Dagur - 18.12.1981, Page 13
Jólamyndimar
Bláa
lóníð
í Nýja
biói
Jólamyndin í Nýja bíó á Akur-
eyri að þessu sinni er banda-
ríska myndin „The Blue
Lagoon“ eða Bláa Lónið eins
og hún heitir í íslenskri þýð-
ingu.
Þessi mynd hefur allsstaðar
verið sýnd við metaðsókn, en
myndin lýsir á hrífandi hátt lífi
tveggja ungmenna sem verða
strandaglópar á eyðieyju, baráttu
þeirra við að halda í sér lífinu og
ástum þeim er kvikna í brjóstum
þeirra.
I aðalhlutverkunum eru
barnastjarnan Brooke Shields og
Christopher Lee. Þetta er afar
skemmtileg og hrífandi mynd
sem hefur verið sýnd í margar
vikur í Stjörnubíó í Reykjavík við
mikla aðsókn.
Faldi fjár-
sjóðurinn
Barnamyndin í Nýja bíó að þessu
sinni er Walt Disney myndin
„Faldi fjársjóðurinn". Eins og
aðrar Disney myndir er hér um að
ræða mjög athyglisverða barna-
mynd, spennan er mikil og sögu-
hetjurnar rata í mörg skemmtileg
ævintýri áður en yfir lýkur. Þessi
mynd verður sýnd kl. 15 á 2.
jóladag.
Bræðumir ræða málin i rúminu.
JÓN ODDUR OG
JÓN BJARNI
Kvikmyndin Jón Oddur og Jón
Bjarni verður frumsýnd á ann-
an dag jóla í Háskólabíói í
Reykjavík og i Borgarbíói á
Akureyri.
Myndin er byggð á sögum
Guðrúnar Helgadóttur og fjallar
um þá tvíburana Jón Odd og Jón
Bjarna og fjölskyldu þeirra. Að-
alhlutverkin leika tvíburarnir Páll
og Wilhelm Jósef Sævarssynir.
Foreldrana leika þau Steinunn
Jóhannesdóttir og Egill Ólafsson.
Herdís Þorvaldsdóttir leikur
ömmu dreka og Sólrún Yngva-
dóttir Ieikur Soffíu. Gísli
Halldórsson leikur Kormák afa,
sem allt í einu skýtur upp kollin-
um á heimilinu eftir langa fjar-
veru.
Alls fara um 30 leikarar með
hlutverk í myndinni og um 200
aukaleikarar koma fram.
Eins og fyrr segir byggir
myndin á bókum Guðrúnar
Helgadóttur, en söguþræði þeirra
er ekki fylgt nákvæmlega og
einnig koma fyrir atvik, sem ekki
eiga sér fyrirmynd í bókunum.
Kvikmyndin um Jón Odd og
Jón Bjarna er breiðtjaldsmynd í
litum, sem tekin var upp á tíma-
bilinu maí-júlí s.l. sumar.
Við kvikmyndatökuna voru
notuð afarfullkomin tæki sem
leigð voru hingað frá Þýskalandi.
Heildarkostnaður við . gerð
myndarinnar nemur um þremur
milljónum Nýkr.
Tónlist er eftir Egil Ólafsson,
kvikmyndatöku annaðist Baldur
Hrafnkell Jónsson, hljóðupptöku
Friðrik Stefánsson, klippingu
Kristín Pálsdóttir, búninga Sól-
veig Eggertsdóttir og leikmynd er
eftir Þorgeir Gunnarsson, Guð-
jón Pedersen og fleiri.
Aðstoðarleikstjóri er Tinna
Gunnlaugsdóttir. Handrit er eftir
Þráinn Bertelsson, sem einnig
annaðist kvikmyndastjórn.
Framkvæmdastjóri er Helgi
Gestsson, en myndin er fram-
leidd af NORÐAN 8 hf.
„Supennan 11“
önnur jólamyndin f Borgarbíó
er myndin um þann snjalla
kappa Superman og ber hún
heitið „Superman 2“
í fyrri myndinni um Superman
kynntist fólk yfirnáttúrulegum
kröftum hans. I þessari mynd er
atburðarrásin hinsvegar mun
hraðari, og Superman þarf oft á
öllum þessum kröftum sínum að
halda. Myndin um Superman
verður sýnd í fyrsta skipti kl. 9 á 2.
dag jóla.
15.00 Jólakveðjur til sjómanna á
hafi úti. Margrét Guðmunds-
dóttir og Sigrún Sigurðardóttir
lesa.
16.20 „Nú líður senn að jólum“.
Barnakór syngur jólalög.
17.00 Hlé.
18.00 Aftansöngur í Dóm-
kirkjunni. Prestur er sr. Þórir
Stephensen sem þjónar fyrir
altari ásamt sr. Hjalta
Guðmundssyni.
19.00 Jólatónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands.
20.00 Jólavaka útvarpsins.
Tónlistar- og dagskrárdeild
standa að þætti og velja efni til
flutnings.
22.00 Messa í sjónvarpssal. Biskup
íslands, herra Pétur Sigurgeirs-
son.
Föstudagur 25. des.
(Jóladagur).
10.45 Klukknahringing.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Grensássóknar, prestur sr.
Halldór Gröndal.
13.00 Messías. Rut L. Magnússon,
Elín Sigurvinsdóttir, Garðar
Cortes, Halldór Vilhelmsson,
kirkjukór Langholtskirkju og
Cammersveit flytja undir stjórn
Jóns Stefánssonar (fyrri hluti).
14.30 „Líf og saga“. Þáttur um
innlenda og erlenda merkis-
menn og samtíð þeirra. 10.
þáttur, Tómas Sæmundsson.
15.40 Píanókonsert í g dúr númer
17 eftir Mozart.
16.20 „Við jólatréð". Barnatími í
Útvarpssal.
17.45 Messias (siðari hluti).
19.25 Einar Jónsson myndhöggv-
ari, Gunnar Stefánsson les úr
bók Einars „Skoðanir" og
Ólafur Kvaran flytur ingangs-
orð.
20.00 Samleikur í útvarpssal.
Guðrún S. Birgirsdóttir og
Snorri S. Birgirsson leika
20.30 „Jólahald í Grikklandi“.
Blandaður þáttur í umsjá Sig-
urðar A. Magnússonar.
21.40 Tónlist frá fyrri öldum.
22.20 Smásaga eftir Gunnar
Gunnarsson.
23.00 „Kvöldgestir“. Þáttur Jónas-
ar Jónassonar.
00.50 Dagskrárlok.
Laugardagur 26. des.
(2. dagur jóla).
9.05 Jólatónleikar frá Berlín.
10.25 Maríudýrkun í sögu og sam-
tíð. Sr. Öm Friðriksson flytur
erindi.
11.00 Messa i kirkju Fíladelfíu-
safnaðarins, Einar Gíslason
prédikar.
13.30 „Dagstund í dúr og moll“,
umsjón Knútur R. Magnússon.
15.00 „Dagskrárstjóri í einu
klukkustund“. Magnús Þórðar-
son framkvæmdastjóri ræður
dagskránni.
16.20 Barnatími.
17.00 Kammersveit Oslóborgar
leikur í Bústaðakirkju.
19.25 „Undir áhrifum". Pétur
Gunnarsson rithöfundur les úr
handriti að eigin skáldsögu.
20.00 Kammerkórinn syngur jóla-
lög frá ýmsum löndum.
20.30 „Frá óbyggðum til Alþingis
með viðkomu í bæjarstjórn".
Pétur Pétursson ræðir við
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum.
21.15 „Töfrandi tónar“. Jón
Gröndal kynnir.
22.00 Þjóðlög.
22.35 „Mitt faðir vor“. Kristján
skáld frá Djúpalæk spjallar við
hlustendur og les ljóð. Einnig
eru flutt lög við ljóð Kristjáns.
23.05 „Jólasyrpa“. Umsjón Ásta
R. Jóhannesdóttir, Þorgeir Ást-
valdsson, Páll Þorsteinsson og
Ólafur Þórðarson.
01.50 Dagskrárlok.
Jólin eru hátíð
bamanna
Eigum fjölbreytt úrval af barnafatnaði og leikföng-
um til jólagjafa fyrir börn á öllum aldri.
Gjörðu svo vel að líta inn, það borgar sig.
Ávallt næg bílastæði við KAUPANG.
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og
gæfuríks komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
HORNIÐ s.f.
Sérverslun með barnavörur.
KAUPANGI. Sími 22866
Akureyrarmót
í knattspyrnu
Akureyrarmót í innanhússknattspyrnu verður í
íþróttaskemmunni 28. og 29. desember og hefst kl.
17.00 báða dagana.
Mætum nú öll til að sjá spennandi leiki í knatt-
spyrnu í svartasta skammdeginu og til aó hvetja
ykkar menn.
K.R.A.
Gleðilega jólahátíð
gœfuríkt komandi ár
Innilegar þakkir til allra einstaklinga, félaga
og stofnana sem lögðu gott lið til 17. Lands-
móts UMFÍ á Akureyri s.l. sumar.
Landsmótsnefnd UMFÍ
Viðskiptavinir athugið!
Lokað verður kl. 6 miðvikudaginn 23. des. og lokað
verður milli jóla og nýárs.
Opnum aftur mánudaginn 4. janúar '82.
7’ÍPPfíLRND Tryggvabraut 22, sími 25055
18. de*emt>er<.1981 kDAGUR - 13