Dagur - 18.12.1981, Side 5
Skjaldbökubækur
Höf.: Bjarni Ingi Jónsson
Útg.: Bókaútg. Salt hf.
Bókaútgáfan Salt hefur sent frá sér
svonefndar Skjaldbökubækur, sem
ætlaðar eru yngstu lesendunum eða
til lestrar fyrir þá. Eru bækurnar
seldar sex saman í öskju eða hver
bók fyrir sig.
í bókunum segir gamla skjald-
bakan Spakur sonar-sonarsyni sín-
um Hægfara ýmsar sögur og má
draga einhvern lærdóm af hverri
sögu. f bókarlok er bent á hvers
kyns sá lærdómur er og er þar t.d.
minnt á nokkrar af dæmisögum
Biblíunnar. Sheila Groves er höf-
undur textans en myndirnar teikn-
aði Gordon Stowell.
Skjaldbökubækurnar heita:
Allra fugla fremstur, Bjalla bætir
ráð sitt, Broddi og boðorðin,
Leyndardómur Kalla, Speki Sal-
ómons og Stökkfimur snýr aftur. .
Bækurnar eru gefnar út í sam-
vinnu við Angus Hudson í London.
Setning texta fór fram hérlendis en
prentun þeirra í Bretlandi í sam-
vinnu margra þjóða.
Hafnfirðingur var eitt sinn far-
þegi í bíl á leið til Akureyrar.
Þegar komið var í Hrútafjörðinn
veitti bílstjórinn því athygli að
stefnuljósið blikkaði ekki í mæla-
borðinu þegar hann gaf bíl sem á
eftir ók, merki um að fara fram
úr. Hann spurði því Hafnfirðing-
inn hvort hann vildi ekki ganga út
fyrir og segja sér hvort stefnuljós-
in virkuðu. Var það auðsótt mál,
Hafnfirðingurinn snaraði sér út
leit á stefnuljósin og sagði: „í
lagi, ekki í lagi, í lagi, ekki í
lagi........“
VÍSNAÞÁTTUR
Hjálmar Jónsson
Ljáðu faðir Ijósogyl
landinu mínu kalda “
Tíminn líður og fer ekki fram hjá
neinum lengur að jólin eru á
næsta leiti. Þau eru að venju
undirbúin með talsverðum
handagangi. Ekki skal sá undir-
búningur gagnrýndur hér að ráði.
En það vil ég benda á, að þau jól,
sem eru undirbúin með höndun-
um einum eru fljót að fjara. Nú er
mér ekki kunnugt um það, hvað
og hvemig aðrir hugsa til jólanna.
En af viðbrögðum við nánd jól-
anna má margt ráða. Kristján
Ólason orti eitt sinn í gamni við
kunningja sinn:
Þegar hann er fallinn frá
fólkið ber f minni
viðbrögð snögg, og oftast á
undan hugsuninni.
Vonandi verður þetta ekki sagt
í alvöru um okkar kynslóð.
Sveinn Hannesson frá Elivogum
hugsar um straumharðan timann
og kveður svo á jólum:
Stanslaust kastar straumurinn
steinum fram í ósinn.
{ þritugasta og sjötta sinn
sé ég jólaljósin.
Snúum okkur þá að jólaljósinu.
Því ljósi, sem við ekki gerum með
eigin höndum, og að þeirri dýrð,
sem við búum ekki til, en fáum að
njóta. Nálægð Krists gefur ljós.
Hann ber birtu, bregður upp ljósi
í sál þinni. Hann gefur þér að sjá
skýrar það, sem endranær er í
óljósri mynd í þínum huga, eða er
þar alls ekki. Hann getur gert þig
að ljósi og ekkert vill hann frem-
ur. Hann getur gert þér fært, að
bera öðrum birtu. Sr. Kjartan
Helgason í Hruna er höfundur
eftirfarandi bænar. Hann mun
hafa ort hana skömmu eftir alda-
mótin:
Ljáðu faðir Ijós og yl
landinu mínu kalda,
og lof mér þvi mig iangar til
á Ijósinu einu að halda.
Jón Bergmann varð þess var er
himneskt ljós lýsti ský. Hann fann
nælægð Krists á jólum og orti
vísu, sem hann nefnir „Jólagest-
ur“:
Hreinni andi og hlýrra mál
helgar Guði daginn,
þvf ég finn að sólrík sál
sendir geisla í bæinn.
f beinu framhaldi gæti Jón
Bergmann hafa ort eftirfarandi:
Jólaóskir eru gjaman sendar í
bundnu máli. Slíkar kveðjur eru
fallegar og persónulegar. Jó-
hannes Benjamínsson frá Halt-
kelsstöðum sendi mér fyrir
tveimur árum, þetta erindi á
jólakorti:
Kærleiksverkin göfg og góð
geymast ævi lengur.
Betri hverjum silfursjóð,
sem f banka gengur.
Ekki veit ég um höfundinn að
næstu vísu. Vil ég því biðja les-
endur að vera mér hjálplega og
upplýsa mig um hann:
Þó að fjúki fönn i skjól
fölni allt, sem lifir,
hillir undir heilögjól
hæsta tindinn yfir.
Markús Jónsson, Borgareyrum
sendi einhverju sinni vinum sín-
um þessa jólaósk:
Vetrarmyrkrið víkja fer,
vermir aftur sólin.
AUt, sem gott og göfugt er
gleðji ykkur um jólin.
Sálmasöngur ómi
signi dal og fjörð,
allir einum rómi
efli bænagjörð.
Dýrðin Drottins Ijómi,
dvini élin hörð.
Kirkjuklukkur hljómi
kalli frið á jörð.
Gleðileg jól í Jesú nafni.
Hjálmar Jónsson, Sauðárkróki.
FLYTUR FÉLAGSMÖNNUM SÍNUM, FJÖLSKYLDUM
— - ÞEIRRA, SVO OG HINUM MÖRGU
VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM UM LAND ALLT,
W\ ....be/tu þakkÍE-fyrir viðskiptin
w * á liðna árinu, og óskar öllum
18. desember 1981 - DAGUR >5