Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 20

Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 20
Akureyri, föstudagur 25. mai D) 1984 Smiðjan opin alla daga [eiínjSa \ vim’) 1 bæði í hádeginu og á kvöldin mjgMf Munið að panta borð tímanlega fyrir heigar Ekkert mini- golf íár? - Ég hef ekkert heyrt frá þess- um mönnum og engar bókanir séð og veit því lítið annað um þessa afgreiðslu en það sem ég hef heyrt á skotspónum, sagði Hreiðar Jónsson, sem sótti um leyfi til rekstrar á mini-golfvelli innan athafnasvæðis Sundlaug- ar Akureyrar. Erindi Hreiðars var synjað í bæjarráði á síðustu stund eftir að athugasemd kom fram frá Jóni Sigurðarsyni þess efnis að eðli- legt væri að athuga hvort Sund- laug Akureyrar gæti séð um þennan rekstur. - Ég veit ekkert um það ennþá hvort ég nenni að standa í því að eiga samskipti við þessa menn og sækja um leyfi fyrir mini-golfi á öðrum stað í bænum. Það verður að koma í ljós, sagði Hreiðar Jónsson. Eins og fram kom í Degi á dögunum þá hafði Haukur Berg Baldvinsson, sundlaugarstjóri sótt þrívegis um leyfi til þess að starfrækja mini-golfvöll innan sundlaugarsvæðisins en því erindi hafði jafn oft verið hafnað. Fannst Hauki því skjóta nokkuð skökku við þegar hann heyrði að ákveðið hefði verið að veita einkaaðila leyfi til rekstrarins - en þetta leyfi hefur sem sagt ver- ið afturkallað. - Ég hef ekkkert heyrt um þessa afgreiðslu annað en það sem ég hef séð T blöðum. Það hefur enginn rætt beint við mig, sagði Haukur Berg. Að sögn Hauks Berg þá er hann fús til samstarfs við bæjar- stjórn um þetta mál ef eftir því verður leitað. - Ég var með hugmyndir um það að flytja inn vandaðar asbestbrautir og reka þetta m.a. í sambandi við ferðamanna- strauminn og tjaldstæðin hér við hliðina. Mér sýnist þó að það sé hæpið að af þessu verði í sumar. Við erum þegar búnir að missa af hluta af vertíðinni en ég sé ekkert því til fyrirstöðu að það verði hægt að leika mini-golf á sund- laugarsvæðinu næsta vor, sagði sundlaugarstjóri. - ESE Iðnaðarmiðstöð á Akureyri: „Lyftistöng fyrir iðnaðinn og Akureyri“ - Ég hef verið að velta þessu máli fyrír mér og ég er staðráð- inn I að koma því fram, sagði Sverrir Hermannsson, iðnað- arráðherra í samtali við Dag er hann var að því spurður hvað liði áformum um iðnaðarmið- stöð á Akureyri. Að sögn Sverris Hermannsson- ar þá verður hér um algjörlega sjálfstæða stofnun að ræða en ekki útibú frá Reykjavík. - Þetta verður fyrirgreiðslu- og þjónustumiðstöð fyrir iðnað- inn á Akureyri og stofnunin mun njóta aðstoðar Iðntæknistofnun- ar, Iðnþróunar- og Iðnlánasjóðs og Útflutningsmiðstöðvar iðnað- arins. Þetfa verður almenn upp- lýsingaþjónusta fyrir iðnaðinn í mesta iðnaðarbæ landsins, Akur- eyri, sagði Sverrir Hermannsson og bætti því við að hann ætti von á að þetta gæti orðið mikil lyfti- stöng fyrir iðnaðinn í landinu. - Hvenær áttu von á að fá þessu máli þokað áfram? - Það er ekki búið að ákveða endanlega farveg þessa máls, varðandi stjórnunaratriði og ann- að en það ætti að skýrast fljót- lega. Ég hef ekki tök á að fylgja þessu máli eftir alveg strax en á árinu verður það að vera. Von- andi verður hægt að gera eitthvað strax í haust, sagði Sverrir Her- mannsson. - ESE „llmrnar |>öll sú cr stcndur |x>rpi a . . Svo scgir i llávaiiialum cn hvort þctla cr Iiíii eina sanna |>öll scni Kt. A hciiir inynda vituiii vcr ckki. Kannski cr þctta skilningstrcO, askur Vggdrasils ciia jaf'nvcl sólhcrjatrc. Hvcr veit? Bátar og togarar: Þokka- leg afla- brögð á Húsavík - Fyrsta flokks hráefni Húsavíkurbátar og togarar hafa aflað þokkalega að undanförnu og að sögn Tryggva Finnssonar, fram- kvæmdastjóra Fiskiðjusamlags Húsavíkur þá hefur þeim bor- ist hinn sæmilegasti afli. Að undanförnu hafa bátarnir aðallega verið á netum og snur- voð og var afli allgóður þar til fyrir nokkru að afturkippur kom í veiðarnar. Sama og ekkert hef- ur fiskast á línu. Júlíus Havsteen ÞH hefur ver- ið á rækjuveiðum og aflað sæmi- lega að sögn Tryggva Finnssonar en Kolbeinsey ÞH hefur verið á bolfiskveiðum og yfirleitt landað blönduðum afla. Hið nýja niðurlagningarfyrir- tæki Fiskiðjusamlagsins hefur einnig gengið þolanlega að sögn Tryggva og allt það sem framleitt hefur verið hefur selst jafnóðum. - ESE Það verður rigning og slydda af og til fram cftir deginum, en síðan á að létta til þegar líður að kvöldi og reiknað er með bjartviðri fram yftr miðjan morgundaginn. Þá á aftur að þykkna upp með rigningu og suðlægri átt. A sunnudag cr spáð bjartviðri, en það verður frekar kalt í lofti þó það ætti að hlýna sæmilega á mcðan sólin er sem hæst á lofti. Hætt er við næt- urfrosti aðfaranótt mánudagsins, en síðan er reiknað með hlýnandi veðri eftir helgina. „Við sjáum fram á sumarblíðu hjá ykkur norðanlands á mánudag og þriöjudag," sagði Bragi Jónsson, veðurfræðingur í morgun. Steilmann sportfatnaður er vestur-þýsk gæðavara. H & M barnafatnaðurinn sænski er þekktur fyrir góða hönnun. DON CANO sportfatnaðurinn er íslensk gæðaframleiðsla. S88SSS Nv....■í'.Ái y'-. Dömutöskur í úrvali

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.