Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 15

Dagur - 25.05.1984, Blaðsíða 15
25. maí 1984 - DAGUR - 15 Árleg handavinnusýning á Dval- arheimilinu Hlíð verður laugar- daginn 26. maí kl. 14.00-17.00. Prjónaðir, heklaðir og saumaðir munir til sölu. Auk þess verða kaffiveitingar á boðstólum. Kaffihlaðborð. Vinsæla kaffihlaðborðið okkar verður nk. sunnudag 27. maí í Lóni Hrísalundi la kl. 15-17. Nemendur frá Dansskóla Sig- valda sýna breakdans. Geysiskonur. Fermingarbarnamót Eyjafjarð- arumdæmis verður haldið föstu- daginn 1. júní nk. og eru öll fermingarbörn á þessu vori vel- komin til þátttöku. Nánar verður sagt frá þessu móti í næsta blaði til þess að fermingarbörn geti til- kynnt sóknarprestum þátttöku sína. Hjálpræðisherinn Hvannavöllum 10. Sunnud. 27. maí kl. 17.00: Fjöl- skyldusamkoma. Yngriliðsmenn koma frá móti og taka þátt. Allir velkomnir. Kristniboðshúsið Zion: Sunnudaginn 27. maí: Samkoma kl. 20.30. Ræðumaður séra Þór- hallur Höskuldsson. Allir hjart- anlega velkomnir. Fíladelfia Lundargötu 12. Sunnudagur 27. maí kl. 20.30: Almenn sam- koma. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Hvítasunnusöfnuðurinn. Taktu nú þcgar afstöðu með stjórn Guðs. Opinber biblíufyrirlestur sunnu- daginn 27. maí kl. 10.00 í Ríkis- sal votta Jehóva, Gránufélags- götu 48, Akureyri. Ræðumaður Kjell Geelnard. Þjónustusam- koman og Guðveldisskólinn allltaf á fimmtudögum kl. 20.00 á sama stað. Allt áhugasamt fólk velkomið. Vottar Jehóva. Akureyrarprestakall: Guðsþjónusta verður í Akureyr- arkirkju nk. sunnudag 27. maí kl. 2 e.h. Sálmar 2, 7, 337, 338, 523. Munið bænadag íslensku þjóðkirkjunnar. Þ.H. Guðsþjónusta verður á FSA sama dag, bænadaginn kl. 5 e.h. Þ.H. A helgum degi Texli: Jóh. 17. 1-3. Lilíit líi Hvað er eilíft líf? Það er líf án enda. En að lifa endalaust væri ekkert að sækjast eftir ef það væri gleðisnautt líf, líf án markmiðs, án innihalds, án fyllingar. Það væri ekkert að sækjast eftir, ef það væri endalaust líf í þjáningu og neyð, ef það væri líf þar sem syndin og hið illa fær að komast að og nær tökum á manni. Eilífa lífið, sem Guðs orð talar um, er endalaust líf í fullu jafn- vægi, þar sem gleði og kærleiki ríkir og ekkert illt fær að komast að. Það er líf með Guði sérhvern dag, hverja stund. Jesús er sá sem gefur þetta líf. Guðs orð segir að eilífa lífið sé fólgið í því að þekkja hinn eina sanna Guð, og þann scm hann sendi, Jesúm Krist. Án Guðs og samfélags við hann bíður okkar aðeins eilíf glötun. Þess vegna er eilífa lífið fólgið í því að þekkja hann. Guði kynnumst við fyrir Jesúm Krist. Jesús opnaði okkur syndugum mönnum dyr inn til dýrðar Guðs. Þar er engin sorg og pína, hvorki harmur né kvöl. Þangað mun ekkert óhreint koma og enginn, „sem fremur viður- styggð eða iðkar lygi“. Op. 21,27. Til umhugsunar: Hvað heftir þú? „Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum." Að vera flytjendur eM$ lífs Guð hefur falið ölluin sínum læri- sveinum að vera þátttakendur í því að flytja þeim. sern ekki hafa lífið. eilíft líf. Iðnaðarhúsnæði Til sölu er gott iðnaðarhúsnæði í byggingu við Draupnisgötu. Um er að ræða 4 súlubil, sem hvert er um 64 fm. Unnt er að kaupa 1 súlubil eða fleiri. Mjög góð lán fylgja. Fasteignasalan Brekkugötu 4, Ak. Sölustjóri: Sævar Jónatansson. Lögmenn: Gunnar Sólnes hrl. Jón Kr. Sólnes hrl. Árni Pálsson hdl. HÓPFERÐABÍLAR Höfum til leigu hópferðabíla af stærðunum 8—40 farþega. Góðir og snyrtilegir bílar. Afgreiðsla sími 22133. Heimasímar: Eggert Jónsson, 22657 Kristján Gunnþórsson, 22288 Helgi Þórsson, 23625 Þóroddur Gunnþórsson, 21620 Kristján Grant, 21035 Örn Hansen, 24590 Garðurinn - Garðurinn! AJUt fyrir garðstörfin á hagstæðu verði . rx. T.d. handsláttuvélar 12“ og 16“, mótorsláttu* vélar margar gerðir, slöngur, slöngutengi, úðadælur, grasklippur, greinaklippur, alls konar smá garðverkfæri, garðhrífur, lóðahrífur o.fl. o.fl. Opnuðum í niorgun glæsilega tískuvöruvershm að Geislagötu 1 (gegnt slökkvistöðinni). Stórkostlegt úrval Komið og skoðið únaiið af fatnaði og skóm FLÓIN V.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.