Dagur - 23.11.1984, Qupperneq 7
23. nóvember 1984 - DAGUR - 7
- 26732.
- Fréttamaður.
Erna Indriðadóttir?
- Já, það er hún.
- Góðan daginn og
velkomin riorður, Gísli
Sigurgeirsson hjá Degi
hérna megin. Hvernig er
vera komin :il Akureyrar?
- Mjög gott.
- Hvernig hafa Ákureyr-
ingar tekið þér?
Ég hef ekki orðið vör
við annað en að
fólk hér sé
afskaplega elsku
legt og þægiiegt í
’ “falla staði. Ég var
einmitt búin að
jl heyra að aðkomu-
illa tekið og það kynnt-
ist aldrei neinum. En ég held að
þetta sé ekkert öðruvísi hér en
annars staðar að þessu leytinu.
Ég er til dæmis ekkert viss um
að fullorðið fólk, sem flytur
utan af landi til Reykjavíkur,
hoppi inn í alla hluti þar fyrir-
hafnarlaust. Þess vegna held ég
að þetta ráðist meira af að-
komumanninum, heldur en
þeim sem fyrir eru.
- Akureyringar eru þá ekki
eins hundleiðinlegir og lokaðir
og af er látið?
- Nei, ekki er það mín
reynsla, langt því frá, ég hef
kynnst hérna elskulegu og
skemmtilegu fólki.
- Hvaða umskipti snertu þig
mest við flutningana?
- Ég held að það hafi snert
mig mest, að börnin mín voru
ekkert ógurlega hrifin af að
kveðja vini sína í Reykjavík og
flytja til staðar, þar sem allt var
nýtt og framandi. Nýir skólar og
nýir félagar; allt nýtt nema for-
eldrarnir.
- Nú er stundum talað um að
flytja úr „menningunni“ í
Reykjavík til menningarsnauðr-
ar landsbyggðarinnar?
- Það finnst ntér algjör mis-
skilningur og hér getur maður
haft þá menningu sem manni
sýnist. Ég sé ekki betur en að
hér sé ágætis leikhús. Hér er líka
mjög gott bókasafn, ábyggilega
betra bókasafn heldur en á
nokkrum öðrum stað á landinu,
og hér eru haldnir tónleikar og
sýningar, þó fjölbreytileikinn
sé ekki sá sami og syðra. Að
vísu finnst mér svolítið sér-
kennilegt, að iiafa bara eitt
kvikmyndahús með eldgömlum
myndum, sem maður er fyrir
löngu búinn að sjá. En það virð-
ist standa til bóta, því nú er í
undirbúningi að byggja hér nýtt
kvikmyndahús og þá get ég ekki
betur séð en að við verðum á
grænni grein hér norðan heiða.
- Hvað kom til að þú
ákvaðst að flytja norður, áttu
einhverja rótaranga hér?
- Það var nú ekki ástæðan
fyrir því að ég kom, heldur var
ástæðan sú, að manninum mín-
um, Pétri Reimarssyni, bauðst
vinna úti á Dalvík, sem hann
hafði hug á að spreyta sig á. Mér
fannst sjálfsagt að hann gerði
það og gat ekki séð annað en ég
gæti haft hér nóg að gera ef ég
kærði mig um. Nú, þegar það
var ákveðið að flytja norður
kom það til tals fyrir sunnan,
hvort ég vildi taka við starfi
fréttamanns hér. Og ég féllst á
það og fannst það spennandi
verkefni, þar sem þetta er að
mestu óplægður akur. Mér
finnst alltaf gaman að vinna við
hluti, sem ntaður getur mótað
sjálfur.
hér í
Norðurgötunni“
- Ema Indriðadóttir fréttamaður á línunni
- En áttu einhverja rótaranga
hér?
- Já, já, ég er innfædd, fædd-
ist í Norðurgötunni, en við flutt-
um fljótlega suður og þar hef ég
alið manninn lengst af síðan. En
móðurafi minn og amma bjuggu
hér og ég var mörg sumur í sveit
á Svalbarðsströnd sem stelpa.
Auk þess á ég hér talsvert af ætt-
ingjum og var hér um tíma sem
unglingur. Ég vissi því nokkuð
að hverju ég gekk.
- Þetta horfir nú allt öðruvísi
við, fyrst þú ert innfædd!!!
- Ha, ha, heldur þú það. Ég
hef nú ekki orðið vör við að fólk
hér sé snúnara en gengur og ger-
ist syðra. Ætli það skipti nokkru
máli hvort ég er innfædd eða
ekki.
- Finnst þér þitt fréttamat
hafa breyst eftir að þú kemur
norður?
- Já, ég get nú ekki ncitað
því. Það er nú einu sinni svo, að
fólk hefur oftast mestan áhuga
fyrir því sem er að gerast næst
því. Nú er ég kornin nær norð-
lenskum málefnum líðandi
stundar, sem mér finnst mörg
hver afskaplega skemmtileg og
áhugaverð. En ég er ekki eins
viss um að kollegum mínum fyr-
ir sunnan finnist þau eins mikið
tiltökumál. Mér finnst fréttum
af landsbyggðinni ekki hafa ver-
ið nægilega vel sinnt. Fréttarit-
arar útvarpsins til dæmis, hafa
yfirleitt haft það sem aukastarf
að senda útvarpinu fréttir og
því eðlilegt að þær séu stundum
af skornum skammti. Þar sent
flestir stærstu fjölmiðlarnir eru
í Reykjavík, er mikið af fréttum
þaðan, sem allir landsmenn
fylgjast þá með. Það ætti ekkert
að vera óeðlilegra að þeir sem
búa í höfuðborginni fylgist með
því sem gerist úti á landi.
- Nú eiga sumar staðbundnar
fréttir lítið erindi til allra
landsmanna; t.d. fréttir af sjó-
gangi við Skúlagötuna eða
ástandi Esjunnar. Hvað með
staðbundna stöð?
- Já, ég er mjög fylgjandi
staðbundnum stöðvum, þær
ættu auðvitað að koma og vera.
Hér hjá RÚVAK hefur til dæm-
is verið farið fram á það, að fá
að vera með staðbundnar út-
sendingar einhvern hluta úr deg-
inum, en það hefur ekki fengist
í gegn. En ég vona að það verði,
því í slíkum stöðvum er framtíð-
in. Mér finnst þetta spennandi
verkefni og hefði verið til með
að demba mér í staðbundið út-
varp strax.
- Hvernig viltu byggja efni
slíkrar stöðvar upp?
- Fyrst og fremst með frétt-
um úr mannlífi byggðarlagsins
og músík yrði mikils ráðandi í
dagskránni. Auk þess yrðu aug-
lýsingar héðan inn á milli. Dag-
skráin yrði sem sé miðuð við að
höfða til fólksins í byggðarlag-
inu; hún yrði nær því heldur en
sú dagskrá sem útvarpað er um
allt land.
- Nú á fréttaflutningur Ríkis-
útvarpsins að vera hlutlaus. Er
ekkert erfitt að framfylgja því
ákvæði?
- Ég veit ekki hvort frétta-
flutningur getur nokkurn tíma
verið alveg hlutlaus. I minni
vinnu hef ég reynt að þjóna því,
að sjónarmið sem flestra fái að
koma fram og það gerist þá oft-
ast á lengri tíma. Þetta getur
verið erfitt, en ég held að allir
fréttamenn geri þetta eftir sinni
bestu sannfæringu. Það er ekki
hægt að ná öllum sjónarmiðum
fram í einum og sama fréttatím-
anum, en ég held að það takist
þegar til lengri tíma er litið.
- Fxrðu stundum tiltal frá
pólitíkusum. sem vilja koma
sínum skoðunum fram?
- Já, stundum kemur það
fyrir, að stjórnmálamenn og
aðrir gera athugasemdir við það
sem maður er að gera. Þá reyni
ég að meta það og hafi ég gert
vitleysu leiðrétti ég hana. En
stundum hafa menn hringt, þar
á meðal stjórnmálamenn, og
ekki haft annað frarn að færa en
skammir og svívirðingar sem
hafa ekki verið til annars en
minnkunar fyrir viðkomandi.
- Er gaman að vera frétta-
maður?
- Já, það er mjög skemmti-
legt starf. Þetta líkist því að vera
á skólabekk stanslaust allt árið.
Fréttamaðurinn er sífellt að
setja sig inn í ný mál og daglega
er verið að segja honum eitt-
hvað sem hann hefur ekki vitað
áður. Nú síðast hef ég fengið að
kynnast landsbyggðarmálum og
það er mikill skóli, sem ég held
að sé heilmikill ávinningur fyrir
mig sem fréttamann að hafa
komist í.
- Þakka þér fyrir spjallið
Erna, ég vona að þú búir við
velsæld á Akureyri og festir þar
rætur.
- Þakka þér fyrir, það er
aldrei að vita hvað maður verð-
ur hér lengi. Ég vil ekki spá
neinu um það. - GS
Akureyringar - Bæjargestir
Dansleikur
laugardagskvöldið 24. nóvember
Matur framreiddur til kl. 22.00
Kristján Guðmundsson leikur létta tónlist
fyrir matargesti.
Hljómsveit Steingríms Stefánssonar
leikur fyrir dansi til kl. 02.00.
Nýtt áNorðurlandi
Slípum og
lökkum
viðargólf.
Látið okkur gera gamla
parketið sem nýtt.
HUSPRYÐI s/f'v\ Ingólfur Bragason
pósthólf 251 ■ 602 AKUREYRi\málarameistari,
ími 96-22114
Vignir Víkingsson
málarameistari, sími 96-25445.
Málun - Veggfóðrun - Fjölmynstur - Parketlökkun
Úr kjötborði
Kjöt af nýslátruðu:
Dilkakjöt ★ Svínakjöt
Folaldakjöt, nýtt, saltað og reykt.
Munið tilboðin okkar.
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
N