Dagur - 22.12.1965, Side 12
12
JÓLABLÁÐ DAGS
Ekki man ég nú hvað á valsinum var
hjá Eiriki, en upphafið man ég, sem
hljóðaði svona: „Eins og þið vitið, þá
er ég sú mesta hermikráka, sem heim-
urinn á og nú ætla ég að syngja fyrir
ykkur lag eftir Bjai’na gamla sölu-
stjóra..“
Síðan söng Bjarni lagið „Þú stjarnan
mín við skýjaskaut", en mun hafa byrj-
að fullhátt og sprakk á hæsta tóninum,
sem að vísu jók heldur á hrifningu til-
heyrenda, en dró ekki úr.
Þar á eftir spiluðu allir hálftólf fram
á nótt, þar sem Grímur naut sín ágæt-
lega, því að hann keypti oftast þar til
hann sprakk (dins og það heitir í spil-
inu), en var áður búinn að sýna mörg
andlit og margs konar látbrögð.
Leið nú brátt að jólum og enda þótt
ég yndi hag mínum hið bezta í Ærlækj-
arseli, hlaut sú ákvörðun að standa, að
ég kæmi heim fyrir jól, enda kom
vinnumaður, Aðalgeir Flóventsson, að
sækja mig skömmu fyrir þau. Ifafði
hann með sér skíðasleða, bæði undir
dót, sem raunar var lítið, en þó einkum
til þess að geta ekið stráknum, þegar
hann uppgæfist, því 9 ára gemsanum
yar miður vel treyst til svo langrar og
kannske nokkuð erfiðrar göngu, því að
færi var ekki í allra bezta lagi og gat
auk þess versnað fyrirvaralaust á þess-
um árstima. Færið var nú samt sækj-
andi, því vetur hafði verið snjóléttur
það sem af var. Yfir þrjár ár var að
fara í Sandinum og eina háa og bratta
heiði, Tunguheiði, nema farið væri þá
kring Tjörnes, sem í lengstu lög var
forðazt, sakir vegalengdar og gat einn-
ig verið snjór á þeirri leið, en tæplega
eins mikill og minni hætta á dimmviðri
eða veðurofsa. Sjálf Jökulsá, sem var
austast var ísi lögð, en Bakkahlaupið
prijiið meira vatnsfall og ffsrjað, en Stqr-
áin að mig minnir jafnVel enn vatns-
fneiri, enda,ferjuð frá Nýjabæ af Guð-
mundi eldra, er þar bjó þá. Nú er Stór-
áin komin öll í Bakkahlaupið og því
ekki til lengur. , < i <
Á Grund, litlu býli þarna skammt
frá, (nú í eyði), bjó Friðrik, kallaður
Breiði Filli, sem bauð okkur inn til
kaffidrykkju og gekk með okkur spotta
korn, og minnir mig að ég settist þá
stundarkorn á sleða .
Á Fjöllum, því alkunna gestrisnis-
heimili, var stanzað og veitingar þegn-
ar, enda munu fá dæmi þess hafa
þekkzt um langt árabil, að nokkur legði
á Tunguheiði án viðkomu og tafar á
Fjöllum, og mörgum mun hafa verið
fylgt þaðan áleiðis upp á heiðina, og
jafnvel yfir Spóagil og upp á Gerði-
brekkubrúnina, sem ey há og brött og
oft torsótt nokkuð, en eftir að hún er
sigruð, hallar brátt undan fæti norður
af.
Talsverður þæfingur var á Tungu-
heiði, en heita mátti að ég gengi alla
leiðina, og mun hafa fengið hrós fyrir,
enda gerði ég betur en ætlazt hafði ver-
ið til.
Næturgistingu tókum við svo í Syðri-
Tungu norðan helðar, sem svipað mátti
segja um og Fjöll hvað gestrisni og við-
komur ferðamanna snerti, og á þeim
árum var mikið um ferðalög á þessum
slóðum, meðal annars í verzlunarerind-
um Keldhverfinga og Söndunga, áður
en kaupfélagið hóf starfsemi á Kópa-
skeri. Reykjaheiði var einnig mikið far-
in allt frá fornU fari, en að vetrinum
mjnna, sakir þess hve langt er milli
bæja, enda oft vandratað.
í Tungu var fremur lítií baðstofa,
miðað við það, sem þurft hefði, en í
henni svaf allt heimafólk og gestir einn
ig, enda mun oft hafa verið þröngt og
stundum þrímennt í rúmum og að
þessu sinni var ég við þriðja mann og
svaf iekki sem bezt, enda óvanur slíku
umhverfi, því að í Ærlækjarseli var vel
rúmt um alla og gott loft.
Heim var svo komið snemma dags
við góða heilsu og ástúðlegar móttökur
skyldra og vandalausra, en næstu tím-
ar þarna á eftir eru mér að mestu horfn
ir í þoku gleymskunnar.
<S? -^<S? 4*
- Frá Mainz til Hóla
. i / ;■ f : i: j ., ■ ■ i :
1 Fránih. af blk. 71 1 ' 1
'firerftHiiM á Hólum? Það ætti ís-
leridíngum að verd viði'á'ðanlegf, —
'sé 'ékki haft til-fýrírmyndar Gúten-
bergssafiíið dg;:styttári miklá í Ma-
inz.
Fyrirmynd prentsmiðjunnar væri
hægt að sækja til Mainz, ef ekki til
þjóðminjasafna hér eða á Norður-
löndum.
Til er lýsing á prenthúsinu frá
1703, er það var endurreist á sama
stað og fyrra húsið hafði verið, —
spölkorn vestur af dómkirkjunni.
„Það var í 6 stafgólfum með 14
stoðum, 7 bjálkurri og sþerrum, 5
glergluggum og kakalofni."
Hvað mundi vera því til fyrii-
stöðu — nema ef til vill skortur á
þjóðarmetnaði og framtaki — að
endurreisa Hólaprentsmiðju á
sama stað og hún áður var, og þá
með tilheyrandi bókasafni?
Öll þjóðin á Hólum skuld að
gjalda, ekki sízt vegna Guðbrands
Þorlákssonar.