Alþýðublaðið - 08.12.1968, Síða 1
II. HLUTI 1968
Vilborg Dagbjartsdóttir:
KARL OG KONA
¥*
Drottinn guð Iífsins átti erindi við fjárhirðinn Móse.
Fundum þeirra bar saman í f jallshlíð vaxinni þyrnikjarri.
Móses, þrælborinn uppreisna rmaður og útlagi,
hélt fénaðinum þar til beitar.
Drottinn guð lífsins tók hanntali
og vildi gera hann að jarli sínum
og setja hann yfir hina útvöld u þjóð
og bauð honum að leiða hana í Fyrirheitnalandið.
Þeir þjörkuðu um þetta Iengi dags áður en þeir sömdu.
Loks lofaði Móses fyrir sitt leyti að halda samninginn.
Og aldir liðu.
Þá var það
að Drottni guði lífsins
kom konan í hug.
Hann sendi skutilsvein sinh, Gabríel að nafni,
með laumuleg skilaboð til meyjarinnar Maríu,
sem sat í festum í föðurgarði.
Stúlkan María var af vammlausri fjölskyldu
og heitin forstöndugum smið.
Þrátt fyrir það flutti Gabríel henni
hin furðulegu skilaboð frá húsbóndanum.
Stúíkan laut þrisvar svo enni hennar nam við gólf
og mælti án umþenkinkar: „Sjá ég er ambátt Drottins.”
Kvæð:tð er úr nýrri ljóðabók Viltoorgar Dagbjartsdóttur, Dverglilju, sem
Helgafell gefur út.