Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 16

Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 16
16-DAGUR-25. maí 1984 Föstudagur 25. maí 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum. 3. þáttur. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Á döfinni. 21.05 Læknir á lausum kili. (Doctor at Large) Bresk gamanmynd frá 1957, gerð eftir einni af lækna- sögum Richards Gordons. Leikstjóri: Ralph Thomas. Aðalhlutverk: Dirk Bogarde, Muriel Pavlow, Donald Sind- en og James Robertson Justice. Símon Sparrow læknir er kominn til starfa á St. Swith- ins-sjúkrahúsinu þar sem hann var áður léttúðugur kandídat. Hann gerir sér vonir um að komast á skurð- stofuna en leiðin þangað reynist vandrötuð og vörðuð spaugilegum atvikum. 22.40 Setið fyrir svörum i Washington. í tiiefni af 35 ára afmæli Atl- antshafsbandalagsins svar- ar George Shultz, utanrikis- ráðherra Bandaríkjanna spurningum fréttamanna frá aðildarríkjum Atlants- hafsbandalagsins, e.t.v. ásamt einhverjum ráðherra Evrópuríkis. Af hálfu ís- lenska sjónvarpsins tekur Bogi Ágústsson fréttamaður þátt í fyrirspurnum. Auk þess verður skotið á um- ræðufundi kunnra stjórn- málamann og stjórnmála- fréttamanna vestanhafs og austan. Dagskrárlok óákveðin. Laugardagur 26. maí 13.15 Bein útsending frá leik Stuttgart og HSV. 16.30 Iþróttir. 18.10 Húsið á sléttunni. Lokaþáttur - Vegir ástarinn- ar II. 18.55 Enska knattspyrnan. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 í bliðu og stríðu. 2. þáttur. 21.00 Kvöldstund með Buffy Sainte-Maríe. Söngvaþáttur frá kanadíska sjónvarpinu. 21.55 Þúsund trúðar. (A Thousand Clowns) Bandarísk gamanmynd frá 1956, gerð eftir leikriti eftir Herb Gardner. Leikstjóri: Fred Coe. Aðalhlutverk: Jason Robards, Barbara Harris, Martin Bals- am, Barry Gordon og Gene Saks. Sjónvarpsþáttahöfundur hef- ur sagt skilið við starf sitt og helgar sig nú einkum uppeldi systursonar síns 21.05 Collin - síðari hluti. 22.35 íþróttir. 23.05 Fréttir i dagskrárlok. 29. maí 19.35 Hnáturnar. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 Vinir dýranna. Kanadisk heimildamynd um trúarflokk Hindúa í Norð- vestur-Indlandi. 21.15 Verðir laganna. 2. þáttur. 22.05 Ofbeldi gegn konum. Umræðuþáttur. 22.55 Fréttir í dagskrárlok. 30. maí 18.00 Evrópukeppni meist- araliða. Roma og Liverpool. 20.05-20.15 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.45 Nýjasta tækni og vís- indi. 21.15 Beriin Alexanderplatz. Þriðji þáttur. 22.30 Úr safni sjónvarpsins. Við Djúp. Lokaþáttur. 23.05 Fréttir í dagskrárlok. sem hjá honum býr. En dag nokkurn ber fulltrúa barna- verndarnefndar að garði til að kanna heimilisaðstæður. Þykir honum það ekki til- hlýðilegt að forráðamaður drengsins skuli ganga at- vinnulaus. 00.00 Dagskrárlok. 27. maí 18.00 Sunnudagshugvekja. 18.10 Afi og bíllinn hans. Lokaþáttur. 18.15 Tveir litlir froskar. Lokaþáttur. 18.25 Nasarnir. 4. þáttur. 18.35 Börnin á Senju. 1. Vor. 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fróttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Sjónvarp næstu viku. 20.55 Á efri árum. Sænskir sjónvarpsmenn lit- ast um á Eyrarbakka og hitta að máh tvo aldraða Eyrbekkinga, þá Guðlaug Pálsson og Vigfús Jónsson. 21.25 Collin - fyrri hluti. Vestur-þýsk sjónvarpsmynd í tveimur hlutum. Aðalhlutverk: Curd Júrgens, Hans-Christian Blech og Thekla Carola Wied. 23.05 Dagskrárlok. 28. mai 19.35 Tommi og Jenni. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Dýralífsmynd um villtu kanínuna í Bretlandseyj- um. Föstudagur 25. maí 19.00 Kvöldfréttir • Tilkynn- ingar. 19.50 Við stokkinn. Stjórnendur: Margrét Ólafs- dóttir og Jórunn Sigurðar- dóttir. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a) Tíbrá. Úlfar K. Þorsteinsson les úr ljóðmælum Einars Bene- diktssonar. b) Dalamannarabb. Ragnar Ingi Aðalsteinsson ræðir við Pétur Ólafsson í Stórutungu á Fellsströnd um trúarskoðanir hnas og trúar- reynslu. 21.10 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson kynnir. 21.35 Framhaldsleikrit: „Hinn mannlegi þáttur" eftir Graham Greene. III. þáttur endurtekinn: „Brúðkaup og dauði". 22.15 Veðurfregnir • Fréttir • Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.35 Djassþáttur. Umsjónarmaður: Gerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.15 Kvöldgestir - þáttur Jónasar Jónassonar. 00.50 Fréttir • Dagskrárlok. Næturútvarp frá Rás 2 hefst með veðurfregnum kl. 01.00 og lýkur kl. 03.00. 26. mai 7.00 Veðurfregnir • Fréttir • Bæn • Tónleikar - Þulur vel- ur og kynnir • 7.25 Leikfimi • Tónleikar. 8.00 Fréttir • Dagskrá • 8.15 Veðurfregnir • Morgunorð. 8.30 ForuBtugr. dagbl. ■ Tón- leikar. 9.00 Fróttir • Tilkynningar • Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir • 10.10 Veður- fregnir) Óskalög sjúklinga frh. 11.20 Umferðarkeppni skóla- barna. Nemendur úr Hvassaleitis- og Austurbæjarskóla keppa til úrslita í spurningakeppni 12 ára skólabarna um um- ferðarmál. Umsjónarmenn: Baldvin Ottósson og Páll Garðars- son. 12.00 Dagskrá ■ Tónleikar ■ Tilkynningar. 12.20 Fróttir • 12.45 Veður- fregnir • Tilkynningar • Tónleikar. 13.40 íþróttaþáttur. Umsjón: Ragnar Örn Péturs- son. 14.00 Listalif. Umsjón: Sigmar B. Hauks- son. 15.10 Listapopp. - Gunnar Salvarsson. 16.00 Fréttir ■ Dagskrá • 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Framhaldsleikrít: „Hinn mannlegi þáttur" eftir Graham Greene. IV. þáttur: „Drápum við ekki réttan mann?“ 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegistónleikar. 18.00 Miðaftann í garðinum með Hafsteini Hafliðasyni. 18.15 Tónleikar • Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir ■ Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir • Tilkynn- ingar. 19.35 „Guðs reiði" Útvarpsþættir eftir Matthías Johannessen. IV. hluti: „Marmari og bál- köstur" Stjórnandi: Sveinn Einars- son. Flytjendur auk hans: Þor- steinn Gunnarsson, Borgar Garðarsson, Pétur Einars- son, Kristín Anna Þórarins- dóttir og Guðmundur Magn- ússon, sem er sögumaður. 20.00 Ungir pennar. Stjómandi: Dómhildur Sig- urðardóttir. 20.10 Góð barnabók. Umsjónarmaður: Guðbjörg Þórisdóttir. 20.40 Norrænir nútimahöf- undar, 10. þáttur: Inge Eriksen. Hjörtur Pálsson sér um þátt- inn og ræðir við skáldkon- una, sem les upphaf dag- bókarkafla, er einnig verður lesinn í íslenskri þýðingu. 21.15 A sveitalínunni í Grímsey. Þáttur Hildu Torfadóttur, Laugum í Reykjadal. 22.00 „Sjóferð sumarið 1956", smásaga eftir Margréti Hjálmtýsdóttur. Þómnn Pálsdóttir les. 22.15 Veðurfregnir • Fréttir • Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson. 23.05 Létt sígild tónlist. 23.50 Fréttir ■ Dagskrárlok. 24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. 27. maí 8.00 Morgunandakt. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir • Forustu- gr. dagbl. 8.35 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar. 10.00 Fréttir ■ 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks Páls Jónsson- ar, 11.00 Messa í Háteigskirkju. Prestur: Séra Amgrímur Jónsson. Organleikari: Ortulf Pmnner. Hádegistónleikar. 12.10 Dagskrá ■ Tónleikar. 12.20 Fréttir ■ 12.45 Veður- fregnir ■ Tilkynningar ■ Tónleikar. 13.45 Nýjustu fréttir af Njálu. 14.25 Aristóteles norðursins. Þáttur um Emanuel Swed- enborg, tekinn saman af Ævari R. Kvaran. Lesari með honum: Rúrik Haraldsson. 15.15 í dægurlandi. 16.00 Fréttir • Dagskrá ■ 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Háttatal ■ Þáttur um bókmenntir. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegistónleikar. 18.00 Við stýrið. Umsjónarmaður: Amaldur Árnason. 18.15 Tónleikar • Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir • Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir • Tilkynn- ingar. 19.35 Eftir fréttir • Þáttur um fjölmiðlun, tækni og vinnu- brögð. Umsjón Helgi Pétursson. 19.50 „í leit að lifsfyllingu", ljóð eftir séra Sigurð Helga Guðmundsson. Höfundur les. 20.00 Þúst ■ Umræðuþáttur unga fólksins. ' Umsjónarmenn: Þóroddur Bjarnason og Matthías Matthiasson. 21.00 Skúli Halldórsson sjö- tugur. 21.40 Útvarpssagan: „Þús- und og ein nótt" 22.15 Veðurfregnir • Fréttir • Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.35 Kotra. Stjómandi: Signý Pálsdóttir. 23.05 Blágrasadjass. Ólafur Þórðarson kynnir Tony Rice, Mark O'Conner, David Grisman o.fl. 23.50 Fréttir ■ Dagskrárlok. Að undanförnu hafa ýmsir fjölmiðlar gert sér mat úr ætluðum skærum huldufólks vegna lagningar Leiruvegar- ins, sem nýlega eru hafnar framkvæmdir við. Tæki sem notuð eru við vegagerðina eiga að hafa bilað eða allt að því sokkið í sandinn - og leitt er að því getum að huldufólk sem talið er að eigi sér bæ í Hallandabjörg- um eigi sök á þessu. Hér er verið að gera mikið úr engu, því vitað var um bilunina í jarðýtunni áður en fram- Mikið úr engu kvæmdir hófust og engin vinnuvélin er sokkin enn. Að vísu hafði „peyloderinn" lent í vilpu á leið yfir Leirurnar, einfaldlega vegna þess að honum var ekki ekið rétta leið. Og við því var búist að svona gæti farið. Þess vegna hafði dráttartaug verið tengd úr „peylodern- um“ yfir í ýtuna áður en lagt var upp og ýtan var ekki í neinum vandræðum með að kippa félaga sínum á þurrt. Raunar hefur þetta allt komið fram í greinum fjöl- miðlanna, en samt eru ímyndaðar skærur huldu- fólksins gerðar að stórmáli og grimmt vitnað í skrif Helga Hallgrímssonar, nátt- úrufræðings, um bæ huldu- fólksins og einnig hafa verið höfð við hann viðtöl. Nú veit ég að Helgi frændi minn er klókur og jafnframt mik- ill húmoristi. Hann er því vís til að hafa komið þessu öllu af stað „í gamni“, nema honum sé full alvara með að nota huldufólkið til að stöðva gerð Leiruvegarins, sem Helgi er ekki par hrif- inn af. En ég hef enga trú á því að huldufólkið sé mótfallið þessari vegarlagningu, því þetta ágæta fólk hefur haft orð á sér fyrir að vera skyn- samt - og ég held að leiðin yfir Leirurnar og út og upp Vaðlareit sé skynsamleg lausn á vegarstæði yfir Fjörðinn. Að vísu tekur það okkur eflaust einhvern tíma að venjast honum í um- hverfinu, rétt eins og Drottningarbrautinni á sín- um tíma. En hver hefur horn í síðu hennar nú? Ég hygg að það verði tilkomu- mikil sjón sem bíður vegfar- enda um þessa nýju að- komuleið og spurning hvort ekki þarf að leggja sérstaka útsýnisbraut meðfram sjálfri akbrautinni til að minnka slysahættu. Þetta á ekki síst við um Vaðlareit, en þaðan er tilkomumikið útsýni vest- ur yfir Fjörðinn og ekki skemmir skógi vaxið um- hverfið. Þá loksins fáum við að njóta þess skógar sem hugsjónamenn sáðu til. Vegurinn skemmir hann ekki, en verður til þess að fólk á auðveldara með að njóta gæða hans. Ég held að huldufólkið skilji þá kosti sem vegagerðarmenn sáu við þetta vegarstæði. Þar að auki hef ég fyrir því trúverð- ugar heimildir, að vegurinn komi alls ekki til með að skerða huldubæinn í Hall- andabjörgum. Þvert á móti skilst mér að hann komi til með að liggja þar um hlað eins og þjóðbraut. Huldu- fólkið hefur þá hugsanlega gagn af vegagerðinni. Því ættu allir að geta unað glaðir við sitt, enda sækist Héraðs- mönnum vegagerðin vel. Gísll Sigurgeirsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.