Dagur - 22.12.1965, Page 29

Dagur - 22.12.1965, Page 29
JÓLABLAÐ DAGS 29 Þeistareykjum. Kring um bæinn eru grundir, sléttar og greiðfærar til slægna. Þar er nokkur raki í jörð og jörðin hlý svo að þar bregzt natimast spretta og kjarngott er heyið, kallað töðugæft. Víða má einnig heyja í gras- hvömmum og lágum. Sumarland er gott og mjólkuðu kví- ær vel og mjólkin reyndist feit og kost- góð. Því var það einhverju sinni er Sigurður var gestkomandi í Skörðum að sumarlagi, að húsfreyjan spurði liann eftir málnytu á Þeistareykjum og hvernig sméraðist. Sigurður sagði henni hve margar kvíærnar væru og hve mikið smjör fékkst úr dagsnytinni. „Ætli það sé munur eða hérna“ sagði hún og nefndi ærfjölda hjá þeim „og dagsdamlan er ckki nema rétt eins og mannssnýta." „Þú þekkir það, heillin,11 sagði þá bóndi hennar og hló, Fjallagrös vaxa víðast hvar í Þeista- reykjalandi og víða er mikiö af þeim. Fjallagrös þóttu á þeim tíma ein drýgsta björg í bú, þar sem til þeirra náðist. Þá var algengt að fólk af nokkr- um bæjum niðri í dölum sló sér saman í hóp og fór til grastekju austur í Þeista reykjaland og lá þar við í tjaldi dögum og jafnvel vikum saman. Frá Þeista- reykjabæ var ekki nema skammt að fara í grasaland, en meiri munu grösin hafa verið á ýmsum stöðum lengra frá. Vafalaust hefur Sigurður og fjölskylda hans notað grösin mikið til búdrýginda. Skortur á neyzluvatni hefur jafnan verið talinn mikill ókostur á Þeista- reykjum. í jarðabók Árna Magnússon- ar segir svo um eyðibýlið Þeistareyki: „Vatnsból er ekkert utan ein leir- tjörn, sem stundum þornar". Sú tjörn er enn við lýði, nokkurn spöl frá bæjar- stæðinu. Hún er grunn og hefur að lík- indum grynnkað frá dögum Árna. Það er afar ólystugt vatnsból. Annað vatns- ból er þar þó, en langan spöl frá og illt aðgöngu. Er það undir gjávegg og þarf að klöngrast yfir stórgrýti, langt niður í jörðina meðfram gjáveggnum til þess að ná vatninu. Eitthvað mun hafa verið sótt af drykkjarvatni þangað, en þó lítið, því að það var bæði tímafrekt og erfitt. Skömmu eftir að Sigurður kom að Þeistareykjum gerði hann tilraun til þess að grafa brunn í brekkuhalla skammt neðan við bæinn. Þarna reynd- ist grunnt á vatn, ekki dýpra en svo, að seilast mátti af brunnbarminum niður í vatnið. Þarna hafði Sigurður síðan vatnsból sitt og hlóð brunninn innan með hraungrjótí. Ekki var vatnið álit- legt við fyrstu sýn, því að það var volgt og sterkur hvera- eða brennisteins- keimur af því og heldur leitt til neyzlu. Fljótlega komst þó fólkið að því, að ef vatnið úr brunninum var látið standa Sigurður Sigurðsson. í opnu íláti og kólna vel, hvarf af því brennisteinskeimurinn og reyndist þá bragðgott. Sá ókostur fylgdi þó þessum brunni, að í volga vatninu þreifst ágæt- lega slý og ýmis vatnsgróður. Þess vegna þurfti að ausa úr brunninum og hreinsa rækilega ' nokkrum sinnum á ári ef vel átti’að vera. Eftir að byggð lagðist niðúr á Þeista- reykjum, var bfunnurinn notaður sein vatnsból, af gangnamönnum og:'öðrum ferðamönnum, sem leið áttu þar um, en ekki var hirt um að hreinsa þann og varð vatnið í honum fljótlega ókræsi- legt. Seinna kom upp kvittur, að ein- hverjir, sem; fóru um, hefðu umgengizt brunninn óþverralega. Þá mun hafa verið hætt að nota hann. \ Sigurður lagði kapp á að fjölga fé sínu rneðan hann var á Þeistareykjum og var þá oft fremur lítið lagt til bús af kjötmeti að haustinu. Reyndi hann því jafnan, að afla matar til heimilisins að öðrum leiðum, því illa kunni hann því, að heimilisfólk hans þyrfti að líða skort, eða að ekki væri hægt að seöja gest, ef að garði bar. Þess vegna stundaði hann dcrgveiði í Mývatni eitthvað hvern vetur meðan hann var á Þeistareykjum. Líklega hef- ur það verið síðasta vetúrinn, að hann var 12 vikur samfleytt við dorgveiði. Hélt hann þá til ó Syðri-Neslöndum og lifði hann þá að mestu á silungi, sem var soðinn fyrir hann og drakk soðið með. Á hverjum laugardegi hélt hann heimleiðis til þess að vita hvernig liði heima. Bar hann þá með sér siginn sil- ung, svo sem honum þóttl þægilegt. Síðdegis á sunnudögum lagöi hann svo af stað fram í sveit til þess að vera tilbúinn að hefja veiðar í birlingu á mánudagsmorgun. Þegar setið \rar við dorgveiði dag- langt, urðu menn að vera vel og þykkt klæddir, því að frostið var áleitið, en óheppilegt þótti að hreyfa sig mikið við vökina því að það gat fælt silunginn fró. Flestir munu hafa haft þann sið, að binda gæruskinn á bak sitt og snúa ullinni inn. Þar yfir klæddu mcnn sig í hríðarúlpu eða hríðarhempu. Þær flík- ur voru úr þykkum og þéttum striga, eða úr togdúk, og voru ætlaðar til að verja innri fatnaðinn fyrir snjó. Þega/' komið var á veiðistöðvarnar varð að hreinsa krap og ísskæning af dorgvök- inni, eða höggva nýja vök. Oft var sama vökin notuð dag eftir dag ef hún reynd- ist, sæmilega aflasæl. Síðan settist hver við sína vök. Flestir höfðu með sér skrínu undir silunginn. Hún var með burðarhanka og var borin á bakinu til og frá veiðunum. Meðan setið var á dorginni var skrínan notuð fyrir sæti og breiddu sumir poka eða annað slíkt á ísinn undir fætur sér, til varnar gegn fótakulda. Oft var það, þegar menn höfðu Setið lengi og fór áð kólna, að menn hættú veiðum í bili, gengu saman í hópa og flugust á, eða reyndu sig í öðrum íþi'óttum, þangað til þeim hitn- aði. Stundum var glímt, en líklega þó sjaldan, því að dorgbúningurinn hefur sennilega ekki verið heppilegur glímu- búnaður. Svo er frá sagt, að einhvern laugar- dag, þegar Sigurður ætlaði að leggja af stað heimleiðis, a'ð þá var brostin ó stórhríð, svo liann hætti við að fara; vildi ekki leggja norður heiðina, undir nótt í slíku veðri, en hugðist taka dag-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.