Dagur - 04.05.1984, Qupperneq 5
4. maí 1984- DAGUR-5
Ólafur H. Torfason skrifar:
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri: „Bærinn okkar“ eft-
ir Thornton Wilder.
Þýðandi: Bogi Ólafsson.
Leikstjóri: Jónas Jónasson.
Sýningar í Samkomuhúsinu
föstudag, laugardag og sunnu-
dag.
Fáein kvöld ætla Menntaskóla-
nemendur að svífa með saklausa
bæjarbúa á Akureyri til annars
og framandi bæjar, á öðru tíma-
skeiði. Á fluginu hyggjast ung-
lingarnir greina frá tilfinningum,
samskiptum og örlögum nokk-
urra Bandaríkjamanna í New
Hampshire á árunum 1901-1913.
Djörf flugáætlun, ekki síst fyrir
þá sök að ýmsir áhorfendur
munu hafa fyrri sýningar á „Bæn-
hávaða með græjum. Hér er öll
tækni svo sannarlega í þjónshlut-
verkinu.
í þriðja lagi eru staðsetninga-
mynstur og hreyfingar leikaranna
hnitmiðuð, og augljóst er að hér
hefur leikstjórinn beitt styrkri
hendi. Andlit og hreyfingar eru
að sjálfsögðu þeim mun meira
áberandi og mikilvægari, sem
leikmynd og leikmunir eru fá-
breyttari og draga enga athygli að
sér. Og hér brugðust ungmennin
heldur ekki. Vængjatök þeirra
voru þróttmikil, en mýktin í
fyrirrúmi.
Við sem höfum haldið á kríu í
lófanum furðum okkur einlægt á
því, að þetta kríli skuli komast
okkar“, farfuglarnir í Samkomu-
húsinu, fá til varðveislu. Vafa-
laust hefur sett ugg að mörgum
þeirra, þegar 46 ára gamalt verk
Thorntons Wilders skall á þeim
eins og þoka á heiði. Þótt verkið
þætti með afbrigðum nýstárlegt
og gott 1938, þá má með sanni
segja, að þetta gat virst glíma við
ofurefli. Oll umgerð og persónu-
tengsl virðast á yfirborðinu víðs
fjarri þeim „félagslega raunveru-
leika“ sem við tengjum nútíman-
um. En það er einmitt í átökun-
um við hið torræða, óþolandi og
himinháa, sem persónan eflist.
Og nánd leikaranna við salinn
var slík, að engum blandast hug-
ur um að þetta unga fólk hafði
„fundið sig“ í verkinu.
um okkar“ til samanburðar.
Hvernig tekst svo til? Því má
svara með einu orði: Listflug.
Flugliðsforinginn Jónas Jónas-
son hefur unnið fágætt afrek með
sínum óreynda ungahópi. Flestir
leikenda munu hafa setið í 1. og
2. bekk MA í vetur og lítt spreytt
sig við leiklist. Er það með hrein-
um ólíkindum, hve þessir ung-
lingar hafa magnast upp í hlut-
verkum sínum og flytja áhorf-
endum blæ þess tíma og þeirrar
reynslu, sem borin von er að þau
hafi nokkur tök á að þekkja af
eigin raun. Satt að segja finnst
manni það nánast óhugnanlegt,
hvernig sumir leikstjórar geta
hnoðað hráefni sitt, leikarana, og
látið þá taka hamskiptum á svið-
inu.
Fyrsta atriðið sem vekur
óskipta athygli og aðdáun áhorf-
andans er hrein og skýr framsögn
leikaranna. Þessi árangur er af-
rek út af fyrir sig, og öllum leik-
húsgestum er skylt að minnast
þess, að hrein, blæbrigðarík og
einlæg framsögn ungmenna á ís-
lensku leiksviði er ekkert sjálf-
sagt mál lengur. Út úr sjálfum
Leiklistarskóla íslands hafa árum
saman streymt málhaltir einstakl-
ingar, og svo rammt kveðið að
linmælgi, talgöllum og einhæfum
rómi, að leikhúsgagnrýnendur og
leikstjórar höfuðborgarinnar
hafa beðið guð að hjálpa sér. Ég
held þeir ættu frekar að biðja
Jónas Jónasson að hjálpa sér.
í öðru lagi er myndin sem við
blasir úr salnum stílhrein, sterk
og fallega tónuð. Leikmynd er
engin og leikmunir örfáir. Stórt
baktjald sem skiptir litum og
tekur við einföldum táknmynd-
um, fáeinir ljóskastarar. Tækni-
brögðin eru hér með upp talin.
Og þó, einstaka sinnum heyrast
umhverfishljóð úr hátölurum, en
svo undur blíð og lágvær, að nán-
ast gleymist. J*að er gleðileg til-
breyting frá þeirri ömurlegu tísku
sumra leikhúsa að sprengja upp
kringum hálfan hnöttinn fyrir
eigin afli, þegar það langar til, -
og kannski fyrst og fremst að það
skuli leggja í þessa tvísýnu ferð.
Ef það er nokkur glóra í músar-
rindlinum og lóunni hljóta þau að
spyrja sig, áður en lyft er fæti af
Bretlandseyjum, hvers konar
fíflalegt feigðarflan þetta sé.
Litla hugmynd hafa þau kannski
um þann unað og þá lífsfyllingu
sem þau veita okkur áhorfendum
síðan með návist sinni, þegar
komið er á það nakta svið, sem
við köllum Island og getur vart
státað af öðru en fallegu baksviði
himins og nettri ljósabeitingu
vors og sumars.
Þessa dæmisögu mína skulu
skólakrakkarnir í „Bænum
í hægu og þungu hljómfalli
sýningarinnar vöktu nokkrir
leikarar sérstaka athygli mína.
Steinunn Aðalbjarnardóttir hef-
ur svo augljósan neista og sam-
band við salinn, jafnvel þegar
viðkvæmnin er mest, að hún
„stelur senunni“ æði oft. Einna
mest mæðir á Jónu Hrönn Bolla-
dóttur, og ferst henni hlutverk
leikstjórans og sögumannsins af-
bragðs vel úr hendi. Hæfilega
kímin, látlaus og röggsöm.
Röddin er mjög viðfelldin. Þor-
grímur Daníelsson er skemmti-
lega yfirvegaður, og hið sama
má raunar segja um Árdísi Sig-
mundsdóttur og Brynju Haralds-
dóttur. Ari Bjarnason og Hannes
Garðarsson eru áberandi í sýn-
ingunni, en komast ekki jafn
langt „út í salinn“ og þau sem að
framan voru nefnd.
Það er venjulega talin
ómennska að gera svona upp á
milli óreyndra leikara, sérstak-
lega á nemendasýningum, en ég
fæ ekki orða bundist yfir þessum
burðarásum sýningarinnar, svo
vel og samviskusamlega sem þau
fóru með texta sinn og tilfinn-
ingu.
Öllum aðstandendum „Bæjar-
ins okkar“ vil ég þakka fyrir að
bregða okkur í tímavél sína á
nærfærinn hátt, fyrir vandvirkni
og öguð vinnubrögð. Þið gerið
okkur öllum mikinn greiða með
því að setja markið svona hátt -
og ná því.
%
Dömusíðbuxur
þrír litir, stærðir 29-34, stór númer.
Verð kr. 575,-
Barnabolir
með myndum, stærðir 92-98-104.
Verð kr. 115,-
Barnasmekkbuxur
stærðir 98-104-110.
Verð kr. 335,-
Strigaskór
með frönskum lás, stærðir 36-45.
Verð aðeins kr. 250,-
Opið á laugardögum 10-12.
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 • sími 22Z75
m
Föstudagur 4. maí
Electric boogie diskó á efri hæðinni. Heavy diskó niðri.
Tommi og Arnar rífa upp stuðið.
Top 10 listinn valinn.
Laugardagur 5. maí
Spoogie diskó fram eftir nóttu.
Balli og Arnar í rokna stuði. Tvö diskótek.
Bjórinn flýtur á Bauknum alla daga frá kl. 18.00
og frá 12.00-14.30 um helgar.
Þeir sem mæta snemma borga ekki inn.
Láttu sjá þig
ÍH-100.
QQQQQQ QQQQQ
Ju
Frá Hrafnagilsskóla
Sýning á teikningum og handavinnumunum nem
enda veröur í skólanum sunnudaginn 6. maí nk.
kl. 15-22.
Kaffisala.
Skólaslit verða laugardaginn 12. maí kl. 14.00.
Skólastjóri.
Kardemommu-
bærinn
efftir Thorbjörn Egner
Þriðjudagur 8. maí kl. 18.00. Uppselt.
Miðvikudagur 9. maí kl. 18.00.
Fimmtudagur 10. maí kl. 18.00. Uppselt.
Föstudagur 11. maí kl. 20.00. - Hátíðarsýning.
Þorsteinn Ö. Stephensen afhendir styrk
úr minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur.
Laugardagur 12. maí kl. 17.00.
Sunnudagur 13. maí kl. 17.00.
Miðasala opin alla virka daga frá kl. 15-18.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 og fram að sýningu.
Leikfélag Akureyrar.