dúkristur með
hugmyndum úr íslendingasög
um. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Björgvins t '1 þessa. Ailar
myndirnar eru unnar á síðustu
Gluggasmgöjan
Síðumúlcr 12
Sími 38220 — Reykjavík
þremur árum. Þaer eru allar
til sölu. Sýningin stendur til
22. september n.k. og er opin
alla daga frá klukkan 14.00 til
klukkan 22.00.
Fréttamaður leit inn til
Björgvjns í gær og ræddi við
hann um sýninguna. Á sýning
ainni eru alls 33 myndir, 26
kol- og krítarmyndjr og 7 íré-
og dúkristur með hugmyndum
úr íslendingasögunum.
Listamaðurinn er 32 ára að
aldri og er þetta fyrsta einka-
sýning hans. Hann tók þátt í
ha,ustsýnjngu Félags íslenzkra
listamanna árið 1963.
Björgvin stundaði nám vi5
Handíða- og myndlistarskól
ann á tímabilinu 1958-1960, í
deild hagnýtrar myndlistar. I
Myndlistarskólanum við
Freyjugötu var Björgvín í tvo
vetur og nam „módeleringu“
hjá Ásmundi Svejnssyni, mynd
höggvara. Sumurin 1961 og
1962 dvaldi Björgvin í Ham-
borg í Þýzkalandi. Stundaði
hann nám í igler- og steinmós
aík, teiknun og málun hjá
prófessor Theo Orluer í Statl-
Kunste.
Síð,u.stu fimm árn hefur
Björgvin Haraldsson verið
kennari í teikningu við Gagn-
fræðaskólann í Kópavogi.
Sýning Björgvins í Unuhúsi
stendur t 1 22. september n, k.
og er opjn frá kl. 14.00 til 2200.
Allar myndirnar eru til sölu.
Það er annars mt'rkilegt
rannsóknarefni að til eru ríki,
sem vilja berjast fyrir
varðveizlu friðar með stórvjrk
um gjöreyðingarvopnum.