Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 36

Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 36
36 JÓLABLAÐ DAGS í KAUPAVINNU AI) HVANNÁ Minningaþáttur eftir Bjarna Ilalldórs- son, fyrrum skrifstofustj. á Akureyri ÞAÐ var árið 1908. Ég var orð- inn sextán ára og hafði fcngið þá grilln í. höfuðið, að nú þyrfti ég að betrumbæta þekkingu mína í al- mennum fræðum. En það kostaði peninga, og þeir voru engir fyrir hendi. Ég ræddi þetta við fóstru mína, og luin stakk upp á því, að ég réði mig hjá vandalausum upp á kaup. Bóndi hennar studdi það ráð. Þá var talsvert um það austan- lands, að bændur héldu vinnuhjú, sem tóku allt sitt kaup í fóðrum og fatnaði, cn fátt um kaupafólk, enda bændum hvorki létt né Ijúft að greiða fólki peninga. Þetta leit því ekki sem bczt út fyrir mig. Þó bauðst mér nolckru síðar að gerast kaupamaður lij;í Jóni bónda og al- þingismanni að Hvanná, og tók ég því boði fegins hcndi. Hvannárbóndinn hafði gert mér orð að hitta sig á frámbóðsfundi við Lagarfljótsbrú seint í júlí, en þetta sumar stóðu alþingiskosningar fyr- ir dyrnm, og Jón á Hvanná í fram- boði. Við urðum þrír sámferðá frá Lagaffljótsbrii norður á Jökuldal, því að Jón á Hvanná var ekki að- cins að taka á móti nýjum kaupa- manni, heldur einnig nýjtim sókn- arpresti, séra Haraldi Þórarinssyni, scm var að taka við Hofteigspresta- kalli og lengi átti síðan eftir að þjóna þar. Jón á Hvanná mun á Jtessum ár- um hafa verið talinn til stórbænda þar á Dal, en þéá verður heimilis- fólk hans ekki talið neinn fjöldi. Auk hjónanna og þriggja barna þéirra, en þau voru þá öll nokkuð innan við fermingu, voru þarna , tengdaforeldrar Jóns, Kristján Kröyer, og kona lians, Margrét Þor- grímsdóttir. Þá voru á heimilinu ein kaupakona, einn kaupamaður að hálfu og ég. En þá er fólkið upp talið. Fyrsta verk mitt á Hvanná var að hjálpa til við rúninginn á ánum. En á því verki var sá háttur hafður, sem einnig tíðkaðist á Héraði og víðar, að ánum var stíað í vikutíma eða svo, og voru þær svo rúnar í ígripum kvölds og rnorgna, sérstak- lega á kvöldin, en setið yfir þeim á daginn. Fráfærur voru þá lagðar niður á flestum bæjum, cn Jretta enn alsiða. Féð var þá rekið heim á kvöldin og ærnar látnar hlaupa stekk eins óg það var kallað, Jr. e. lömbin tekin ’frá þeim yfir nóttína. Ærnar voru 1 svo mjólkaðar að morgnimtm óg látnar lemlja sig, ]r. e. finna lömb sín, mcð miklum jarmi. Eg kunni strax vel við mig parna á Hvanná. Niður árinnar fannst mér svo seiðandi og jafnframt ró- andi, að hvergi hef ég sofið værar eftir erilsaman dag en á Hvanná. Túnaslátturinn er mér minnis- stæður. Það var sterkjuhiti og sól- skin á hverjum degi, cn mikið dögg fall um nætur. Við vorum því vaktir kl. 5 til að fara út að slá, fengum kaffi kl. 7 og morgunmat kl. 10., Svo fengum við oftast kafli um liádegi. Kl. 2 var svo kallað á okkur til miðdegisverð- ar, og eftir máltíð liigðum við okk- ur og sváfurn til kl. 5, en þá fengum við kaffi með kandís. Kl. 8—9 var svo kvöldmatur borðaður o«' hvílt o sig klukkustund. Þá var aftur farið út að slá og staðið til kl. 12 eða 1, en ]>á var oftast bezt að slá. Þessi vinnuháttur var aðeins hafður með- an við vorum að slá túnið, og mun ]>að mest hafa skapazt af hinum rniklu þurrkum, sem stóðu þennan tíma. Taðan var þurrkuð jafnóð- um og sett í bólstra. Beið hún þar, þangað til mestur hluti túnsins var sleginn. Þá var farið að binda liana og bera heim í kúahlöðuna. Hvers vegna liestar voru ekki sóttir, veit ég ekki, en sennilega hefur það þótt of mikil töf að lcita uppi hestana, sem ætíð voru langt uppi í fjalli, sem kallað var. Baggaburðurinn var mér erfiðastur af öllu, sem ég varð að gera þetta sumar. Eg ætlaði oft að leka niður á miðri leið, enda var ég ekki fullþroskaður og mjög kraftasmár. Jón mun hafa séð, livað mér leið, og valdi mér því léttustu baggana. Eftir túnasláttinn fór Jón í framboðsfundahöld og var í þeim leiðangri í rúman mánuð, kom að- eins heim stöku sinnum á því tíma- bili. Kona hans, Gunnþórunn, og faðir hcnnar Kristján Kröyer, sögðu fyrir verkum á þessu tímabili. Kröyer hafði verið mikill búmað- ur og atorkumikill, en nú var hann þrotinn að kröftum og bar ekki við að snerta orf. Hann gekk þó að rakstri, þegar verið var að þurrka heima við. Margrét kona hans hafði verið búkona mikil og ýtin við vinnufólk sitt. Hún tók nú aðsegja mér fyrir verkum. Ef hún sá mig koma inn og tylla mér, þá sendi hún mig eftir taði eða afraki, lét mig bera út skolp o. s. frv. Ég gerði þetta möglunarlaust og lét aldrei

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.