Dagur - 18.12.1981, Blaðsíða 10

Dagur - 18.12.1981, Blaðsíða 10
EFNI FYRIR BÖRNIN LITLA JÓLASTJARNAN Einu sinni var lítil stjarna. Hún var svo anga lítil, að hún var lang minnsta stjarn- an á öllum himninum. Aumingja litla stjarnan, hún var ósköp leið yfir þessu. — Af hverju þarf ég endi- lega að vera svona pínu lítil en allar hinar stjörnunar svona stórar og fallegar, andvarpaði litla stjarnan döpur í bragði. En hinar stjörnurnar reigðu sig allar og lýstu svo rnikið, að fólkið niðri á jörð- inni sagði: — En hvað himininn er stjörnubjartur og fallegur í kvöld. Svona höfum við al- drei séð hann áður. Og allir Stjörnufræðingarnir sögðu hver við annan: — Þetta er furðulegt, al- deilis furðulegt. Þeir gátu ekkert annað sagt. — Mikið vildi ég, að ég væri svolítið stærri og fall- egri, hugsaði litla stjarnan. Þá gæti ég lýst alla leið til jarðarinnar. Og hún stundi þungan. — Af hverju ertu svona döpur, litla stjarna, spurði lítið snjóský, sem átti leið þar framhjá rétt í þessu. — Hún er svo lítil, litla greyið, sagði stór stjarna, sem var þar nærstödd. — Það sér mig enginn, sagði litla stjarnan hrygg. — Ég er engum til gagns. Og lítið tár læddist niður eftir henni. — Heyrðu mig, hlustaðu nú vel, sagði litla snjóskýið. — Ég veit hvað þú skalt gera. Þú skalt setjast á mig og ég skal svífa með þig nær jörðinni. Eftir því sem nær dregur verðurðu stærri og stærri í augum jarðarbúa og ef til vill veitirðu birtu, ein- hverjum, sem þarfnast hennar. Litla stjarnan varð himinglöð. Hún flýtti sér að setjast á snjóskýið og svo svifu þau af stað. Þau fóru hraðar og hraðar. Stóru stjörnurnar skildu ekkert í þessu og litu undrandi hver á aðra. — Hvað gengur eigin- lega á? spurði ein þeirra. — Þetta er litla stjörnu- krýlið, sem var að væla áðan, ég held að hún sé orðin galin, sagði önnur. En litla stjarnan og snjó- skýið skeyttu ekkert um hvað hinar stjörnurnar sögðu. Þau létu sem þau heyrðu það ekki. Þegar þau nálguðust jörðu, fór snjóskýið smám saman að draga úr þraðan- um. Loks staðnæmdist það alveg. — Þetta var garhan, sagði litla stjarnan glöð í bragði. — Ég hélt um stund, að ég mundi fjúka af þér, við fór- um svo svakalega hratt. En niðri á jörðinni, stóðu Heiðdís Norðfjörð stjörnufræðingarnir alveg agndofa. — Ég hef fundið nýja stjörnu, sagði einn þeirra spekingslega. — Hún er alveg frábær, alveg stórkostleg. Hún er stærri en allar hinar. Hann stóð við stóra stjörnu-sjón- aukann og vildi helst ekki leyfa öðrum að komast að, því að hann var svo æstur. — Má ég sjá, má ég fá að sjá, hrópuðu hinir stjörnu- fræðingarnir hver í kappi við annan. ..... En í dimmum og draugalegum skógi, langt, langt fjarri öllum manna- byggðum, var lítill drengur einn á ferð. Hann var orðinn rammvilltur og vissi ekkert hvernig hann átti að rata heim til mömmu sinnar. Myrkrið var svo kolsvart, að hann sá ekki einu sinni niður fyrir fætur sér. Hann var alltaf að detta og hann grét hástöfum, auminginn litli. En nú víkur sögunni aftur til litlu stjörnunnar og snjó- skýsins. — Mér heyrist einhver vera að gráta, sagði litla stjarnan. — Heyrir þú ekkert? Snjóskýið hlustaði og hlustaði. — Nei, jú, nú heyri ég eitthvað. Nú heyrðu þau greinilega að einhver kallaði: — Mamma, mamma mín. — Við verðum að athuga þetta nánar, sagði litla stjarnan. Snjóskýið færði sig aðeins neðar og í sömu svif- um kom tunglið þeim til hjálpar. Það lét einn af litlu geislunum sínum lýsa á snævi þakinn skóginn, þar fyrir neðan. Þá komu þau auga á Iitla drenginn, sem rataði ekki heim til sín. Hann stóð þarna svo aleinn og umkomulaus, grátandi á og kallaði mömmu sína. — Ég ætla að hjálpa hon- um, sagði litla stjarnan ákveðin. — Já, það skaltu gera, sagði snjóskýið. — Á meðan fer ég í smá flugferð, bætti það við og þaut á brott með ógnarhraða svo að það stóð strókur aftur úr því. Litla stjarnan kom sér nú vel fyrir. Síðan lýsti hún eins vel og hún mögulega gat, niður á dimma skóginn, svo að þar varð skínandi bjart. Litli drengurinn horfði undrandi í kringum sig. Allt var orðið breytt og undur fallegt. Það glampaði á snjó- inn, svo að snjókornin litu út eins og milljónir glitrandi demanta. Og þegar drengur- inn leit upp í stórt grenitré. sem stóð þar skammt fra‘ sá hann stóra blikandi stjörnu, sem sat á toppnum á því. — Nei, sko, hrópaði hann glaður, — þetta er jóla- stjarnan, nú rata ég heim til mömmu minnar, því að blessuð stjarnan, vísar mér veginn. Svo hljóp hann af stað, léttur í spori og var von bráðar horfinn úr augsýn. Litla stjarnan varð óumræðilega glöð. Nú hafði hún gert gagn og það þegar jólin sjálf voru í nánd. Hún hlaut að vera jólastjarna. Köttur út í mýri setti upp á sér stýri, úti er ævintýri. En auðvitað var þetta bara ævintýrastjarna. Þið vitið öll, að hin raunverulega jólastjarna var sú, sem vísaði vitringunum veginn að fjár- húsinu í Betlehem, þar sem Jesúbamið fæddist, hina fyrstu jólanótt. Frumsamið Heiðdís Norðfjörð. Kennarinn: Á hverju þekkir þú kú? Óli litli: Hún er með brjóstin á maganum. * Kennarinn: Hvers vegna komstu ekki í enskutímann í gær, Einar? Einar: Ég var svo kvefaður, að ég gat ekki einu sinni talað íslensku, hvað þá ensku. * Kennarinn (í dýrafræðitíma): Getur þú, Júlíus litli, nefnt nokkurt tannlaust dýr? Júlíus: Langömmu mína. Nanna litla er þriggja ára. Hún hlustar mikið á útvarp. Ekki aðeins bamatíma, heldur allskonar tónlist, fyrirlestra og fréttir. Hún hlustar einnig á þulinn, sem kynnir dag- skrána. Kvöld eitt, er hún liggur í rúmi sínu og hefur lokið við að fara með kvöldbænina sína, þegir hún litla stund, en bætir síðan við: Næsta kvöld klukkan 19, send- um við sömu dagskrá frá sömu .mustöð. Jólagjöf til mömmu Magga hlakkaði mikið til jól- anna. Þá fengi hún jólagjafir, jólaföt og jólamat. Möggu langaði mikið til þess að gleðja mömmu sína með því, að gefa henni sjálf jólagjöf. En viti menn, hún ætlaði að gefa mömmu kristalsvasa. En hún vissi, að hann var alltof dýr. Þá ákvað hún að gefa henni eitt- hvað annað, kannski hálsfesti. Nei, hálsfestin var líka of dýr. En bók? Já ... hún hljóp upp í herbergið sitt, tók sparibaukinn sinn og skar gat á hann. Hún tók peningana og taldi þá. Hún átti nóg fyrir einni bók. Hún labbaði niður í bæ. Hún keypti bókina um Snorra Sturluson. Sú bók kostaði 200 krónur en Magga átti 213 krónur. Síðan labbaði Magga heim og faldi pakkann. Loksins komu jólin. Magga tók pakkann og skrifaði utan á hann til Mömmu frá Möggu. Um kvöldið tóku þau upp pakk- ana. Magga sagði: — Hér kemur pakki til þín mamma mín, hann er frá mér. — — Frá þér? ■— Já, sagði Magga. Bæði mamma og pabbi urðu himinglöð. Höfundur: Halldór Jóhannsson, 9 ára. 10- DAGUR - 18. desember 1981

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.