Dagur - 23.11.1984, Side 11
23. nóvember 1984 - DAGUR - 11
Á bóka-
makaðinum
- Kristján frá Djúpalæk
skrifar
Sumar á Síldarfirði
Eyjólfur Kárason.
Á bókarkápu er upplýst að höfund-
arnafn sé dulnefni þess er ritar, þar
segir einnig: „Saga þessi gerist á
þeim árum, er síldarævintýrið var í
algleymingi. Frásögnin er byggð á
sönnum atburðum en færð í
stílinn....“ Söguþráðurinn er að ung-
ur sveitapiltur, Brandur, freistar gæf-
unnar á Síldarfirði (Siglufirði?) til að
vinna sér fyrir fé til skólagöngu næsta
vetur. Hann er afdalabarn, heimaln-
ingur. Hið hrjúfa líf og hraða, lífs-
hungur og lausung, verkar á hann
eins og köld gusa. Hann kann ekki
að taka kaldranalegu orðafari, upp-
nefnum, klámyrðum og kerskni sem
þarna tíðkast. Vinnan er erfið og
honum ótöm. Hann er því nokkuð
einmana þarna. En hans er ákaft
freistað til þátttöku í sjúklegri leit að
lífsfylling, en meðfædd og uppalin
siðferðiskennd ásamt með heilbrigðri
skynsemi sýna honum að sé förin í
geitarhúsið að leita ullar.
Án efa er lýsing höfundar á lífinu
í þessari veiðistöð sannferðug.
Slagsmál, þar sem gjarna blikar á
hnífsodd milli fingra, kynórar og
fyllirí, eru uppistaða flestra frásagna
af slíkum stöðum fyrr á árum, enda
síldin feitur fiskur og fjörefnaríkur.
Útlendir sjómenn og síldarspekúl-
antar setja svip á þessi grútarplön þar
sem peningalyktin fyllir vit, árekstrar
verða tíðir.
Saga þessi er ágæt dægradvöl, vel
gerð á flestum sviðum. Sýnilega á
Eyjólfur karlinn Kárason sér þann
bakmann er ekki þurfti staðgengil,
sá bakmaður kann vel að stýra
penna, kynni að vera meðal þeirra er
skáldanafn bera með réttu. Það er
hans mál að hylja sig. Bókin er 138
bls. og hin fríðasta.
Bátur
sökká
Eyjafirði
-Þrem mönnum bjargað
- Hann fór á hliðina á einni
kviku. Mastrið lagðist í sjóinn
en okkur tókst að komast upp
á stýrishúsið og losa gúmbjörg-
unarbátinn. Við vöknuðum
því bara í fæturna, sagði Heiö-
ar Baldvinsson, skipstjóri á
Grenivík í samtali við Dag í
morgun en bátur hans Þórunn
ÞH sökk á Eyjafirði í gær.
Er óhappið varð var báturinn
fyrir utan Ölafsfjörð. Auk Heið-
ars voru sonur hans, Hafþór og
annar maður, Árni Helgason um
borð. Ekki liðu nema um 15 mín-
útur þar til hjálp barst og varð
mönnunum ekki meint af volk-
inu.
- Ég skil ekkert í því hvernig
þetta gat gerst. Það var ekki
slæmt í sjóinn en væntanlega
kemur þetta allt í ljós við sjópróf-
in, sagði Heiðar Baldvinsson.
- ESE
A aug hrifamikijl. lýsingamióill liá
r1 strandgat; l AKUREY 31 h vp&J
Síðbúnar kveðjur sendi ég öllum Hjálparkonum
hér og þar. Margar eru búsettar hér á Akureyri en
eru með í orðum og athöfnum.
Kæru Hjálparkonur, félagsskap okkar blessunar bið ég
byggðinni hverjum gróandi reit.
í samtökum sjáum við máttinn, sækið fram,
vinnið dýrasta þáttinn í Guðstrú að gæfu leit.
LAUFEY SIGURÐARDÖTTIR
frá Torfufelli.
Leiðalýsing
St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkju-
garðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti
pöntunum í síma 22517 og 21093 fram til 7. des-
ember nk. Verð kr. 200 á krossinn. Þeir sem vilja
hætta tilkynni það í sömu síma.
Sjúkrahús á Akureyri
Tilboð óskast í innanhússfrágang í hluta 1. hæð-
ar tengibyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um
er að ræða nálægt 840 fm svæði fyrir geðdeild
sjúkrahússins.
Verktaki skal setja upp innveggi, hurðir og hengi-
loft, mála, ganga frá gólfum og smíða innrétting-
ar. Auk þess skal hann leggja loftræsi-, gas-, raf-,
vatns- og skolplagnir.
Verkinu skal að fullu lokið 1. maí 1986, en kann
að verða flýtt til 1. janúar 1986.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík og á skrifstofu umsjónar-
manns framkvæmdadeildar I.R., Bakkahlíð 18,
Akureyri, gegn 7.500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins,
fimmtudaginn 6. desember 1984 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Rafvirki
Óskum að ráða rafvirkja á verkstæði okkar. Til
greina kemur að viðkomandi geti rekið verkstæð-
ið sjálfstætt. Nánari upplýsingar á skrifstoftíma.
GtERÁRGOTU 20 — 600 AKUREYRI — SlMI 22233 —
Alúöarþakkir lil allra þeirra sem auösýndu okkur samúö og
vináttu við andlát og útför
EIÐS GUÐMUNDSSONAR,
Þúfnavöllum.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri fyrir góöa umönnun í veikindum
hans.
Líney Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn hins látna.
Rafvirkjar
Akureyri
Fundur um nýgerða samninga verður haldinn
mánudagskvöldið 26. nóvember nk. að Hótel
Varðborg kl. 20.00.
Ennfremur verður rætt um tilhögun á mynd-
bandafræðslu rafvirkja.
Önnur mál. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Kynning á Toshiba
örbylgjuofnum
verður haldin í Raf Kaupangi laugardaginn 24. nóvember
kl. 10-12 og kl. 14-16.
Dröfn H. Farestveit, husstjornar-
kennari, sérfræðingur okkar í með-
ferð og matreiðslu í örbylgjuofnum
heldur matreiðslukynningu.
Verið velkomin og kynnist því hvernig hægt er
að matreiða allan venjulegan mat í T0SHIBA
örbylgjuofninum á ótrúlega stuttum tíma.
Hvers vegna margir réttir verða betri úr
T0SHIBA ofninum en gömlu eldavélinni. Og
þér er éhætt að láta börnin baka.
Og síðast en ekki síst. Svo þú fáir fullkomið
gagn af ofninum þínum, höldum við mat-
reiðslunámskeið fyrir eigendur T0SHIBA ofna.
Kostir Toshiba:
Nákvæmur tímastillir * Fullkominn styrkstillir
Leiðbeiningatafla * Snúningsdiskur
Rúmgóður ofn úr ryðfríu stáli * Þrefalt hurðaröryggi
Námskeið fyrir tvo fylgir * Stór matreiðslubók fylgir
Ársábyrgð * íslenskur leiðarvísir
m mmm nýlagnir
VIOGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.