Dagur - 22.12.1965, Qupperneq 14

Dagur - 22.12.1965, Qupperneq 14
14 JÓLABLAÐ DAGS rekan glamraði við eitthvað með hljóði, sem snart hann svo, að hann fór að athuga það; reyndist þetta vera spjótsoddur, og ennfremur sá hann rák el'tir gjörfúið skaft. Hætti hann þá þegar greftrinum. Þórarinn Björnsson, skólameist- ari á Akureyri, var þá staddur aust- ur í Kelduhverfi, en þar er hann barnfæddur. Héðinn hafði nýlega frétt, að hann og Kristján Eldjárn þjóðminjavörður hefðu mælt sér þar mót, mjög bráðlega. Hringdi hann því í Þórarin oybað hann að láta þjóðminjavörð vita hvers hann hefði orðið var, þegar furtdum þeirra bæri sarnan, sem hann og gjörði. Litlu síðar kom Kristján Eldjárn á staðinn, ásamt Þórarni skólameist ara; þágu þeir veÍLÍngar hjá Þór- arni bónda í Vogum (nýbýli úr Grásíðu), en rufu síðan hina nokk- uð umtöluðu „Grásíðu-dys“. Þegar þjóðmin javörður kom aftur frá því, sýndi hann þeiní á bænum höf- uðkúpuna með því fágæta ein- kenni, að þar vantaði hægri inn- framtönn í efri góminn, — sem aldrei liafði vaxið. Kom þá í ljós, að þrír þarna nærstaddir Keldhverf- ingar báru þetta sama auðkenni, og svo hafa þeir fleiri verið, allt fram á okkar daga. Ekki er vitað að þetta einkenni þekkist víðar á landinu. Litlu síðar frétti Héðinn að búið væri að grafa í Grásíðu-dysina,; ög spurði hvað fundizt hefði. Var Hon- um sagt að fundizt hefðii beinagirind Og vopn. Spurði hann þegar hvort beinagrindin hefði veríð heil. Var honum sagt að vantað hefði aðra höndina. „Og hvora?“ spurði hann þegar, spenntur. Var honum sagt að það hefði verið sú hægri. Innti hann fast eftir því, en sá sem hann átti orðastað við fullyrti að það væri hægri höndin sem vantaði. Missti þá Héðinn allan áhuga fyrir hand- ar-hvarfinu, og s\o gleymdist það í dagsins önn. Svo bar það við árið 1950, að Héðinn var einu sinni að leggja fyrir rafmagni niðri á Víkingávatni; þar lá fyrir honum á borði, dót sem hann þurfti að rýma frá sér, m. a. bók. Þegar liann færði bókina, hrökk hún opin, — og sá hann á opnunni nafnið sitt. Þar sem hann vissi ekki að það stæði víða í bók- um, fé>r hann að athuga fyrst hver bókin væri. Var þetta þá bók dr. Kristjáns Eldjárns, „Gengið á reka“; hafði Héðinn hitt á kaflann um Grásíðu-manninn. Las hann þá kaflann — og þá fyrst fékk hann að vita að það var vinstri höndina, senr vantaði á Grásíðu-manninn. Þess má geta að grundin sem vantaði, í draumi Héðins, hefur þykknað að mun í tíð hans, af fram- burði lækjanna og áfoki. Á seinni árum hefur lækurinn þó grafið sig niður í grundina, en vinnst nt'i hægar en fyrr — því nú er hann víða kominn ofan á hraun, sem lík- ist því sem Héðinn sá í draumnum. Héðinn telur sig geta bent á stað- inn — næstum sporin, sem hann stóð í, þegar hann barðist fyrir lífi sínu, við ofsóknara sinn í draumn- um. Fremur þótti Héðni þeir lágir vexti, þessir vígamenn sem hann sá í draumnum, og fer það mjög í sömu átt og álit beinafræðinga nú- tímans, sem telja sögualdarmenn hafa verið smávaxna. Að lokum vil ég aðeins bæta því við, að ætti ég nú að svipast um meðal samtíðarmanna minna eftir lvliðstæðu þeirra vígamanna sem fornsögúr okkar greina'frá, ótrauðra og reifa á hverju sem gengur, þá staðnæmdist ég einna fyrst við Héð- in á Fjöllum. (Skráð eftir frásögn Héðins á Fjöllum af Guðmundi Þorsteins- syni frá Lundi eftir uppkasti, sem lvann staðfesti sjálfur 6. jan. 1965). Sandvík 4. nóv. 1965. MeS hesta ÞETTA var í aprílmánuði 1918, ísa- og frostaveturinn rnikla, þegar gengið var svo vikum skipti rnilli Hríseyjar og lands. Eg var þá bóndi á Brekkukoti í Svarfaðardal, kem frá miðdegis- verði út á hlað og sé mann koma á hraðri ferð sunnan að bænum. Er það Vilhjálmur Einarsson bóndi á Bakka 02; er nokkur asi á honum. Hann segist koma í þeim erindum að fala hjá mér hey handa vini sín- um Þorsteini Jörundssyni í Hrísey, hafi hann skrifað sér og beðið sig um hey og að skjóta því yfir til sín meðan hægt sé að korna við sleðum á milli lands og eyjar. Komi hann nú frá Júlíusi Daníelssyni í Syðra- Garðshorni, sem lofað hafi að láta liey af líendi og hafi þeir komið sér saman um að fara með heyið

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.