Dagur - 22.12.1965, Side 37
JÓLABLAÐ D AGS
37
á mér hcyra annað cn ég væri henn-
ar hjú. Þá leið ekki á liingn, þar til
hún fór að hygla mér með mat frá
sér (sem auðvitað þurfti ekki, því ég
fékk nóg að borða). Hún kallaði
mig fram til sín og gaf mér spen-
volga mjólk og kleinur eða kringl-
ur úr kistu sinni.
Hálfum mánuði eftir að ég kom
í kaupavinnuna að Hvanná var
brúðkaupsveizla haldin á Hafra-
felli. Þar gifti sig Runólfur Bjarna-
son, en hann var sonur fóstra míns,
og þá orðinn 43 ára gamall, en
brúðurin var 20 árum yngri. Þetta
var mjög fjiilmenn og rausiiarleg
brúðkaupsveizla. Runólfur skrifaði
mér og bauð mér að koma austur
þ’ennan dag. En bréfið komst ekki
til skila til mín fyrr en daginn eftir
brúðkaupið. Eg varð fyrir miklum
vonbrigðum.
Hinumegin við Jijkulsána, aðeins
innar en á móts við Hvanná, stend-
ur bærinn Skeggjastaðir. Bæirnir
blöstu svo hvor við öðrum, að svo
mátti heita, að allt, sem gerðist á
öðrum bænum, sæist frá hinum.
Bæði hoiðtL þessi heimili verið um
langa tíð hin mestu forstands-heim-
ili og háðu nokkra keppni í vinnu-
brögðum úti við. Einnig var
sagt, að gömlu húsfreyjurnar hefðu
metizt á um það, hjá hvorri sæist
fyrr rjúka úr eldhússtrompinu á
morgnana, og hefur sennilega ekki
verið langur nætursvefn hjá þeim
á sumrin. Gamalt vað var á Jökulsá
undan Hvanná, en nú vár það víst
sjaldan íiotað, enda ekki fært, nema
áin væri mjög lítil. I>ó' kom það
fyrir einu sinni þetta sumar, að ég
fór með Jóni bónda þar yfír. Atti
hann eitthvert erindi í Skeggjastaði
og bauð mér með sér. Þá var áin
Htil, vel í kvið, þar sem hún var
dýpst.
Yið útengjaheyskap vorum við
sjaldan fleiri en fjögur og stundum
bara þrjú. Heyið var oftast flutt
heim í votabandi og þurrkað á ttin-
inu. Það kom vanalega í minn hlut
að leita að hestúnum, og var Jrað
góður viðbætir við langan vinnu-
dag. Mér er sérstaklega minnisstæð-
ur einn dagur seint í ágústmánuði.
Ég var sendur eftir hestunum, sem
ævinlega voru einhversstaðar uppi
í fjalli. Á leið minni voru gömul
beitarhús, sem nú var hætt að nota,
en þ(j var Jrar eitf hús ennþá, sem
stóð uppi og með þaki. Við þetta
hús var heyhlöðutóft með heilum
veggjum og nokkuð niðurgrafin.
Fé gat allsstaðar komizt upp á Jressa
veggi utan frá.
Leið mín lá nokkuð frá beitar-
húsunum, en Jregar ég var kominn
upp á móts við Jrau, tók ég eftir, að
ein kind stóð uppi á hliiðuveggnum
og horfði niður í tóftina. Ég stanz-
aði og veitti kindinni betur athygli.
Hún var eitthvað að snúast Jrarna,
og þegar hún kom auga á mig,
jarmaði hún svo sárt, að mér datt
strax í hug, að Jretta mundi vera
dilkær, og dilkurinn hefði kannski
óyart fallið inn í tóftina. Ég beygði
af leið og stefndi á húsin. Þegar ég
kom nær Jreim, sá ég, að þetta var
geld kind, áem stóð uppi á hlöðu-
veggnum, og Itugsa með mér, að
það taki því ekki að fara þennan
krók. Þá jarmaði kindin til mín í
annað sinn, svo ég hljóp heim að
húsunum og stökk upp á hlöðu-
vegginn. Aldrei gleymi ég þeirri
sjón, sem Jrar blasti vjð mér. Átta
kindur voru Jjarna niðri í hlöðu-
tóftinni, fjórar Jteirra voru sýnilega
nýlega komnar Jjarna niður, cn hip-
ar áreiðaitlega hírzt þarna^lengi
sumars. Það' hafði verið hlaðið npp
í dyrnar á milli fjárhússins og hlöð-
unnar, svo kindurnar voru alger-
lega innilokaðar. Mér varð Jrað
fyrst fyrir að stiikkva niður í tóft-
ina og rífa í flýti burtti hleðsluna,
senr var í dyrunnm. Cíekk Jrað fl jótt.
Svo rak ég kindurnar fram í hús-
garðann, og 4 Jreirra stukku yfir
garðabandið og út. En hinar stóðu
kyrrar. Þær treystust ekki til að fara
hjálparlaust lengra. Ég térk Jrær all-
ar niður og undraðist, hvað þær
voru léttar. Þegar þær voru kontn-
ar út, skokkuðu tvær þeirra á eftir
hinum, og það gutlaði í Jreim eins
og í blöndukút. Tvær voru enn
verr farnar, en fóru samt strax að
kroppa við húsdyrnar. Þarna varð
ég að yfirgefa Jressar kindur og veit
ekkert um afdrif Jjeirra. En ég vona
að þær hafi allar náð sér.
Sumarið leið. Vegna framboðs*
funda varð bóndinn oft að vera
fjarvistum frá heimilinu. Það kom
stundum fyrir, eftir'að engjahey-
skapur byrjaði, að ég stóð einn við
slátt. Kaupakonan rakaði, og oft
var gamli Kröyer líka að raka með
henni. En börnin færðu okkur mat
og kaffi. Þau voru prúð og vanin
við að vinna. Drengirnir voru litlir
og ekki til annars en smásnúninga
heimafyrir. Dóttirin var dálítið
eldri og mikið fyrirmyndarbarn.
Oftast mun hún hafa farið á milli
með heybandslestir. En þá mátti
ekki hallast á, eða baggar vera illa
bundnir, enda man ég ekki eftir
nokkru óhappi í Jreim ferðum. Var
Jaað ugglaust Jrví að Jrakka, að vel
var búið upp á, og barnið gætið
sem fullorðið væri.
Svo allt í einu var komið fram að
fyrstu göngum, og ráðningartíminn
liðinn.
Égjbjó mig til ferðar. Húsbónd-
inn greiddi mér skilvíslega kaupið,
sem var 10 þrónur.fyrir hverja viku.
Ég kvaddi alla með hlýhug óg góð-
um minningum. Sérstaklega var
mé)r fari().að þykja.vænt um gömlu
konuna, sem í fyrstu mátti ekki sjá
mig iðjulausan, en síðar vildi hygla
mér á margan máta. Blessuð sé
hennar minning. Þessir fyrstu pen-
ingar, seinæg vann mér inn á lífs-
leiðinni urðu mér happadrjúgir.
Þeirra vegna gat ég hafið nám í
búnaðarskólanum á Eiðum. F.n það
er önnur saga.