Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 9
25. maí 1984-DAGUR-9
Kristján frá Djúpalæk skrifar
Hinn mikli bjartsýnismaöur Guö-
laugur í Karnabæ ætlar að fara að
opna „stjörnuspekimiðstöð“ við
Laugaveginn. Við eigum að geta
gengið þarna inn og fengið að
vita allt um okkur sjálf og fram-
tíð okkar.
Fyrst gefum við stjörnuspeki-
miðstöðinni upp nákvæmlega
fæðingarstund og -stað, tölva
möndlar svo upplýsingar okkar
til og við fáum klárt og kvitt
hvernig innviðir okkar eru, hvað
fyrir okkur liggur og hvernig við
eigum að haga okkur framvegis.
Hér er um mjög merka fram-
kvæmd að ræða. Furðulegt að
slík stofnun skuli ekki löngu
risin, t.d. á vegum kirkjunnar.
Mætti þá margt betur hafa farið,
„á lífi og sálu“. Að vísu hafa
blöðin séð okkur fyrir daglegum
stjörnuspám; en þær eru ekki
tölvuunnar og vart hundrað prós-
ent nákvæmar - forritin kannski
heldur ekki nógu traust.
Fó hefur oft hvarflað að mér
hvort ekki væri hægt að krefjast
skaðabóta af blaði mínu vegna
rangra spádóma í krabbamerki
suma daga. Blaðið mitt er ábyrg-
ur fjölmiðill sem ég hlýt að taka
trúanlegan. Svo les ég kannski að
morgni að í dag eigi ég að hljóta
mikinn fjárhagslegan vinning,
verða frægur fyrir merkilega upp-
götvun og njóta að kveldi sér-
staks atlætis fegurðardísar: Ég
hætti því illa launaðri vinnu, þar
eð fjárvon er fyrir höndum,
hugsa í mig höfuðverk um tækni-
lega nýjung og bíð i ofvæni fram
á nótt eftir fegurðardísinni. En
hvað gerist? í stað peningasend-
ingar fæ ég rukkun frá heimilis-
tryggingum og hitaveitu, stein-
Spáð í stjömur
gleymi skáldlegri hugsun frá í
nótt; og í stað fegurðardísar í ást-
arhug birtist kerlingarskrukka
undir kvöld sem vill troða upp á
mig happdrættismiða nýs félags
til verndar meydómi. Sem sagt;
allur spádómurinn svik og lygi og
ég má þola skömm og skaða
bótalaust.
Því hlýt ég að beina þeirri
fyrirspurn til Líndals þjóðarlög-
fræðings hvort blað mitt sé ekki
skaðabótaskylt vegna svikinna
fyrirheita. Það er hvergi tekið
fram að blaðið beri ekki ábyrgð
á sanngildi spárinnar.
Raunabætur
Stjörnuspekimiðstöðin verður
ailt önnur. Þar vinnur tölvan
sjálf. Betur hefði stofnunin verið
komin fyrr. Hugsum okkur bara
ef Albert, bóndi á ríkisbúinu,
hefði getað labbað sig inn á
Laugaveg 66 þegar hann fór að
huga að ásetningi síðastliðið
haust og fengið þar upp hve
margt fé hann mætti setja á
vetur, skv. þeim baggafjölda er
hann ætti í hlöðu. Þá hefði hann
ekki verið orðinn heylaus um
áramót og séð fyrir sér hlöðuna
sem eitt heljarstórt gat eða
gímald. Spáin hefði sagt: Þú átt
þetta mikinn heyforða í hlöðunni
og þetta mikinn fóðurbæti. Þú
getur sparað þetta marga bagga
með skynsamlegri beit. - Hann
hefði óðar skorið af fóðrum, nýtt
að fullu útbeit, jafnvel staðið yfir
með tíkina í útsynningi meðan
nokkrar snapir voru - og allt
hefði bjargast fram á græn grös.
En það var engin stjörnuspá:
Albert bóndi heylaus um jól og
ríkisbúið sá fyrir horfelli. Því
varð bóndi að labba fyrir dyr
okkar, hvers „smábónda“, og
biðja (og hóta) að fá nú tuggu í
poka af okkar litlu heybirgðum.
Heyupptöku hjá „smábændum"
lauk með illum afleiðingum er
síðasta hækkun landbúnaðarvara
var kynnt.
En stjörnuspástöð hefði einnig
getað bent þessum vini litla
mannsins, „smábóndans" svo að
við höldum líkingunni, á að enn
stendur „gamla heyið“ óhreyft.
Brandur á Hóli er enn á dögum
meðal vor og vappar kringum
kleggjann sinn. En samúð þeirra
er nú ráða ríkjum virðist öll með
Brandi. Stjörnurnar virðast hafa
raðast lánlegar upp í „hús“ við
fæðingu hans en okkar.
Fjallkonan
Svo var það dag einn að Fjallkon-
an íslenska skrýddist svörtum
samfestingi niðurmjóum og labb-
aði sig inn á stjörnuspástofuna að
forvitnast um framtíð sína og
barna sinna.
Eftir að hafa stungið viðeig-
andi forriti í tölvuna fékk hún
svörin:
Sjálf máttu kannski búast við
nauðgun bráðlega, án bóta, og
skaltu varast öngstrætin - en
börn þín munu pluma sig. 90%
þeirra ganga menntaveginn og
vinna þvt ekki með blautar
hendur, 10% verða í dreifbýlinu
að stjórna þeim ný-sjálensku sem
vinna laxfisk, alinn í kælivatni ál-
veranna. Loðna, rækja, humar,
hörpudiskur og önnur slík sjávar-
dýr verða þá uppveidd en bolfisk-
ur dauður úr hungri og þar með
hringormur.
Fullorðið fólk og börn dvelja í
sumarhúsum og á sólbaðsströnd-
um fjarlanda en ungu stúlkurnar
verða á faraldsfæti um heiminn
með fegurðarskírteini sín að efla
hróður landsins, ungir piltar í
breikdansi hér og þar.
Eitthvað verður enn af fólki
við að matreiða síðustu leifar
búpenings fyrir mink og ref.
Stjórnmálaflokkum mun fjölga;
og verður þá munur þeirra enn
minni en nú ef hægt er því æ
þrengist um málefnin; enda hafa
reaganar þá tekið að sér skuldir
þjóðarinnar og vilja ráða nokkru
um reikningshaldið um leið og
þeir stugga Rússum út úr helgi
lofts og lagar.
Þá munu íbúðir flestra lands-
manna nýttar af kvikmyndagerð-
arfólki að vestan sem filmar hér
glæpamenn og umskiptinga í
tungllandslagi er stóriðja hefur
fullkomnað. En er haustar kemur
fjöldinn heim, taka þá flestir til
við skólanám, hinir kenna - af-
gangurinn matar tölvur.
En hvað um menninguna?
spurði Fjallkonan. Það verða
vídeó, var svarið. En bókin?
spurði sú aldraða. Hvað er það?
spurði tölvan á móti. Vafðist þá
Fjallkonunni tunga um tönn. -
En ástkæra, ylhýra málið? spurði
hún loks. „Error,“ kom á
skjáinn.
Þá gekk Fjallkonan hnuggin á
braut og hefði farið beint á hæli
eða sjúkrahús hefðu þau ekki
verið íokuð.
En nú er best að líta á stjörnu-
spá blaðsins fyrir sjálfan sig:
\m krabbinn
\<'92 21. JÚNf—22. JtlLl
J Ef þú foróast ad eyAa fjármuii-|
í um í vitlev.su getur þetU orðiðl
góður dagur hvaA varAar tilfinn-f
mgatengsl. Þetta er góAur dagurl
varAandi ástarmilin en mundul
aA vera kurteis.
★ Bflasalhm sf. • Símar 24119 og 24170 * Bflasalinn sf. - Símar 24119 og 24170 ★ Bflasalinn sf. ■ Símar 24119 og 24170
&£>
O
©X)
o
a
t-H
c3
cn
Opnum lauganlaginn 26.
nmí eina gjfæsHegustu húasölu lamkins
Komið, skoðið og njótíð veitinga í björtíun og rúmgóðum
sýningarsal vorum að Hvannavöllum (gegnt Lindu)
BOl er besta Imisnin BÍLASALENN SF.
Símar 24119 og 24170.
C/3
£
I—ó
o
loro
£
BS
£
s
£
oare 6im JBu|{s • «^03 * mn80 6im JBtu!s • -js mipsnpg 4 ^ 30 ™«s • 'Þ uunKSBDa »