Dagur - 10.08.1984, Blaðsíða 15
10. ágúst 1984 - DAGUR - 15
Mikið um dýrðir
í Laxdalshúsi
Um helgina verður mikið um
dýrðir í Laxdalshúsi. Á laugar-
daginn verður þar heilmikill
Vivaldi-konsert, annað hvort
úti í garðinum eða inni, allt
eftir því hvernig blæs. Flytj-
endur verða Óliver Kentish,
Aðalheiður Matthíasdóttir,
fiðla, Gréta Baldursdóttir,
fiðla, Gyða Halldórsdóttir,
píanó, Dagbjört Ingólfsdóttir,
fagot, Rún Halldórsdóttir,
altblokkflauta, Sigurjón Hall-
dórsson, klarinet, Hólmfríður
Þóroddsdóttir, óbó og Þórar-
inn Stefánsson, píanó. Einnig
mun starfshópurinn Svartfugl
verða með torgstemmningu í
garðinum.
Á laugardagskvöldið munu
Þuríður Baldursdóttiur, alt-
sópran, Hrefna Hjaltadóttir,
lágfiðluleikari og Kristinn Örn
Kristinsson, píanóleikari,
flytja lög eftir Brahms fyrir
matargesti.
Auk þessa eru tvær sýningar
í Laxdalshúsi; Hörður Jör-
I undsson sýnir vatnslitamyndir
og Margrét Jónsdóttir sýnir
muni úr keramik. Borðljóðið
að þessu sinni er eftir Jón Er-
lendsson og er það tileinkað
Laxdalshúsi. Rúsínan í pylsu-
endanum er svo ostakynning,
sem Oddgeir ostameistari Sig-
urjónsson hjá Mjólkursamlagi
KEA verður með, sennilega
hvoru tveggja; á laugardags-og
sunnudagskvöld.
Unglingamót
ífrjákm
íþróttwn
Unglingamót í frjálsum íþrótt-
um verður haldið á Árskógs-
velli helgina 11.-12. ágúst.
Mótið hefst kl. 13.00 báða
dagana. Keppt verður í þrem-
ur flokkum drengja og stúlkna
16 ára og yngri.
HalH og
Laddi ásamt
félögum í
Dynheimum
um Mgfria
Það verður mikið um dýrðir í
Dynheimum um helgina, en
staðurinn hefur verið opnaður
aftur eftir myndarlegar breyt-
ingar og endurbætur, sem
gerðar hafa verið á húsakynn-
um hans í sumar.
Raunar byrja herlegheitin
með uppákomu HLH-flokks-
ins í göngugötunni seinnipart
föstudagsins, en til uppákom-
unnar koma flokksmenn ak-
andi í gömlum og virðulegum
drossíum í samfylgd mótor-
hjólahersveitar. Síðan verður
hörkudansleikur í Dynheim-
um um kvöldið, þar sem
HLH-flokkurinn sér um
stuðið. Á laugardaginn verður
síðan bryddað upp á nýjung í
Dynheimum. Þá verður barna-
skemmtun, já, raunar er
réttara að kalla það fjölskyldu-
skemmtun, þar sem HLH-
flokkurinn sér um skemmti-
atriði. Og það þarf ekki að
taka það fram, að þeir félagar
og bræður, Halli og Laddi, til-
heyra HLH-flokknum og ef-
laust eru þeir Eiríkur Fjalar og
Þórður gamli húsvörður einnig
með í ferðinni.
HLH-flokkurinn
á fleygiferð
Liðsmenn HLH-flokksins
landsfræga, þeir Halli, Laddi
og Björgvin Halldórsson
• hyggjast hertaka Akureyri
með stæl um helgina, og gang-
ast fyrir stanslausum uppá-
komum í dag og á morgun.
Þeir byrja í dag en þá aka
þeir í miðbæinn kl. 17.00 í
fylgd mótorhjóla en sjálfir
verða kapparnir í opnum bíl
og HLH-músíkin á útopnu.
Leiðin mun liggja í Vöruhús
KEA þar sem þeir ætla að
árita nýju plötuna sína og á
eftir taka þeir lagið í Hafnar-
stræti.
í kvöld skemmta þeir í Sjall-
anum en þeir mæta þangað
vegna fjölda áskorana eftir að
hafa slegið í gegn s.l. sunnu-
dag á fjölunum þar. Þeir
skemmta allir saman, bræð-
umir ætla síðan að sprella ör-
lítið einir og sér og Björgvin
hyggst taka lagið með hljóm-
sveit Ingimars Eydal sem nú er
mætt í klakann eftir að hafa
skemmt á Mallorca í nokkurn
tíma.
Á laugardag mætir HLH-
flokkurinn á leik KA og Þórs
á Akureyrarmótinu á aðalvelli
kl. 14.00. Þeir afhenda fyrir-
liðum liðanna plötur fyrir leik-
inn, og í hálfleik halda þeir
sýnikennslu í því hvernig
framkvæma skal vítaspyrnur
en það er ein af sérgreinum
þeirra.
Aftur liggur leiðin í Sjallann
um kvöldið og þar verður
sama prógram og í kvöld. Sem
sagt, þeir verða á ferð og flugi
á Akureyri í dag og á morgun.
Eyðir einum lítra
á hverja hundrað rnetra
Einn af þeim sem
verður með í
sandspyrnunni við
Hrafnagilsskóla
um helgina er
Bragi Finnboga-
son. Hann keppir
á Pontiac Firebird
sem hefur verið
breytt verulega með
sandspyrnu- og
kvartmílukeppni í
huga. „Ég byrjaði
að fikta við hann
78, “ segir Bragi.
„Það var svo upp
úr ’80 að ég fór að
breyta honum í þá
átt sem hann er
núna. Nei, blessað-
ur vertu, ég hef
ekki hugmynd um
hvað margar
vinnustundir liggja
íhonum. “
Vélin í bílnum er ekki
beinlínis af smærri gerð-
inni. „Hún myndi sóma sér
ágætlega í vörubíl. En ég
er hræddur um að eyðslan
hentaði ekki til atvinnu-
reksturs. Þegar hún er und-
ir álagi eyðir hún einum
lítra á hverja hundrað
metra,“ segir Bragi. Bætir
því við að að undanförnu
hafi hann átt í dálitlu basli
með vélina - hún eyddi
heldur litlu bensíni og það
kæmi fram sem minni
kraftur.
Þegar bíliinn var ræstur
fór nágrennið að nötra
sökum hávaðans. Þegar
tíðindamaður Dags settist
inn fékk hann strax á til-
finninguna að bíllinn ætlaði
að detta í sundur - allt lék
á reiðiskjálfi. Bragi benti á
að þetta væri ekkert miðað
við það sem gengi á þegar
í keppni væri komið. Svo
var gefið inn, bremsurnar
háðu hatramma baráttu við
vélina, bíllinn spólaði og
þegar bremsum var slegið
af stökk bíllinn af stað svo
að tíðindamaður þrýstist
aftur í sætið og fékk á til-
finninguna að hann væri í
flugyél í flugtaki. Mótorinn
orgaði, bíllinn geystist
áfram og ég gerði mér ekki
grein fyrir neinu fyrr en
Bragi hægði aftur ferðina.
Svo fórum við aðra bunu,
bremsurnar í erfiðisvinnu
á meðan dekkjunum var
smurt á malbikið - og svo
kom viðbragðið, eins og að
fá mörg hundruð tonna
trukk í rassinn og ég hélt ég
væri orðinn samgróinn sæt-
inu.
Svei mér ef ég var ekki
pínu ringlaður þegar við
stigum út úr Eldfuglinum
og ég þakkaði Braga fyrir
„rúntinn“.
- KGA
Benrn
sand-
spyma
á ktugardag
Sandspyrnan Bílabúð Benna
verður haldin að Hrafnagili á
laugardaginn. Það er Bíla-
klúbbur Akureyrar sem stend-
ur fyrir þessari keppni og er
þetta í annað sinn þetta árið
sem sandi er spyrnt á vegum
Bílaklúbbsins. Þarna verða
mættir allir kraftmestu bílar
landsins og þeir sem hafa
áhuga á að vera með geta haft
samband við Svein Rafnsson í
síma 26989.
Þessi keppni hefur verið ár-
legur viðburður hjá þeim í
Bílaklúbbnum og í hittifyrra
gerðu þeir stóra hluti, settu
Evrópumet og hvað eina. Það
er því ekki að vita nema met
fjúki á laugardaginn.
Undanrásir hefjast klukkan
tíu um morguninn, en til úr-
slitakeppni verður blásið
klukkan tvö. Það er um að
gera að mæta um morguninn,
enginn þarf að kvíða því að
maginn verði tómur, skammt
frá keppnisstaðnum er Blóma-
skálinn Vín, þar sem Sand-
spyrnukaffi verður á boðstól-
um.
Verðlaun eru óvenju
vegleg, stórglæsilegir bikarar,
sem eru til sýnis í útstillinga-
gluggum Vöruhúss KEA.
íþrótír um
helgina
Leikur Þórs og KA í Akureyr-
armótinu í knattspyrnu sem
fram fer á aðalveliinum kl.
14.00 á morgun er mesti knatt-
spyrnuviðburðurinn á Norður-
landi þessa helgi, og reyndar
er fátt um fína drætti í móta-
bókinni góðu.
Leikur KA og Þórs verður
án efa hörkuleikur. Nú leika
liðin aðeins einn leik, og það
. lið sem sigrar fær 2/3 af allri
' innkomu á leikinn. Bæði liðin
munu því leggja kapp á að
sigra og hljóta titilinn “besta
knattspyrnufélag Akureyrar
1984“ auk peninganna.
Af öðrum viðburðum má
nefna að nú stendur yfir úr-
slitakeppni fslandsmótsins í 5.
flokki. Keppnin fer fram á Ak-
ureyri og lýkur á sunnudag.
Golf
Eitt stórmót er um helgina, en
það er Opna Húsavíkurmótið.
Mótið hefst kl. 9.00 í fyrramál-
ið og verða þá leiknar 18 holur
og síðari 18 holurnar verða svo
leiknar á sunnudaginn. Leikið
er með og án forgjafar í karla-,
kvenna- og unglingaflokki og
er búist við mörgum golfurum
á Húsavík um helgina.
Landsmót
kristniboðs-
vina
Landsmót Kristniboðsvina
verður haldið hér á Akureyri
nú um helgina og hefst á föstu-
dag, en þangað koma fulltrúar
víðs vegar að af landinu til að
ræða málefni kristniboðsins
bæði hér á landi og erlendis.
En á föstudags- og laugar-
dagskvöld verða almennar
samkomur í Lundarskóla í
tengslum við kristniboðsmót-
ið, sem hefjast kl. 20.30, en
þar mun norskur æskulýðsleið-
togi, Gunnar Hamnöy predika
og er það mjög athyglisvert,
sem hann hefur fram að færa,
svo að fólk er hvatt til að koma
og hlusta á hann.