Dagur - 20.01.1984, Page 3
20. janúar 1984 - DAGUR - 3
Hermannslyfta ?
Forsvarsmenn Iþróttabandalags
Akureyrar, íþróttafélagsins Þórs
og Knattspyrnufélags Akureyrar
hafa sent bæjarstjórn bréf. í bréf-
inu skora þeir á bæjarstjórn, að
minnast Hermanns heitins Stef-
ánssonar með því að setja upp
nýja skíðalyftu í Hlíðarfjalli. Hér
er að líkindum um að ræða skíða-
lyftu, sem lengi hefur verið á
óskalista Hlíðarfjallsmanna. Hún
kemur til með að liggja samsíða
stólalyftunni og tvöfalda flutn-
ingsgetuna frá hótelinu upp éj
Strýtu, og veitir ekki af, því
skíðamenn þekkja biðröðina
margfrægu, sem oft hlykkjast frá
upphafsstöð stólalyftunnar. En
samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjóra eru ekki líkur til þess að
fjárveitingar verði til lyftukaupa
fyrr en framkvæmdum við
íþróttahöllina er lokið.
Afmælisveisla ?
Eins og lesendur Dags hafa orðið
varir við, þá hefur leiktækjamálið
svonefnda verið að þvælast fyrir
bæjarstjórninni á Akureyri
undanfarna mánuði og tekið á sig
ýmsar myndir. Nú um hátíðina
átti málið ársafmæli, en ekki fara
þó fréttir af miklum veisluhöld-
um bæjarstjórnarmanna. Hins
vegar virðist bæjarstjórnin hafa
kúvent í málinu, því á síðasta
bæjarstjórnarfundi var samþykkt
að veita Bjarka Tryggvasyni og
íþróttafélaginu Þór heimild til að
reka leiktækjastofur. Er þó um-
sókn Bjarka búin að liggja fyrir í
marga mánuði og alltaf hefur hún
fengið neikvæðar undirtektir
þegr hún hefur komið til um-
ræðu. En málið var komið í
óleysanlegan hnút, sem varð að
höggva á.
Af hundum
og pólitíkum
Ógæfu íslands verður allt að
vopni, sagöi skáldið og þótti
ekki taka stórt upp í sig. Þau
tíðindi hafa nú gerst að lang-
besta og mikilhæfasta stjórn
sem hér hefur setið um árabil
riðar til falls og fjármálaráð-
herrann ætlar að flýja land.
Alveg hundfúlt. En að sjálf-
sögðu er málið ekki svona ein-
falt. Sem helsti sérfræðingur
Dags í skepnuskap hefur
undirritaður tekið að sér að
leiða lesendur blaðsins í allan
sannleika um þessi mál. Sú
mynd sem við blasir er sannar-
lega ekki fögur.
Stjórnin sem lækkaði kaup-
ið til þess að það lækkaði ekki
ennþá rneira er í upplausn.
Annar stjórnarflokkanna riðar
til falis (nei, ekki Framsókn,
ertu vitlaus maður?). Fram-
hleypinn fréttamaður heíur
nefnilega tekið sig til og kært
fjármálaráðherra fyrir að
skjóta skjólshúsi yfir tík eina
gamla og lasna. Og Berti kall-
inn er í vandræðum, enda tík-
in ekki nærri því jafn spar-
neytin og Blazerinn hans
Steingríms. í glópsku sinni átt-
ar fréttamaðurinn sig ekki á
mikilvægi þessarar skepnu
íyrir Albert og Flokkinn.
Flokkurinn hefur alltaf
byggt sína stefnu á skepnum,
enda með örn í skjaldarmerk-
inu sem blakar vængjunum,
svona rétt til þess að halda sér
í formi. En við skulum líta á
hinn sögulega bakgrunn:
Upphaf málsins má rekja til
draums Tunta smaladrengs,
sem eins og kunnugt er var
einn af stofnéndum Flokksins.
Hann valdi sér hrút fyrir ráð-
gjafa sem var hyggilegt val hér
í denn meðan saukindin var
enn yfirstétt í landinu. En Al-
bert áttaði sig náttúrlega á því
að það myndi ekki líta vel út í
fjölmiðlum að láta mynda sig
inni í stofu með hrút í kjöltu
sér. sem að auki væri vís til
þess að stanga menn á ríkis-
stjórnarfundum. Svo Eykon
fékk hriitinn og reynist hann
sínum nýja húsbónda betri en
enginn. I staðinn fékk hann
sér tík, sem að vísu er orðin
öldruð og lasburða, en vel ern
og skýr í hugsun, a.m.k. eftir
því sem gerist með tíkur. Ekk-
ert skilja þessir fréttasnápar ef
þeir sjá ekki að það er þessi
tík sem er að bjarga efnahag
landsins og fjármálum ríkis-
ins. Og lækka kaupið til að
koma í veg fyrir að það lækki.
En tíkin ráðagóða og hrút-
urinn Eykons eru þó ekki einu
dýrin sem framámenn Flokks-
ins hafa kallað sér til ráðu-
neytis, enda eru flest dýr
skynsamari en mennirnir.
Vonandi eru menn ekki búnir
að gleyma kettinum Lady sem
átti heiðurinn af glæstum sigr-
um Birgis t Sleif í borgarstjórn-
arkosningunt í Reykjavík.
Hann fékk nú ekki svo fá at-
kvæði út á hana, þegar hún
mjálmaði framan í blaðamenn
og ljósmyndara Málgagnsins
svo þeir máttu vart vatni halda
af hrifningu. Raunar vafi
hvort þeir gerðu það. Allar
kosningabombur andstæðing-
anna féllu í skuggann fyrir
markvissri rökvísi læðunnar,
sem varð kettlingafull á kosn-
inganóttina. Illar tungur
herma raunar að læða þessi
hafi átt heiðurinn af hunda-
banninu, af einskærri afbrýði-
semi út í tík Alberts, en slíku
má vísa á bug eins og hverri
annarri kjaftasögu um innan-
flokksátök í Flokknum. Hitt
er svo annað mál, að henni var
meinilla við páfagauk Davíðs,
enda samdi hann betri kosn-
ingaræður en hún. Og víst var
hún aldrei ánægð með einn
helsta ráðgjafa Flokksins,
geirfuglinn, sem hafði mikil
áhrif þótt uppstoppaður væri.
Lesendur góðir: Ég vona að
mér hafi tekist í þessu stutta
spjalli að upplýsa ykkur um
staðreyndir málsins. Nú ríður
á að menn taki höndum saman
til þess að bjarga Flokknum og
þjóðinni. Mönnum verður að
skiljast að tík Alberts er hin
eina og sanna pólitík. Engin
pólitík án tíkur, engin tík án
pólitíkur. Annars fer alit í
hundana. T r > /
Hakur
a að
Er smása
verða skált
Það er alltaf gaman að
fá sendibréf, eða hvað
finnst ykkur? Á dögun-
um fengum við á Degi
eftirfarandi sendibréf
frá Helga Má Barðasyni,
sem ný býr í „borginni
við sundin44. Helgi hefur
fréttir að færa og birtum
við því bréfið í heild,
enda getur hann þess
hvergi, að um trúnaðar-
mál sé að ræða.
Reykjavík, 11. jan. ’84.
Ágætu kempur á Degi!
Fyrir skemmstu sendi ég
ykkur eilitla orðsendingu um
stofnun Leikklúbbsins Smá-
sögu hér í Reykjavík, sem
við stofnendurnir köllum
gjarnan „sunnandeild“ eða
„elliheimili" Leikklúbbsins
Sögu. Þið sáuð ástæðu til að
birta þessa litlu tilkynningu
og kunnum við aðstandendur
Smásögu ykkur miklar þakk-
ir fyrir það.
En ekki áttum við von á
því að stofnun þessa smáa
leikklúbbs fréttist út um
heimsbyggðina og vekti þar
athygli! Þó virðist svo vera,
því nýlega barst okkur boð
um að taka þátt í alþjóðlegri
leiklistarhátíð ungs fólks í
Vínarborg í Austurríki.
Kom þetta okkur verulega á
óvart þar sem svo skammt er
liðið frá stofnun klúbbsins.
Hátíð þessi ber heitið „Int-
ernational Youth Theatre
Festival 1984“ og mun árleg.
íslensku leikfélagi hefur ekki
áður verið boðið á þessa há-
tíð svo vitað sé, en flest fé-
laganna sem tekið hafa þátt
í henni hingað til hafa verið
frá Mið- og Austur-Evrópu.
Hátíðin stendur í eina viku,
eða ríflega það.
Ekki vitum við enn hvort
okkur tekst að fara þessa
miklu ferð enda enn ekki
ákveðið hvaða verkefni verð-
ur fyrir valinu hjá okkur né
hver mun leikstýra því. Hins
vegar verður þetta boð okk-
ur vegleg sprauta í rassinn og
verður róið að því öllum
árum að Smásaga geti farið
á hátíð þessa sem fulltrúi
Islands. Fjármálin munu
skera úr um það er að því
kemur, en ferðakostnaður er
ekki greiddur af Austurríkis-
búum nema að litlu leyti.
Því mun það velta á dugnaði
okkar og heppni við að nurla
saman lánum og styrkjum
hvort af ferðinni verður eður
ei.
Liðsmenn Smásögu munu
koma saman til fundar í
næstu viku og taka frekari
ákvarðanir í málinu, - þ.e. ef
félagarnir hafa þá náð sér
eftir undrunina og ánægjuna
yfir því að hafa fengið þetta
boð!
Frekari upplýsingar um
þetta dótarí eru á leiðinni til
okkar frá Æskulýðssambandi
Vínarborgar og því get ég lít-
ið upplýst ykkur meira að
sinni. En næst, þegar gúrku-
tíð ríkir í blaðaheiminum,
gætuð þið e.t.v. getið þessa
einhvers staðar í blaðinu, þar
sem Smásaga er nú eftir allt
saman „fædd og uppalin“ á
Akureyri.
Með kærri kveðju,
Helgi Már Barðason.
Jafnskjótt og Eimskip er bundið við bryggjupolla
í einhverri af 122 viðkomuhöfnum sínum er það
orðinn hluti af stórri og flókinni heild.
Fullkomin flutningstæki hafa verið búin undir
komu skipsins og eru reiðubúin að dreifa
farminum undir tölvustýrðu eftirliti 306 umboðs-
manna og aðalskrifstofu Eimskips í Reykjavík.
Sérhæfð tæki í landi tryggja skjóta og örugga
losun. Áður en síðasti flutningsbíllinn hverfur af
hafnarsvæðinu er lestun nýs farms langt komin
og í næstu höfn er undirbúningur fyrir móttöku
skipsins þegar hafinn. Þannig er unnið í öllum
höfnum samkvæmt þaulhugsaðri áætlun Eimskips.
Við höfum valið viðkomustaði okkar af kostgæfni
og myndað þéttriðið þjónustunet áætlunarhafna,
þjónustuhafna og umboðsmanna í 22 löndum.
Þannig tryggjum við farsælan flutning um allan
heim.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sírni 27100
*