Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 14

Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 14
Pmnröst andlitslyfting Þcgar nálarstunguaðfcrðin kom fyrst fram á sjónarsviðið a Vcsturlöndum, varð allt vitlaust. Síðan cr mikið vatn runnið til sjávar og (icssi þúsund ára tækni hcfur vcrið þróuð á margs konar máta. I’að nýjasta cr andlitslyfting mcð nálum. Húðin vcrður slcttari og „nálapúðinn" yngist unt tíu ár. cða svo scgir 14 — DAGUR —25. maí 1984 á móti milljón Einn á móti milljón. Ekki eru það vænlegar líkur, hvort heldur sem það er í slagsmálum eða öðru. Hér á eftir verður greint frá ótrúlegum tilviljunum, þar sem líkurnar voru einn á móti milljón eða þaðan af minna. Barry nokkur Smith klessti bfl sínum framan á annan bíl í henni Ameríku og þegar honum var troðið inn í sjúkrabílinn þá trúði hann ekki sínum eigin augum. Ökumaðurinn var bróðir hans, Brian. Kvenmaður að nafni Edith All- an var að leita að skiptimynt í ein- hverri búðarholu á Englandi, þeg- ár hún tók eftir sérkennilegum eins punds seðli. Áletrun var á seðlin- um og við nánari athugun kom í ljós að þarna var um sama seðil að ræða og stjúpfaðir hennar hafði gefið syni hennar nokkrum dögum áður. Sá hafði hins vegar keypt slikkerí fyrir peningana í sjoppu í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Einn af heppnustu mönnum heims heitir Archibald Chant. Hann hefur verið grafinn lifandi alls þrisvar sinnum og alltaf sloppið lifandi. Fyrst hrundi fimm tonna ieirbakki yfir hann, fimm árum síð- ar grófst hann undir 30 tonnum af kolum og loks sturtaði vörubíll farmi af grjóti yfir hann nokkrum árum síðar. Margt er rotið í ríki Dana segir máltækið og víst er að Boy George, söngvarinn snjalli úr Culture Club á ekki upp á pallborðið hjá mörgum. Hann er Ljóti andarunginn, skemmda eplið í tunnunni og til að kóróna allt saman: Ein af tíu verst klæddu konum heims. Samt er strákur sagður karlkyns, af þeim sem að hafa gáð. Astarlíf Boy George hefur orðið mörgum vikuritum að verðugu rannsóknarefni. Um manninn er það vitað að hann er nálega hringtrúlof- aður japanskri fitubollu, hverrar kynþokki er ekki mældur í tonnum. í nýlegu viðtali segir Boy George að hann sé fyrir löng og varanleg samskipti. „Það tekur mig a.m.k. þrjá mán- uði að verða ástfanginn,“ segir Boy og bætir því við að hann sofi jöfnum höndum hjá stelpum og strákum. Ekki kemur hann inn á hina japönsku ást í þessu viðtali enda mun þar meira vera um andlegt kynlíf að ræða - en holdlega ást eftir því sem tíð- indamenn þáttarins komast næst. Aðaláhugamál Boy George í augnablikinu er dúkkusöfnun enda maðurinn algjör krúsindúlia. Kveikt á perunni Gamli bókagerðarmaðurinn, Jack Needham var flöskuskipa- smiður af Guðs náð. Hann hafði smíðað flöskuskip af öllum stærðum og gerðum þegar örtölvuöldin gekk í garð. Þá kveikti sá gamli loksins á perunni og smækkaði skip sín í samræmi við tíðarandann. Minnsta skipið kemst fyrir inni í smá vasa- Ijósperu en Jack segir það lítið mál að koma skipinu fyrir. Smíðin er erfiðust. Eftir það er bara að stýra beint. ,JSef hjá — segir Boy George stelpum og strákum“ en það tekur hannþrjá mánuði að verða ástfanginn HÁRIN Ekki hefði hann Gvend skalla órað fyrir því að þegar hann var upp á sitt besta, þá uxu fimm milljón stykki af hárum víðs vegar á líkama hans. Þetta er í raun sann- kallaður frumskógur en Gvendur kærði sig kollóttan enda stækkuðu kollvikin allt- af og svo fór um síðir að hann óx upp úr hárinu. Ann- ars er það fjári merkilegt að hvert hár dugar í svona þrjú ár. Þá dettur það af og nýtt kemur í staðinn, nema það hafi fallið af höfuðleðrinu. Líklega er það þunna loftið...

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.