Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 6

Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 6
6-DAGUR-25. maí 1984 Togarar, flutn ingaskip og alvopnað varðskip — sigldu hraðbyri á Leirutjörninni í Innbænum á Akureyri sl. mánudag „Ég er búinn að kenna í Barnaskóla Akureyr- ar í um 20 ár, og flest vorin höfum við farið hingað til að sigla, “sagði Karl Hjaltason hand- menntakennari við Barnaskóla Akureyrar er við hittum hann við tjörnina í Innbœnum á Akureyri s.l. mánu- dag. Karl var ekki aldeilis einnáferð, því hvarvetna umhverfis tjörnina iðaði allt af lífi. Flestir drengjanna höföu haft með sér skip á staðinn og í ljós kom að sjálfir höfðu drengirnir smíðað þessi skip undir handleiðslu Karls. Og þarna flutu þau, togarar, seglskip, flutningaskip máluð í litum Eim- skipafélagsins og Karl sjálfur var með varðskip eitt mikið og fagurt. „Þessi skip eru búin til úr dósaefni sem er klippt og lóðað saman og það má segja að þetta sé ekki mikill vandi og krakkarinr virðast hafa gaman af þessu. Að minnsta kosti sé ég ekki betur en að það sé allur skólinn hérna í dag,“ sagði Karl. ,/Etla í flugið“ „Flugvélarnar eru skemmtilegri," sagði Porvaldur L. Sigurjónsson sem sprangaði um með skipið sitt. „Pað er meiri vinna við að búa þær til sem gerir það að verkum að það er skemmtilegra að eiga við þær. Tré- verkið er skemmtilegt," bætti For- valdur við. Ætlar hann að verða trésmiður? „Nei, það er löngu ákveðið mál að ég verð flugmaður, það hefur verið ásetningur minn síðan ég var smá- gutti.“ „Það er svolítið erfitt að búa til þessi skip,“ sagði félagi Þorvaldar, Sverrir Gestsson. „Ég læt alveg vera hvað það var skemmtilegt enda er al- veg grautfúlt að læra, sama hvað það er.“ Tryggvi Tryggvason sagði að gerð skipsins sem hann var með hefði ver- ið nokkuð erfið. „Það þarf að lóða og svoleiðis með tini. Nei, ég er ekki með fjarstýringu á mínu skipi, ekki ennþá,“ sagði Tryggvi. Stelpurnar voru greinilega í minnihluta þarna á tjarnarbakkan- 3um, enda skýring til á því. Bæði er, að þær hafa ekki búið sér til skip, og eins var að ofan við tjörnina á gras- balanum voru þær í óða önn að hlaupa í skarðið. Það er því óhætt að segja að það hafi verið líf og fjör hjá nemendum Barnaskóla Akureyrar s.l. mánudag, það leyndi sér ekki. gk-- Karl Hjaltason kennari með varðskipið myndarlega. Vinirnir Þorvaldur og Sverrir með bátana sína. Karl ásamt nokkrum strákanna, allir með báta sína og skip og svo sannarlega glæsilegur floti saman kominn. Stclpurnar skemmtu sér við að „hlaupa í skarðiö"

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.