Dagur - 17.08.1982, Side 8
HLEKKUR HF
Tökum við efni nú þegar á bóka- og málverkaupp-
boð í október nk. og á frímerkja og myndtuppboð í
nóvember nk.
Skrifstofutími er á mánudögum og miðvikudög-
um frá kl. 17-19 og á laugardögum frá kl. 10-12.
Hlekkur hf. Skólavörðustíg 21 a
sími 91-29820.
Uppboðshaldarar: Hálfdán Helgason og Haraldur
Sæmundsson.
Hentar vel í hvers kyns lóðarvinnu, jöfnun
og margt fleira.
Vanur vélamaður.
MOL&SANDUR HP.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Bændur - Bændur
Ég hef handa ykkur gangnahestinn, þæga og þræl-
duglega klárhryssu í góðri þjálfun.
Upplýsingar í síma 25183 eftir kl. 19.
Iðjufélagar
Eins dags skemmtiferð fyrir aldraða Iðjufélaga
verður farin 22. ágúst til Siglufjarðar og Sauðár-
króks.
Farið verður frá skrifstofu Iðju Brekkugötu 34 kl. 9.
Uppl. á skrifstofunni sími 23621 hjá Leifi sími
21098 og hjá Barböru sími 22080.
Ferðanefndin.
Minning:
f Þorgeir Pálsson
Fæddur 16. desember 1920
Dáinn 3. ágúst 1982
Sauðfjáreigendur
Akureyrardeild KEA
Sláturfjárloforð úr Akureyrardeild þurfa að berast
til mín í síðasta lagi 21. þ.m.
F.h. Akureyrardeildar KEA
ÞóroddurJóhannsson.
Jarðýta til leigu
Pegar Porgeir Pálsson er kvaddur
hinstu kveðju er margs að minn-
ast eftir langa og ljúfa viðkynn-
ingu.
Addi, eins og hann var kallaður
frá því að ég man fyrst eftir, hóf
störf hjá verksmiðjunum í af-
greiðslu Gefjunar í september
1936. Fjórum árum síðar byrjaði
hann í skrifstofu verksmiðjunnar
en þar vann hann til 1974 að hann
tók við bónusútreikningi Gefjun-
ar. Þeim störfum sinnti hann fram
á mitt sl. ár að hann varð að lúta í
lægra haldi fyrir þeim sjúkdómi
sem nú hefir sigrað að lokum.
Árið 1977 var Addi heiðraður
með gullmerki Sambandsins oj
heiðurslaunum fyrir 40 ára störf.
bók sem nefnd er Gullbók Sam-
bandsins eru skráð nöfn og starfs-
saga þeirra sem eiga 40 ár að baki
í starfi. í formála þar segir:
„. . . og síðast en ekki síst hefur
Sambandið allt frá upphafi sínu
haft iðjusömu og trúverðugu
starfsliði á að skipa.
Margt þessa starfsfólks hefur
unnið hjá Sambandinu í áratugi,
gefið því bestu ár, jafnvel megin
þorra starfsæfi sinnar. Hugur þess
og hendur hafa átt drjúgan þátt í
að skapa þetta sterkasta vígi ís-
lenskra alþýðusamtaka.
Svipmót þess og eigindir hafa
meitlast inn í ásýnd fyrirtækisins,
sál þess sameinast verkum ótelj-
andi starfsdaga, eins og góðmálm-
ur í bræðslumóti meistarans.
Á þennan hátt reisa allir góðir
samvinnustarfsmenn sér minn-
isvarða, sem trauðlega lýtur í
lægra haldi fyrir tímans tönn.“
En þessi minnisvarði er sá 700
manna vinnustaður á Gleráreyr-
um sem í dag hýsir fólk, vélar og
framleiðsluvörur á 30 þúsund fer-
metra gólffleti. Pað er löng leið
mæld í árum og árangri frá fyrstu
sporum Adda í verksmiðjunum á
haustdögum 1936.
Gamlar minningar rifjast upp
og kemur Addi þar víða við, ekki
síður í leik en í starfi. Mér er það
t.d. minnisstætt, um og eftir
stríðsbyrjun, að sjá Adda í mark-
inu fyrir KA, en hann var ágætur
knattspyrnumaður, og tók þá við
vandfylltri stöðu af Páli bróður
sínum í meistaraflokki. Pá er
ógetið þess þáttar í lífi Adda, sem
ef til vill var honum mest lífsfyll-
ing, en það var málverkið. Aftur
reikar hugurinn til liðinna daga.
Um langt árabil málaði Addi
hvenær sem stund gafst frá eril-
sömu brauðstritinu. í málverkinu
fengu lausan taum þær ríku til-
finningar sem hann bar til um-
Góð aðsókn
í Borgarbíó
Kvikmyndin „Okkar á milli í
hita og þunga dagsins“ var
frumsýnd á fjórum stöðum á
landinu um helgina, í Reykja-
vík, á Húsavík og á Akureyri.
Eki er hægt að segja annað en
að almenningur hafi þegar sýnt
þessari nýjustu íslensku kvik-
mynd áhuga, því á öllum stöðun-
um mynduðust miklar biðraðir
við miðasölur og var uppselt á all-
ar sýningar. Við Borgarbíó á Ak-
ureyri voru langar biðraðir er
miðasalan var opnuð og seldust
allir miðar upp á svipstundu.
Ekki var annað að heyra á fólki
en það væri ánægt með myndina,
en margir kvörtuðu þó undan
slæmum hljóðburði framan af
myndinni.
Ný sending komin af
May-Fair og Fablon
veggdúk
Margar þykktir, fjölbreytt úrval
Byggingavörudeild
hverfis síns og þar fór líka lita-
gleðin víða á kostum. Minnis-
stæðar eru málverkasýningar,
bæði á Akureyri og í Reykjavík,
og víða á vinnustöðum Sam-
bandsins gleðja listaverk hans
augað. Persónulega man ég best
eftir sýningu í Casa Nova
Menntaskólans í Reykjavík þar
sem við unnum saman að upp-
setningu og ég varð vitni að góð-
um móttökum kröfuharðra höf-
uðborgarbúa.
En það er ein mynd sérstaklega
eftir Ádda sem stendur mér alltaf
fyrir hugskotssjónum. Hún var á
æskuheimili mínu og hét Sólstaf-
ir, stöðug áminning um það að
eftir skúr kemur skin, sólargeisl-
arnir brjóta sér braut í gegnum
dimmviðrið, og að lengi vætir
vonin. Allt þetta er þakkað að
leiðarlokum. Eiginkonan, Ólöf
Sigurðardóttir, ástrík og skiln-
ingsgóð var sá lífsförunautur sem
ekki brást og var þá sterkust þegar
mest á reyndi í langvarandi veik-
indum Adda.
Ólöfu og sonunum Sigurði, Páli
og öðrum skyldmennum er vottuð
einlæg samúð á raunastund. Með
þessum fátæklegu línum er starfs-
félagi og góður vinur kvaddur
hinstu kveðju og honum er beðið
Guðs blessunar.
Jón Arnþórsson.
Bílasala
Bílaskipti.
Stór og bjartur
sýningasalur.
Bílasalan Ós,
Akureyri simi 21430.
Auglýsendur
athugið!
Skilafrestur auglýsinga er þessi:
ÞRIÐJUDAGSBLAÐ:
Allar auglýsingar, nema smáaug-
lýsingar, þurfa að hafa borist blað-
inu fyrir klukkan 15 á mánudegi.
Tekið er á móti smáauglýsingum til
klukkan 17. Auglýsingar sem eru
hálf síða eða stærri, þurfa að hafa
borist fyrir hádegi á mánudegi.
FIMMTUDAGS- 0G
FÖSTUDAGSBLAÐ:
Allar auglýsingar þurfa að hafa bor-
ist fyrir klukkan 15 á miðvikudegi.
Smáauglýsingar eru ekki birtar í
föstudagsblaðinu, en tekið er á
móti smáauglýsingum í fímmtu-
dagsblaðið til klukkan 17 á miðviku-
degi. Auglýsingarsem eru hálf síða
eða stærri þurfa að hafa borist fyrir
hádegi á miðvikudegi.
-'V'
DAGUR
8 ” P-AQJJR 7,17, égúst1982