Dagur - 22.12.1965, Side 22

Dagur - 22.12.1965, Side 22
n eftir 12 ára þ'jónustutíma fluttist hann að Litla Dal, jörð kirkju sinnar, og bjó þar þau 7 ár, sem hann átti ólifað. í Æfiskrám íær síra Sigurður þann vitnisburð, að hann var mikill búmaður og dreng- lyndur. 9. Eftir er nú aðeins að geta síð- ustu aldarinnar á Auðkúlu. 1856— 1951 sátu staðinn þrír Prestaskóla- kandidatar, hinn fyrsti 29 ár, ann- ar 36 ár, en hinn þriðji 30 ár. Eru þetta þeir síra Jón Þórðarson, síra Stefán M. Jónsson, tengdasonur hans, og síra Björn, son síra Stefáns,, sem síðastur presta fer frá Auðkúlu 1951. Hafði nú brugðið til hins fyrra, að prestar héldist lengi á Auð- kúlu. Kennir liér aftur gamallar festu og er vel eftir breytileik ár- anna 1828-1856. Jón Þórðarson var fæddur á Bessastöðum á Álftanesi 1826, son Þórðar síðar prests á Mosfelli og Guðnýjar skólaþjónustu á Bessa- stöðum Magnúsdóttur. Síra Jón á Auðkúlu var góður prestur, sem kallað er, og fróður og safnaði þjóð- sögum. Var hann tvisvar prófastur í Húnavatnssýslum. Hann var kvæntur Sigríði Eiríksdóttur sýslu- manns Sverrissonar og eru öll þessi nöfn algeng mcð niðjum þeirra. Theodór son þeirra, f. 1866, var prestur að Bægisá um 51 ár og dó þar 1949 síðastur istáðarpreSta. Vilí- borg dóttir þeirra Aúðkúluhjóna giftist síra Eiríki (Jíslasyni á Stað U: Hrútafirði, og búa niðjar þéirra þar fcnn. Guðný átti Brynjólf í Skild- inganesi við Sker jafjörð, preðal margra barna þeirra eru síra Éirík- ur á Útskálum og síra Gísli á Kirkjubæjarklaustri. Yngst Auð- kúlusystkinanna var Þóra, síðari kona síra Stefáns á Auðkúlu. Stefún Magnús Jónsson var fædd- ur í Reykjavík 1852, bróðurson Magnúsar fraters guðfræðings frá Skinnalóni Eiríkssonar, en rnóðir JÓLABLAÐ DAGS hans var Hólmfríður Bjarnadóttir á Bæ i Hrútafirði Thorarensens. Vígðist síra Stefán að Bergstöðum vorið 1876, en kom að Auðkúlu eft- ir síra Jón 1885. Þar sat hann svo í embætti til vors 1921, er síra Björn son hans tók við. Síra Stefán dó á Auðkúlu vorið 1930 hjá syni sínum og Valgerði Jóhannsdóttur frá Toríastöðum í Svartárdal síðari konu hans. Síra Stefán var orðlagð- ur söngmaður og nokkuð fékkst hann við ritstörf, eru til eftir hann blaðagreinar og prentaðar hugvekj- ur. Sá er þetta ritar hefur lesið eina ræðu eftir síra Stefán. Er það löng hjönavígsluræða, óprentuð, en í varðveizlu Önnu Sigurjónsdóttur ljósmóður á Þverá í Öxnadal, en yfir foreldrum hennar var ræðan haldin í Auðkúlukirkju á brúð- kaupsdegi þeirra. í þessari ræðu kemur fram mikið þunglyndi og svartsýni: „ef svo kynni að fara, að sól skini einhverntíma á veg ykkar — varizt, að það villi ekki um, því að áður en varir skyggir að“. Þegar þess er gætt, að nokkru áður en giftingin fór fram hafði síra Stefán misst konuna, Þorbjörgu Halldórsdóttur frænku sína frá Úlfsstöðum í Loðmundarfirði, og næstu árin á undan mörg ung börn, er skiljanlegt að stefið í ræðu hans er þunglyndi — eins og trega- stemrna. Fimm af tíu börnum þeirra hjóna kornust upp: síra Björn', Isíra Eiríkur á Torfastöðum, Lárus’ ' dyrakörður í Reykjavík, Hiimar bankastjóri og Hildur, sem átti Pál kaupmann í Færeyjum Ólafsson frá Hjarðarholti, en Guð- rún Sigríður alsystir hans var fyrri kona síra Björns Stefánssonar, lézt ineðan þau voru á Bergstöðum. Síra Stefán og síðari kona hans, Þóra þ'msdóttir frá Auðkúlu, áttu aðeins eina dóttur, er upp komst, Sigríði, sem giftist síra Gunnari Árnasyni presti til gömlu Blöndu- dalshóla- og Bergstaðaprestakalla. Var 'síra Gunnar síðasti presturinn á Bergstöðum, Jxví prestbólið var flutt, Jxaðan snemma í embættistíð hans í þessum sóknum að Æsustöð- um í Langadal. 10. Frá Jxví segir í upphafi Jxessarar greinar, að með burtför síra Björns Stefánssonar frá Auðkúlu væri lok- ið sögu Jxessa seturs í eiginlegum skilningi. Með Jxví er á engan hátt gert lítið úr búskap nú eða framtíð- arhorfum. Hið fyrra er farið, allt er orðið nýtt. Mest endurreisn stað- arins væri fólgin í miklum og þrif- legum búnaði, enda eru landgæði Auðkúlujarðar sú undirstaða, sem öll ytri vegsemd höfuðbólsins hef- ur um aldir ljómað af. En þótt aðal- bólinu hafi nú verið skipt upp í nokkur nýbýli, sem að fprnu jarða- mati væri nefnd útjarðir, má ekki gleyma Auðkúlukirkju. Hvorki sögu hennar né framtíð. Fámennur söfnuður Jxarf nú að reisa nýja kirkju, og þó hún geti ekki orðið í ætt við kirkjuhúsið 1318 að veg- leika og fegurð, er vandinn mikill. Um leið og ríkissjóður hefur yfir- tekið prestsetrið á Auðkúlu og not- að til annars, er ekki aðeins vert að minnast erfðaskrár Gottskálks bisk- ups 1520 um ævinlegt prestból á Auðkúlu, heldur og hins, að kirkj- an á Auðkúlu hefur frá því hún fyrst var reist á þjóðveldistímanum átt alla jörðina. Ábyrgðarmaður jarðarinnar, sem nú er ríkissjóður, er skyldur til, alveg eins og ríkis- menn fyrri alda, að halda við og endurbyggja kirlcjuna. En hversu höfðinglegt. það er, að afhenda fáeinum bændafjölskyld- um kirkju og ætlast til að byggi upp án hins gamla viðurhalds, sem jarð- irnar voru, geta menn séð af því hve heiðarlegt það er. (Hclzlu heimildir: ísl. fornbrétasafn, ísl. æviskrár, Slurlunga, Prestátal og prófasta, Þjóðs. Jóns Árnasonar og Ólafs Davíðssonar.)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.