Alþýðublaðið - 22.09.1968, Qupperneq 2
Bitstjórar: Krlstján Bersi Ölafsson (áb.) og BenedlKt GröndaL Símar: 14900 ~
14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: AlþýðuhúsiB viö Hverfisgötu,
Keykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Askriftargjald kr.
120,00. — f lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið bf.
TALAÐ AF HREINSKILNI
Gylfi Þ. GMason talaði af
tnikilli hreinskilni, eins og hann
sr 'vfanúr, er hann var á öndverð-
urn oneiði við Eystein Jónsson í
;jönva(rpinu á föstudagskvöld.
tfann kvað jafnaðarm'enn vilja
jegja iþjóðinni satt, ién ekki það
;em hver vill heyra. Og það fór
>vo að hann fékk Eystein til að
?anga inn á mörg aðalatriðin í
náli sínu.
Gylfi minnti á, að verðmæti
itflutnings í ár yrði 40% lægra
ín 1966. Hann isagði, að lífskjör
fólksiWs og framfeiðslukostnaður
latvinnuveganna hefði miðazt við
mesta góðærið, og því yrði að
miða alfar ráðsfafanir nú við það
tímabil.
FuII atvinna fyrir allar vinnu-
fúsar hendur var það atriði, sem
gekk eins og rauður þráður gegn-
um allan málflutning Gylfa.
Hann kvað Alþýðuflokkinn
mundu beita sér fyrir því, að
þær leiðir verði farnar út úr
vandanum, sem tryggja fulla at-
vinnu og forða þjóðinni frá stór-
felldu atvinnuleysi.
Gylfi dró ekki dul á, að þær
ráðstafanir, sem nú verður að
igera, hlytu áð hafa 1 för með sér
byrði fyrilr alia landismenn. Þetta
hafði Eysteinn ekki nefnt, en
igekk inn ó, að svo væri, enda
þyrfti að deila byrðunum sem
réttlátast. .
Bæði Gylfi og Eysteinn voru
á þeirri skoðun, að þjóðstjórn
gæti reynzt sú leið, Sem fara yrði,
ef saonkiomiulag næðist um úr-
ræði. Gylfi flutti enhfremur þá
skýringu, áð eftir þungar efna-
hagsráðstafanir væri jafnan
hætta á kjaradeilum. Ætti þjóð-
istjórn að hafa hvað bezta aðstöðu
til áð tryggja vinnúfrið og Sam-
bomúlag við launþegasamtökin.
Ef svo gæti orðið taldi Gylfi þjóð-
stjórn réttl'ætanlega og æskilega,
enda þótt núverandi stjórnar-
flokfcar séu reiðubúnir til að
stjórna áfram.
Gylfi hrakti ýmsar kenningar
fra|msókn(armann|a. Hann skýrði
til dæmis svo frá, að helmings
vaxtalækbun mundi aðeins Spara
frystiiðnaði Ijandsins um 40
milljónir, en framleiðsluverð-
mætið næmi 2200 mílljónum.
Þetta réði því ekki úrslitum, en
mundi hafa mjög slæm áhrif á
sparifjármyndun ilandsmanea og
þarmeð lánamöguleika atvinnu-
veganna.
Þá nefndi Gylfi 'hina útbreiddu
gágnrýni á „stjómlausri fjórfest-
ingu“. Hann sagði, að 1964—67
hefðu verzlunarhús, gistihús og
olíústöðvar aðeins numið 5—6%
af heildar fjárfestinigu, og gæti
það ekki ivialdið áköpum í afkomu
þjóðarinnar.
Víðtækar athuganir standá nú
yfir og verða ítarlegar lokaskýrsl
ur 'ékki ti'l fyrr en um miðjan
október, þótt heildarmynd vand>-
ans sé þegar sýnileg. Þess vegna
er 'ekki tímabært að gera upp við
.sig, hváða leið ber að fara. Það
mun skýrast með mörgu fleira
á næstu vikum.
Stofnun Grikk-
landshreyfingar
Stofnfundur Grikklandshreyf.
ingar stuðningsmanna lýð-
ræðls í Grikklandi var haldinn
síðastliðið fimmtudagrskvöld.
80—90 manns voru mættir þ.
S. m. 12 tilnefndir af jafnmörg.
um samtökum, sem eru:
Alþýðusamband íslands,
Iðnnemasamb. íslands,
Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna,
Stúdentafél. Háskóla íslands,
Samb. ungra framsóknarm.
Samb. ungra jafnaðarmanna,
Samb. ungra sjálfstæðism.,
Æskulýðsfylkingin, samb.
ungra sósíalista,
Félag frjálslyndra stúdenta,
Leiðrétting
í aukablaði Alþýðublaðsins
í dag er villa á forsíðu. Þar
er sagt að myndir á forsíðu
séu af Pálínu Guðmundsdótt
ur en hún er að sjálfsögðu Jón
mundsdóttir. Biðjumst við vel
virðingar á þessum mistökum.
Félag róttækra stúdenta,
Stúdentafélag jafnaðarm.,
Vaka, félag Iýðræðissinnaðra
stúdenta.
Vilmundur Gylfason var val-
inn fundarstjóri, en síðan flutti
Sigurður A. Magnússon aðal-
ræðu kvöldsins, en hann er helzti
hvatamaður að stofnun hreyf.
ingarinnar.
Hann rakti stuttlega þróun
mála í Grikklandi síðan í april
í fyrra, en þó fyrst og fremst á-
standið eins og það er nú.
Sigurður vék síðan að hlut-
verki Grikklandshreyfingar á
íslandi. Slíkar hreyfingar hafa
nú verið stofnaðar í öllum lönd-
um Evrópu nema á' Spáni og í
Portúgal. Náið samstarf er með
þessum samtökum og eru þau í
nánum tengslum við andspyrnu.
hreyfinguna í Grikklandi og al-
grísku frelsishreyfinguná, PAK,
sem Andreas Papandreou stofn-
aði til að sameina öll öfl gegn
einræði í Grikklandi, til endur-
reisnar þingræðislegu lýðræði
með frjálsum kosningum.
Sigurður lagði síðan uppkast
að lögum fram til umræðna, sem
sniðið er eftir sænskri fyrir.
mynd, en þar er Grikklandshreyf-
ingín einna öflugust.
Talsverðar umræður spunnust
um þetta frumvarp, en það var
að lokum samþykkt næsta ó-
breytt.
Þar er gert ráð fyrir 15 manna
aðalstjóm. Sigurður A. Magnús.
son var einróma valinn formað.
ur, Bergþóra Gísladóttir féhirð-
ir, en aðrir í stjórn: Georg Ól-
afsson, Guðm. Magnússon, Hall-
dór Blöndal, Haraldur Blöndal,
Helgi E. Helgason, Jón Eiríks.
son, Margrét Guðmundsdóttir,
Mikael Lýras, Sigurður Guð-
mundsson, Sigurður Steinþórs-
son, Snorri Jónsson, Sveinn R.
Hauksson og Þorsteinn Blöndal-
Aðalstjórn mun síðan velja sér
framkvæmdastjórn. Gísli Gunn-
arsson og Ólafur R. Grímsson
voru kosnir endurskoðendur, en.
Nann'a Ólafsdóttir til vara.
Fundurinn lýsti yfir stuðningi
við ályktun norrænnar ráðstefnu
stuðningsmanna lýðræðis í Grikk
landi, sem haldin var 27.—28.
apríl í vor, og hvatti stjórnina
til að semja ályktun á grundvelli
hennar og ganga hið fyrsta frá
starfsáætlun samtakanna.
Verkefni hreyfingarinnar
verða fyrst og fremst fréttamiðl.
un og fjáröflun til handa Grikkj-
um, en ennfremur verður efnt
til funda og ráðstefna til stuðn-
ings endurreisn lýðræðis í Grikk
landi.
Sigurður A. Magnússon hélt
til Svíþjóðar um helgina, en þar
mun hann m. a. kynna sér starfs
hætti Grikklandshreyfingarinn-
ar og hitta Andreas Papandre.
ou. Kannaðir verða möguleikar
á komu hans hingað í vetur.
Vonir standa til að starfsemi
Grikklandshreyfingarinnar gangi
betur en hjá Vietnam-nefndinni
sem nú virðist hafa lognast út
af.
Þannig er nú um hnútana bú-
ið, að einstaklingar geta ekki
tafið framgang mála með neit'-
unarvaldi, eins og reyndin varð
þar.
Auk þess er án vafa mikill
meiri hluti íslendinga einhuga í
þessu máli gegn valdaráni f!as.
istanna í Grikklandi og ætti því
samstarf á breiðum grundvelli að
verða auðvelt í framkvæmd.
Sjómem U
Framliald af bls. 1
ataddir er sá vágestur er við
'þe'kkjum versfan og a'Hir verða
að leggjast á eiut um að bægja
frá. Sjávarútvegurinn hefur
léngi verið, er og verður enn
um langan tíma s'á af atvinmu-
vegum okkar er mest veltur á
og að mínu viiti aðalundirstöðu.
atvinnuvegu r okkar íslendinga.
Þess vegna 'hlýtur að verða
(þannig að þeim atvinnuvegi
fbúið, áð hann geti gengið sem
(bezt. Á sjóinn verður að sækja
og býist ég því við að einna
síðast muni 'koma tl'l atvinnu-
ileysis hjá fisikiiniönnum, þótt
samtökin verði að isjálfsögðu að
vera á verði gagnvart þeim
möguleika að um atvinnulleysi
igetti orðið að rœða. Við munum
ræða öU þessi mál af fullu
raunsæi og högum samþykkt-
um okkar samkvæmt því.“
Klrkism , 4
Framhald af bls. 1''
ur verið send til þúsunda
presta og kirkjulegra safnaða
af öllum ikristnum trúarflokk
um. Viðtakendur eru hvattir
til að undirr'ta skjalið.
Nefndin hefur meðal anri
ars komizt að eftirfarandi nið
urstöðum.
— Sé kynþáttaskilnaðar
stefna framkvæmd, hlýtur hún
að leiða til þess, að kristin
kirkja hættir að vera kirkja.
— Kenningin um kynþátta
aðskilnað, sem í sjálfri sér er
ómennsk, er óvinur krjstin
dómsins.
— Ýmislegt bendir til þess.
að þessi kennisetnig sé mörg
um Suður Afríkubúum ný
villutrú, ný biblía.
— Reglur kirkjunnar, sem
m'ðast að 'því að fá starfsem
ina í söfnuðunum til að sam
ræmast framkvæmd Suður
Afrísku stjórnarinnar á kyri
þáttaaoskilnaði, eru reglur
sem leiða til þess, að k’rkjan
víkur frá kenningum Krists.”
— Sé kenningin um kyri
þáttaaðskilnað framkvæmd
takmarkar hún það, að hinir
kristnu bræður geti þjónað
hvorir öðrum og þekkt hvorir
aðra.
Og nefnd guðfræðinganna
lýsir því einnig yfir, að vilji
manna til að hlýða boðskap
biblíunnar og elska náungann
eins og sjálfan sig, sé að engu
hafður í kynþáttaaðskilnaðar
kenningunni.
2 22. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ