Dagur - 08.08.1984, Blaðsíða 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
l»á er verslunarmannahelgin gengin um garð rélt einu sinni og eins og gengur á landinn um
hana misjafnar minningar. Heimildum ber ekki saman, en talið cr að alls hafi liðlega 20 þús-
und manns verið á skipulögðum útihátíðum helgarinnar, auk þess sem iiiikill mannfjöldi var
í Asbvrgi, Hljóðaklettura, Vaglaskógi og öðrum náttúruðum ferðamannastöðum. Á Vind-
heimamelum í Skagafirði var haldið Islandsmót hestamanna í hesfaíþróttum og þar var þessi
rnvnd tekin, af Einari Magnússyni á Tinnu Sörladóttur, en hún var kjorin afbragð annarra
hrossa á mótinu. Mynd: GS
Nokkur ölvun en
engin ólæti
Lögreglunni á Húsavík og Ak-
ureyri bar saman um að á þeim
stöðum þar sem fólk safnaðist
saman um helgina hafi allt far-
ið vel fram þrátt fyrir nokkra
ölvun.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri sem annaðist löggæslu í
Vaglaskógi var þar gífurlegur
fjöldi fólks, og var aðallega um
að ræða fjölskyldufólk. Nokkur
ölvun var á svæðinu eins og
gengur og gerist en lögreglan
þurfti lítil afskipti að hafa af fólki
og var t.d. ekki nema einn fjar-
lægður af svæðinu.
Að sögn mótshaldara að
Laugum voru þar um 1.000 manns
þegar flest var á Laugahátíð. Par
var nokkur ölvun á föstudags-
kvöld en síðan dró úr henni hægt
og sígandi. Ekki þurftu þeir aðilar
sem þar voru með gæslu mikið að
hafa sig í frammi.
Töluverður fjöldi fólks var
bæði í Ásbyrgi og Hljóðaklett-
um. Sömu sögu er að segja
þaðan, ölvun nokkur en allt fór
þolanlega fram. gk-.
Mættust
r m $C u
a miðri
brúnni
Geysiharður árekstur varð á
Kotárbrú í Skagafirði á sunnu-
dag er tveir bflar skullu þar
saman á miðri brúnni.
Aðkeyrslan er þannig að ef
tveir bílar koma að hvor úr sinni
áttinni og koma jafnt að brúnni
þá er stuttur tími til stefnu til að
draga úr ferðinni áður en þeir
mætast. Það var það sem gerðist
og báru ökumennirnir að þeir
hefðu ekki séð til hvors annars
fyrr en of seint.
Alls voru 7 í bílunum báðum.
Ein stúlka var flutt handarbrotin
á sjúkrahús á Akureyri, ein kona
kvartaði um innvortis eymsli og
var flutt í sjúkrahús á Sauðár-
króki en meiðsli hennar munu
hafa verið óveruleg. Annar bíll-
inn er mikið skemmdur eftir og
hinn talinn ónýtur.
Að sögn lögreglunnar á Sauð-
árkróki var helgin róleg hjá
þeim. Þó voru nokkrir teknir fyr-
ir of hraðan akstur og fimm grun-
aðir um ölvunarakstur. gk-.
Bíll
valtí
Vaðla-
heiði
Bílvelta varð í Vaðlaheiði um
helgina. Átti þetta sér stað í heið-
inni austanverðri og var um
fólksbíl að ræða. Bíllinn
skemmdist talsvert en tveir far-
þegar voru fluttir á sjúkrahús og
talið að þeir væru lítið sem
ekkert meiddir.
Þá varð um helgina bílvelta við
Lækjarbakka, rétt við Ferðanesti
á Akureyri. Sömu sögu er að
segja þaðan, nokkrar skemmdir
á bílnum en ekki meiðsli á fólki.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var gífurlega mikil umferð í
kring um bæinn en hún gekk vel
fyrir sig og ekkert stóróhapp átti
sér stað. gk-.
Bílvelta í
Langadal
- Allt með friði og
spekt í Húnaveri
Ung stúlka velti bifreið á móts
við bæinn Auðólfsstaði í
Langadal á föstudagskvöld.
Lenti hún í lausamöl og missti
við það vald á bifreiðinni.
Stúlkan var keyrð á sjúkrahús-
ið á Blönduósi til skoðunar en
fékk að fara þaðan strax aftur.
Bifreiðin er hins vegar ntikið
skemmd eða ónýt.
Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi var geysileg umferð
um Húnavatnssýslur um helgina,
sérstaklega á föstudagskvöldið og
fram á nótt þá, en þá var nær
óslitin bílaröð eftir Langadal.
Engin alvarleg óhöpp áttu sér þó
stað og enginn var tekinn fyrir
glannaakstur.
í Húnaveri voru dansleikir öll
kvöld helgarinnar. Flestir voru
þar á Iaugardagskvöld eða um
400 manns en ekki mikil ölvun og
allt fór vel fram samkvæmt upp-
Iýsingum lögreglunnar.
Hættulegur
leikur við
háspennu-
línur
Nokkuð hefur verið um það
undanfarið að krakkar hafi
verið að leika sér í köðlum sem
þeir hafa kastað yfír slár á
háspennustaurum. Síðan
sveiflað sér í köðlunum eins og
Tarsan gerði í trjánum.
Það þarf vart að taka fram að
þessi leikur er stórhættulegur og
væri ráðlegt af foreldrum að hafa
auga með því hvort krakkar eru
að þessum leik. Flugdrekar eiga
líka til að hafna á háspennustaur-
um og línum og af slíku getur
skapast hætta og óvarlegt að eiga
nokkuð við dreka sem þannig
hefur endað flugferð. - KGA
Gert er ráð fyrir suð-
vestlægri átt á öllu
landinu. Því fylgir
rigning fyrir vestan, en
þurrt fyrir austan, skil-
in verða sennilega
öðrum hvorum megin
við Skagafjörðinn,
trúlega þó vestan
megin.
# Hvað voru
margir?
Það er oft notað sem „trikk“
hjá þeim sem gangast fyrir
útihátíðahöldum og útifund-
um að gefa upp hærri tölu
samkomugesta en komu í
raun og veru og eru einna
frægustu dæmin þegar her-
námsandstæðingar í Reykja-
vík voru að funda hér í „den“
og gáfu alltaf upp tvöfalda
eða þrefalda tölu á vfð það
sem lögreglan sagði. - Ekki
veit S&S hvort forráðamenn
Laugahátíðar ’84 eru viljandi
að gefa upp ranga tölu um
gesti þar um helgina en þeim
tölum sem heyrst hafa frá
herbúðum að Laugum ber
ekki saman við aðrar sem
heyrst hafa. Þeir Laugamenn
segja að þangað hafi komið
um 1.200 manns þegar flest
var. Sumir viðmælenda S&S
segja að þarna hafi ekki verið
nema 2-300 og enn aðrir sem
tjáð hafa sig um málið, tala
um 6-700. Það er því óljóst
hversu margir gestir voru á
Laugahátíð.
# Naktir
„jökiar“
Hljómsveitin Skriðjöklar frá
Akureyri náði ekki gullverð-
laununum í hljómsveita-
keppninni í Atlavík eins og
„jöklarnir“ höfðu ákveðið, en
þeir gerðu allt sem í þeirra
valdi stóð til þess að vekja at-
hygli og fá atkvæði. Aðal-
trompið var að mæta með
bera bossa og „dilla“ þeim
framan í áhorfendur, en að
framan voru „jöklarnír"
íklæddir gæruskinnum,
sennilega frá Iðnaðardeild-
inni. En þetta hreif ekki, því
miður fyrir „Skriðjöklana“
sem sennilega mæta alisberir
næst er þeir gera atlögu að
verðlaunum í Atlavík.
# „Breakið“
sækir á
Óhætt mun að segja að hinn
svokallaði „break-dans“ sem
farið hefur eins og eldur í
sinu yfir heimsbyggðina sé
að festa rætur á Akureyri. Á
skemmtistöðum bæjarins
gerast sumir sífellt fyrirferð-
armeiri á dansgólfinu og má
sjá menn reyna hinar furðu-
legustu kúnstir, ótrúleg stökk
aftur á bak og áfram, skelli í
gólfið af krafti og áfram mættf
telja. Þannig var t.d. atriði
„utan dagskrár“ ( Sjallanum
sl. mánudagskvöld og kunnu
aðrir gestir vel að meta takt-
ana og klöppuðu dansaran-
um lof í lófa.