Dagur - 23.03.1984, Blaðsíða 13
23. mars 1984-DAGUR -13
Útvarp sunnudag kl. 20.00:
Margrét Blöndal er umsjónar-
maður Útvarps unga fólksins á
sunnudagskvöldið og því var
slegið á þráðinn til hennar og
hún spurð hvað yrði í þættinum.
Hún sagði að í tveim síðustu
þáttum sínum hefði hún gefið
krökkum kost á að senda inn
spurningar í sambandi við kyn-
fræðslu og það hefði komið
hellingur af bréfum og yrði í
þessum þætti tekinn fyrir um
helmingurinn af bréfunum.
Tveir krakkar þau Sigríður
Valdimarsdóttir og Jón Haukur
Ingvason hafa unnið úr bréfun-
um með Margréti og þau verða
einnig með henni við að spyrja
þau Valgerði H. Bjarnadóttur
Margrét Blöndal.
félagsráðgjafa og forseta bæjar-
stjórnar og Jónas Franklín sér-
fræðing í kvensjúkdómum en
þau svara, spurningunum sem
bárust.
Þættinum hefur borist
skólablað Langholtsskóla og
mun Svanur Valgeirsson lesa
sögu úr því eftir Sigurð Óla
Ólafsson. Framhaldssagan
Punktur, punktur, komma,
strik er á sínum stað, en Valdi-
mar Gunnarsson sér um að lesa
hana.
Pátturinn er 40 mínútna
langur og hefst kl. 20.00 á
sunnudagskvöldið. A.M.
Útvarp föstudag kl. 21.40:
Kvennastörf
„Hugmyndin varð til fyrr í
vetur, spratt upp úr umræðum
á milli okkar Maríönnu," sagði
Aðalheiður Steingrímsdóttir en
hún sér um þáttinn Störf
kvenna við Eyjafjörð ásamt
Maríönnu Traustadóttur. 1.
hluti af fjórum er á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 21.40. Hún
hefur orðið áfram:
„Þátturinn er byggður upp á
samtölum við konur hér á Eyja-
fjarðarsvæðinu, bæði konur
sem eru hættar störfum fyrir
aldurs sakir og eins konur sem
eru úti á vinnumarkaðinum.
Samtölin eru aðallega byggð
upp á fjórum atriðum þ.e.
launakjör, vinnuaðstaða,
vinnutími og heimilisaðstæður.
Með því að velja þessi ákveðnu
atriði viljum við láta það koma
skýrt í ljós að konur eru
sístarfandi en störf þeirra eru
aldrei metin að verðleikum.
Launamisréttið sem viðgengst
sýnir best hve störf kvenna eru
lítils metin.
Þessi hugmynd okkar fékk
byr undir báða vængi þegar
þessi mál komu til umfjöllunar
í kringum síðustu áramót og
skýrslan um stöðu kvenna á
vinnumarkaðinum leit dagsins
ljós. Það var haldinn fundur um
þessi mál í byrjun febrúar og á
þann fund mættu rúmlega 300
konur og mun það einsdæmi hér
í bæ að svona fjölmennur fund-
ur sé haldinn um atvinnumál
kvenna. Þetta sýnir áhuga
kvenna á sínum málum. LFm-
ræðan hefur samt dottið niður
og er því full ástæða til að vekja
hana aftur en allt frumkvæði
hefur til þessa komið frá
Reykjavík.
Við förum í kauptún og
kaupstaði við Eyjafjörð og
ræðum við konur því við Eyja-
fjörð má finna þverskurð af at-
vinnulífi landsmanna. í litlum
sjávarþorpum er atvinnulífið
t.d. mjög einhæft og því brýnt
að koma af stað umræðu um
stöðu kvenna í þeim og kanna
hvað hægt er að gera til að bæta
stöðu þeirra í sambandi við
launa- og bónusmál," sagði
Aðalheiður að lokum. Á.M.
Aðalheiður Steingrímsdóttir og Maríanna Traustadóttir.
Útvarp laugardag kl. 14.00:
LJstadagar MA
í Listalífi RÚV
„Ég œtla að fjalla um lista-
dagana í Menntaskólanum
á Akureyri í þessum þœtti, “
sagði Örn Ingi, aðspurður
um innskot hans í Listalíf á
laugardaginn. Þátturinn
hefstkl. 14.00.
Ég ræði við Þuríði Sólveigu
Árnadóttur, sem er formaður
skólafélagsins og mun hún vera
fyrsti kvenmaðurinn sem gegnir
því embætti. Við ræðum um
hvernig svona uppákoma virki
á skólalífið og ég ræði einnig við
nokkra nemendur sem ég hitti
á förnum vegi og kynnist við-
horfum þeirra. Þar að auki
skundaði ég á fund skólameistara
til að forvitnast um hans af-
stöðu; kynnast því hvernig lista-
dagar sem þessir koma við þá
sem bera hita og þunga skóla-
haldsins. Nú, og fyrst ég var
kominn til skólameistara, þá
spurði ég hann um menningar-
legt hlutverk íþróttahallarinnar
okkar, en Tryggvi á sæti í bygg-
ingarnefndinni. Það hafa margir
haft orð á því að það menning-
arlega hlutverk sem íþróttahöll-
inni er ætlað að gegna, sé van-
rækt svo ekki sé meira sagt, og
hefur verið nokkur hiti í
mönnum út af þessu. Ég tel að
orð Tryggva séu líkleg til að
lægja öldurnar og vona því að
sem flestir menningarsinnar
leggi við hlustirnar á laugardag-
inn,“ sagði Örn Ingi. GS.
Útboð
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í eftir-
talin verk:
SAUÐÁRKRÓKSBRAUT II
Uppbygging hluta Sauðárkróksbrautar innan
Sauðárkróks.
Helstu magntölur:
Lengd 1,4 km fylling 4500 m3
skering 1400 m3 burðarlag 6500 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 1984.
NORÐURLANDSVEGUR í LANGADAL
Uppbygging hluta Norðurlandsvegar í Langadal.
Helstu magntölur:
Lengd 2,5 km fylling 44400 m3
skering 2800 m3 burðarlag 12000 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 1984.
EFNISVINNSLA I Á NORÐURLANDI
VESTRA 1984
Mala skal burðarlagsefni í Reynistaðarnámu.
Efnismagn er 7000 m3.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 1984.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera
Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 5, Reykjavík og
á umdæmisskrifstofunni Sauðárkróki, frá og með
mánudeginum 26. mars nk. gegn 1.000 kr. skila-
tryggingu fyrir hver gögn.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða
breytingar skulu berast Vegagerð ríkisins skrif-
lega eigi síðar en 2. apríl.
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og
skila í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til
Vegagerðar ríkisins, Borgarsíðu 8, Sauðárkróki
fyrir kl. 14.00 mánudaginn 9. apríl 1984 og kl.
14.15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík í mars 1984.
Vegamálastjóri.
.t
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUNNUR JÚLÍUSDÓTTIR
Grænugötu 12, Akureyri
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. þessa mánaðar.
Jarðarförin ákveðin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 26. mars
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á F.S.A.
Árni Stefánsson,
Július Kristjánsson,
Stefán Árnason, Vaka Jónsdóttir.
Gunnlaugur Árnason, Bergþóra Guðmundsdóttir
og sonadætur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ANGANTÝSJÓHANNSSONAR
Hauganesi
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki B-deildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Þóra Angantýsdóttir, Árni Ólason,
Arnþór Angantýsson, Kolbrún Ólafsdóttir,
börn og barnabörn.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 28. mars nk.
kl. 20-22 verða bæjarfulltrú-
arnir Sigurður Jóhannesson
og Jórunn Sæmundsdóttir til
viðtals í fundarstofu bæjar-
raðs, Geislagötu 8, 2. hæð.
Bæjarstjóri.