Dagur


Dagur - 17.02.1984, Qupperneq 6

Dagur - 17.02.1984, Qupperneq 6
6 - D'AGUR - 17. febrúar 1984 VŒ) ERUM ISERELOKKI - Það er leiðinlegt hvað mórallinn er lé- legur meðal hljóm- sveitanna í bœnum. Menn eru mjög hör- undssárir og það má vart orðinu halla að ekki sé allt orðið vit- laust. Þá er algengt að menn séu með ýmiss konar óyfirvegaðar yfirlýsingar sem eiga engan rétt á sér. Yfir- lýsingar af þessu tagi verða engum tilfram- dráttar. ★ ★ ★ Þetta er sýnishorn efnislegra um- mæla sem liðsmenn hljómsveitar- innar DES létu falla í samtali við undirritaðan í vikunni. Vett- vangur umræðna var skrifstofa undirritaðs í Dagshöllinni að Strandgötu 31 og umræðuefnið var DES vs. aðrar hljómsveitir í bænum. Til að lesendur fái botn í umræðuna þá eru DES: Eirfkur Jóhannsson, gítar en hann einn fékk að tylla sér niður í „sprengi- stól“ á meðan umræðum stóð, Jónas Þór Guðmundsson, bassi, Gunnlaugur Stefánsson, tromm- ur og Orri Árnason, söngur. Þá vita allir haus og sporð á DES og þá er það upphafið... ★ ★ ★ SKAK - Hljómsveitin var stofnuð í maí ’82, segir nafni og Jónas og Gunnlaugur segjast einnig hafa verið með frá upphafi. Þessi vika Þessi vika 1 H-100 Where Is My Man .......... Eartha Kitt Here Comes the Rain Again .. Eurythmics That’s All .................. Genesis Owner of a Lonely Heart ......... Yes Love Cats ...................... Cure Running with the Night . Lionel Richie Many Rivers to Cross .......... UB-40 Victorious Dub .. Linton Kwesi Johnson CaUing Your Name ............ Marilyn Shake It Up .................. Divine DYNHEIMAR Talking in Your Sleep ..... Romantics Here Comes the Rain Again .. Eurythmics Superman ...................... Laddi Don’t Make Me Cry ............. UB-40 Piece of My Heart .... Bone Symphony Tar .......................... Visage Human Touch .......... Rick Springfield TheLoveCats .................... Cure Rat Rapping .............. Roland Rat Undercover of the Night ... Rolling Stones Síðasta vika - Ég byrjaði í hljómsveitinni um síðustu páska, segir Orri en hann trúir því statt og stöðugt að hann sé að kikna undan ábyrgð- artilfinningu vegna aldursmunar í hljómsveitinni. - Það vill nefnilega þannig til að ég er dálítið eldri en hinir og satt að segja er ég töluvert eldri en þeir. - Þetta hefur reynst alveg svakalega þroskandi fyrir okkur, segir Jónas en Orri sussar á hann og heldur áfram: - Þetta er auð- vitað töluverð pressa fyrir mig þar sem ég hef orðið að axla ómælda ábyrgð, sérstaklega and- lega. Ég hef gengið þessum drengjum í föður stað og ég losna aldrei við þessa föðurlegu tilfinn- ingu. ★ ★ ★ Rætt við DES - Hvernig músík spilið þið? Eiríkur: - Þetta er nýbylgja. Jónas: - Einhvers konar ný- bylgja. Orri: Það hafa allir getað skilgreint okkur á einhvern hátt. Gunnlaugur: Allt upp í sýru. - Þú verður náttúrlega að spyrja okkur hvort við séum ekki góðir, segir Orri og það gengur eftir. Ég spyr hvort þeir séu ekki góðir? - Ágætir, segir Gunnlaugur sem sér urn gæðamatið innan hljómsveitarinnar. - En í saman- bprði við aðrar hljómsveitir á Akureyri og líklega í heiminum þá erum við í sérflokki - í skák, segir Orri. - Heyr, heyr, segja hinir og lýsa sig fullbúna til þess að setjast niður og heyja skákeinvígi við allar hljómsveitir í bænum. Segj- ast kannski ætla að ræða við Bún- aðarbankann varðandi mótshald- ið og eru þess fullvissir að gott skákmót myndi hreinsa út skíta- móralinn í andrúmslofti hljóm- sveitabransans á Akureyri. - Hvað er annars framundan hjá DES? - Feikimikið. Hljómleikar í MA 23. febrúar, segir Eiríkur og hinir bæta því við að þetta verði uppákoma til styrktar Leikfélagi Menntaskólans. - Við vorum beðnir um þetta, segir Jónas og Gunnlaugur segir að þeir mæti ekki með hurð á hljómleikana. - Svo erum við að pæla í að gera kvikmynd. Ódýrustu ís- lensku kvikmyndina fram að þessu. Þetta verður 8 mm filma í litum af því við gátum ekki haft hana í svart/hvítu. Dulúðleg mynd, segja þeir leyndardóms- fullir á svip. - Um hvað fjallar myndin? - Hún fjallar um afdrif manns í ákveðnu umhverfi. - Hvenær verður frumsýning- in? - Hún verður í maí en tökur hefjast fljótlega. Við gerum allt sjálfir enda treystum við engum öðrum til þess að gera þetta al- mennilega. ★ ★ ★ Til að gera einfalt mál flókið þá birtist niðurlag samtalsins við DES hér í stikkorðaformi. Hljómsveitin ætlar í heimsókn til Bimbó bráðlega - gera demó - k"',.nski plata - gefa út sjálfir - jafnvel - stefna á hljómleika í \‘,‘ikhúsinu - örugglega - kannski - vonandi - næsta víst að þeir koma fram í mars. - Feyrðu? Þetta bréf þarna í Degi á dögunum um %1 og allt það, var alls ekki frá okkur og við höfum heyrt að ART hafi heldur ekkert haft með það að gera, segja þeir um leið og þeir hypja sig út. - Af hverju DES? - Það er og verður stóra spurningin, segja þeir og þegar þeir hverfa fyrir hornið eru þeir komnir í hrókasamræður, ekki um skák, heldur hvort þeir eigi að bæta spurningarmerki við nafn hljómsveitarinnar - DES? - ESE. URFELUM! Menn eru sammála um að það ríki skítamórall innan hljóm- sveitabransans á Akureyri. Þar sé hver höndin upp á móti ann- arri og baktjaldamakkið ríði húsum. Engir eru hins vegar sam- mála um það hvað valdi ágrein- ingnum. Ér þetta heilbrigð sam- keppni í anda markaðslögmál- anna eða eru skemmd epli í tunn- unni? Epli með kýlum sem þarf að stinga á? Akureyri er lítill markaður og e.t.v. er ekki pláss fyrir alla smákóngana í sömu tunnunni. Kannski er hatrið líka orðum aukið þó menn í góðmennsku vegi hver annan. Hver veit? Kannski standa allir upp að kveldi í bróðerni, slíðra sverðin en fela rýtingana uppi í erminni? Á Akureyri er aðeins ein hljómsveit poppkyns sem nýtur viðurkenningar á landsmæli- kvarða. Þetta er BARA-Flokk- urinn en meðlimir hans hafa látið þau orð falla í viðtali við Dag að þeir kæri sig ekki um að búa fyrir sunnan m.a. vegna þess skíta- mórals sem þar svífur á milli hljómsveita. BARA-Flokkurinn býr á Akureyri en sennilega eru þeir hafnir yfir skítamóralinn hér þó nóg sé af fjandmönnum og engir séu spámenn í föðurlandi. Á þetta er minnst hér vegna þess að undirritaður hefur orðið var við umræddan skítamóral. Vel má vera að umræður auki bara enn á skítalyktina, en þá verður bara að hafa það. Viðtal við hljómsveitina lhl hér í blað- inu var spor í áttina og í kjölfar þess og nafnlauss lesendabréfs hafa hljómsveitirnar DES og ART gefið sig fram og fá að viðra sínar skoðanir. Á sama hátt er þessi síða lesendum opin til skoðanaskipta, við bíðum eftir bréfunum. - ESE.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.