Dagur - 17.02.1984, Qupperneq 5
Hollenskur
œvin týmheim ur
Höllin hennar Þyrnirósar er umvafín gróðri, eins og vera ber.
Holland nýtur sívaxandi
vinsœlda meðal íslenskra
ferðalanga, enda er landið
um margt sérstakt og margt
sem gleður þar auga
gestsins. Ein af perlum
Hollands er De Efteling
garðurinn í Kaatsheuvel,
sem er hreint œvintýri fyrir
alla fjölskylduna. Og
ævintýrinu lýkur ekki á
einum degi; það getur enst
í marga daga efþað endar
þá nokkurn tíma.
Frægastur er garðurinn fyrir
ævintýrin sígildu, sem mæta manni
ljóslifandi í garðinum. Þarna hittir
maður Mjallhvíti og dvergana henn-
ar sjö, Þyrnirósu, sem er óvenjulega
ungleg enn, úlfurinn dormar í rúm-
inu hennar ömmu og Rauðhetta er
á næstu grösum. Margar fleiri ævin-
týrapersónur mætti nefna og öllum
er þeim komið fyrir í eðlilegu um-
hverfi samkvæmt ævintýrunum.
Auk þess má heyra ævintýrin lesin,
en það eru ekki allir sem skilja
tungumálið. Það er því eins og að
ganga í gegnum opna ævintýrabók
að skoða ævintýraskóginn í De
Efteling.
0 Margt að skoða
Margt fleira er að sjá í De Efteling
þó ævintýrin hafi gert garðinn
frægan. Fyrir það fyrsta er garður-
inn einstaklega fallegur í sumar-
skrúða, því gróður er fjölbreyti-
legur og litskrúðugur. Auk þess
vakti það athygli hvað snyrtilegt
var í garðinum, enda greinilega
lögð áhersla á að halda í horfinu í
þeim efnum og vösk sveit við að
hreinsa ruslið jafnharðan. En
fleira kemur til. Þetta var vanda-
mál í garðinum fyrir nokkrum
árum, því hreinsunardeildin hafði
ekki undan, enda heimsækja tæp-
lega tvær milljónir gesta garðinn
yfir sumarmánuðina. Einkum voru
það börnin sem gættu ekki að sér í
ævintýraheiminum. En Hollend-
ingar fundu ráð við þessu. Settir
voru upp munnstórir karlar hér og
þar, sem voru sólgnir í alls konar
rusl. Og þegar þeir hafa verið
mataðir á einhverju slíku segja
þeir vinalegri röddu: Þakka þér
fyrir bamið gott. Þetta kunna
börnin að meta og nú er ruslið
ekki lengur vandamál í De Eftel-
ing.
Hluti af De Efteling er nokkurs
konar tívolí. Þar eru leiktæki ýmiss
konar, russibani einn heljarmikill,
sem ekki er nema fyrir þá hugrökku
og víkingaskip í fullri stærð rólar
fram og aftur eins og í stórsjó og
nýtur mikilla vinsælda. Margt fleira
mætti nefna, svo sem hringekjur,
draugahús, járnbrautarlest o.fl. o.fl.
Nýjasta undrið í garðinum er eins
konar vatnarall. Þar geta um 1800
gestir upplifað ævintýraferð niður
eftir stórfljóti í Suður-Ameríku,
með því að gefa hugmyndafluginu
örlítið lausan tauminn. Þú stígur
upp í bát, sem er að vísu dálítið
sérkennilegur í laginu, en hann er
traustvekjandi og tekur sex manns.
Svo hefst ferðin niður eftir ánni og
það gengur á ýmsu. Ferðalagið hefst
með miklum hraða í gegnum löng
göng. í miðjum göngunum blasir við
ógnvekjandi foss - og það sem verra
er - báturinn stefnir beint í fossinn
og stórslys virðist óumflýjanlegt. En
þá kippir einhver ósýnileg hönd
fossinum í burtu og ferðin heldur
áfram. Stundum hendist báturinn á
milli kletta eða skoppar niður fliss-
andi flúðir og það er nokkuð víst að
þú heldur þér fast. Eftir sjö mínútna
ferðalag er „rallið“ á enda. Þó
ferðalagið hafi virst nokkuð glæfra-
legt á köflum er fyllsta öryggis gætt,
þannig að ekkert á að geta komið
fyrir ferðalangana, nema hvað búast
má við að þeir vökni aðeins, því
frussugangur er talsverður. Og þeir
sem treysta sér ekki í slíka ferð geta
gengið með árbakkanum og skemmt
sér með þátttakendum úr fjarlægð.
Margt fleira mætti nefna sem fjöl-
skyldugarðurinn De Efteling hefur
upp á að bjóða. Þar eru veitinga-
staðir og söluturnar og þar er einnig
aðstaða til að snæða nesti. Og þeir
sem vilja rólegheit geta farið í báts-
ferð eftir síkjunum og notið um-
hverfisins, sem er hrífandi. Hol-
landsfarar ættu ekki að láta De
Efteling framhjá sér fara. -GS
Vatnarallið nýtur mikilla vinsælda meðal barna sem fullorðinna
17. febrúar 1984 - DAGUR - 5
Föstudagur 17. febrúar
Mánasalur opnaður kl. 19. Fjölbreyttur matseöill.
Sólarsalur opnaður kl. 23.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi.
Tískusýning: Vetrartískan frá versluninni
Laugardagur 18. febrúar
Uppselt
Sunnudagur 19. febrúar
2. sýning Súkkulaði handa Silju
Leikhússmatseðill í Mánasal.
Matarpantanir teknar í leikhúsinu og í síma 22970.
Alþýðuflokksfélögin
Akureyri
Fundur verður haldinn að Strandgötu 9
kl. 13.30 sunnudaginn 19. febrúar.
Stjórnirnar.
Aðalfundur
Geðverndarfélags Akureyrar
verður haldinn miðvikudaginn 22. febrúar kl. 20.00
í húsnæði Færeyingafélagsins við Ráðhústorg.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Aðalfundur
Ferðamálafélags Akureyrar
verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20.30
aö Hótel KEA
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir félagar hvattir til að mæta. Stjórnin.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
Opið alla virka daga frá kl. 15.30-18.30.
Starfsmenn skrifstofunnar verða Tryggvi Svein-
björnsson á mánudögum og miðvikudögum og
Bragi V. Bergmann á þriðjudögum, fimmtudögum
og föstudögum.
Síminn er 21180.
Heimasímar: Tryggvi Sveinbjörnsson, 26678.
Bragi V. Bergmann, 26668.