Dagur - 14.12.1984, Síða 15
14. desember 1984 - DAGUR - 15
Möðruvallaklaustursprestakall:
Mikið starfað
á aðventurmi
Á aðventunni er mikið um að
vera í kirkjulegu starfi í
Möðruvallaklausturspresta-
kalii.
Laugardaginn 15. desember
verður sameiginlegt föndur
ungra sem eldri, og er ætlunin
að búa til jólaskraut fyrir
heimilin og eins til að gefa
öldruðum. Föndrið byrjar kl.
13.30 og fer fram í Þelamerk-
urskóla.
Þá um kvöldið verður
kvöldstund við kertaljós í
Bakkakirkju og hefst hún kl.
21. Ræðumaður kvöldsins
verður Bjarni Guðleifsson
ráðunautur, en unglingar og
börn munu aðstoða með lestri
og einnig verður almennur
söngur. Kvöldstundinni lýkur
með því að börnin fá kerti sem
kveikt verður á.
Sunnudaginn 16. desember
Leikhíisferð
til Húsavíkw
Dynheimar og Leikklúbburinn
Saga hafa ákveðið að gangast
ogblak
Fremur lítið verður um að
vera á íþróttasviðinu á Akur-
eyri um helgina, aðeins boðið
upp á einn leik í blaki og einn
leik í handknattleik kvenna.
Blakleikurinn verður í 2.
deild karla á milli KA og
Þróttar frá Neskaupstað og
verður hann í íþróttahúsi
Glerárskóla kl. 15 á morgun,
laugardag.
Einn leikur verður í 1. deild
kvenna unt helgina, Þór og
Akranes mætast í íþróttahöll-
inni kl. 14.15 á morgun. Þórs-
stúlkurnar sem náðu sér í tvö
stig í Eyjum í vikunni cr þær
unnu ÍBV 21:18 hafa nú hlotið
3 stig í 1. deildinni, og með
sigri gegn Akranesi á morgun
gæti liðið styrkt stöðu sína
verulega í fallbaráttunni.
Bamagæsla
fytir jólin
Eins og mörg undanfarin ár
gangast unglingadeildir
K.F.U.M. og K.F.U.K. fyrir
barnagæslu í Kristniboðshús-
inu Zíon (Hólabraut 13). Hún
verður dagana 15. des. kl. 13-
18, 19. des. kl. 13-17, 20. des.
kl. 13-20, 21. des. kl. 13-19,
22. des. kl. 13-20 og 23. des.
kl. 13-17. Margt verður til
skemmtunar fyrir börnin eins
og leikir, kvikmyndir o.fl.
Verð er kr. 40 á tímann, en
veittur verður ríflegur systk-
inaafsláttur. Öll börn eru
hjartanlega velkomin.
Sölusýning
í Tuminum
I Nýja söluturninum í göngu-
götunni hafa nokkrir akur-
eyrskir listamenn hengt upp
verk sín, myndir, postulín og
kort, sem eru til sölu á hóflegu
verði. Þeir sem eiga verk á
sýningunni eru Ragnar Lár,
Samúel Jóhannsson, Páll
Sólnes, Guðmundur Ármann,
Jón Laxdal, Valgarður Stef-
ánsson, Alice Sigurðsson,
Sigurður Bragason, Iðunn Ág-
ústsdóttir, Örn Ingi og Sigurð-
ur Aðalsteinsson. Sýningin er
opin á sama tíma og ntiðasala
Leikfélags Akureyrar, frá kl.
2-6 á virkum dögum og frá 10-
4 á laugardögum.
fyrir leikhúsferð og verður hún
farin nk. þriðjudag. Haldið
verður til Húsavíkur og sýning
leikfélagsins þar á „Gúmmí-
Tarsan" barin augum um
kvöldið.
Þeir sem hafa áhuga á að
slást í hópinn eru beðnir um
að hafa samb'and í Dynheima
í síma 22710 fyrir sunnudags-
kvöld, eða mæta þar. Engin
aldurstakmörk eru varðandi
þátttakendur, allir velkomnir
sem áhuga hafa á að mæta til
að sjá þetta þekkta leikrit í
uppfærslu Leikfélags Húsavík-
ur. Farið verður frá Dyn-
heimumkl. 17.30 áþriðjudag.
verður barnasamkoma í
Möðruvallakirkju kl. 11 og kl.
14 verður jólafundur æsku-
lýðsfélagsins haldinn á prests-
setrinu.
Um kvöldið verður að-
ventukvöld í Möðruvalla-
kirkju með fjölbreyttri
dagskrá. M.a. mun kirkjukór-
inn syngja aðventu- og jólalög,
unglingar og börn lesa og
syngja, en ræðumaður kvölds-
ins verður Sverrir Pálsson
skólastjóri. Kvöldstundinni
lýkur með ljósahelgileik sem
æskulýðsfélagar annast. Sam-
koman hefst kl. 21.
Fimmtudagskvöldið 20. des-
ember verður kvöldstund við
kertaljós í Bægisárkirkju. Par
verður almennur söngur, börn
og unglingar lesa og ræðumað-
ur verður sr. Bolli Gústavsson
í Laufási. Að lokum verða
börnirt með Ijósahelgileik.
Á föstudagskvöldið þann
21. desember kl. 21 verður
kvöldstund við kertaljós í
Glæsibæjarkirkju. Börn og
unglingar munu lesa, al-
mennur söngur verður rnikill
og ræðumaður verður sr.
Helgi Hróbjartsson í Hrísey.
Að síðustu tendra börnin á
kertum sínum og allir syngja
jólasálminn Heims um ból.
Á Þorláksmessu þann 23.
desember fara börnin og ungl-
ingarnir úr prestakallinu í
heimsókn á Dvalarheimili
aldraðra í Skjaldarvík og flytja
heimilisfólkinu þar jólaboð-
skapinn með söng, lestri og
Ijósahelgileik. Sú samkoma
hefst kl. 16.
Luduhátíð
um hdgina
Johnny King
kynnir
nýju plötuna
Kántrýrokkkóngurinn Johnny
King verður á ferðinni á Akur-
eyri um helgina í því skyni að
kynna nýútkomna hljómplötu
sína, Country rock.
Johnny King kemur fyrst
fram í Dynheimum á föstu-
dagskvöld en á laugardag
kemur hann fyrst fram í Rad-
íóvinnustofunni í Kaupangi á
milli kl. 14 og 16 og um kvöld-
ið verður kappinn í Sjallanum.
Önnur nýútkomin plata frá
Stúdíó Bimbó, Dolli dropi
verður kynnt í verslunarmið-
stöðinni í Sunnuhlíð á laugar-
dag kl. 16. Þá verða þær Jóna
Axfjörð, höfundur og Heiðdís
Norðfjörð, sögumaður og
höfundur laga með uppákomu
fyrir börnin og kynna plötuna
um leið. Þá mun Páll Jóhann-
esson kynna plötu sína á sama
tíma.
Karlakór Akureyrar ásamt
Barnakór Akureyrar og
stúlknakór úr Hrafnagilsskóla
gangast fyrir Lúcíuhátíð í Ak-
ureyrarkirkju og félagsheimil-
inu Freyvangi nú um hclgina.
í Akureyrarkirkju verða
hátíðarnar á föstudagskvöld
kl. 20.30 og á sunnudagskvöld
á sama tíma, en að Freyvangi
á laugardag kl. 14.00.
Á söngskrá eru sautján lög
og skiptast í fimm þætti. Fyrst
syngur karlakórinn, þá 12
manna hópur karlakórs-
manna. Síðan syngur barna-
kórinn og þar á eftir barnakór-
inn og karlakórinn saman. Að
því búnu er Lúcíusöngurinn
sem stúlknakórinn frá Hrafna-
gilsskóla og karlakórinn flytja.
Hlutverk heilagrar Lúeíu
syngur Eygló Daníelsdóttir.
Merkigili. Loks syngja allir
saman Heims um ból.
Dagur heilagrar Lúcíu er
hátíðlegur haldinn víða um
lönd og mun sá siður upprunn-
inn í Svíþjóð. Þetta er í 12.
sinn sem Karlakór Akureyrar
gengst fyrir því hér.
Nýr stjórnandi Karlakórs
Akureyrar og Hrafnagilskórs-
ins er Atli Guðlaugsson en
Birgir Helgason stjórnar
Barnakór Akureyrar scm fyrr.
Þess má geta að frumflutt
verða tvö lög eftir söngstjór-
ana. Jól 1980 eftir Atla Guð-
laugsson við Ijóð Árna Grétars
Finnssonar og Söngur vitring-
anna eftir Birgi Helgason við
Ijóð séra Bolla Gústavssonar í
Laufási. Undirleikari er Ingi-
mar Eydal.
Ný harmonikuplata á markaðinn:
, fietta byrjaði í gleð-
skap á Raufarhöfn“
„Vinsœldir harmonikunnar
hafa aukist mjög mikið á síð-
ustu árum, það er ekki nokkur
vafi. Við sjáum það best á því
að síðan 1977 þegar harmon-
ikuklúbbur var stofnaður í
Reykjavík, hafa 7 slíkir klúbb-
ar verið stofnaðir í landinu. A
Húsavík var stofnaður klúbbur
árið 1978. Á stofnfund mœttu
15 spilarar en í dag eru um 70
manns í þeim klúbbi, allt Þing-
eyingar. Þetta sýnir vinsœldirn-
ar. “
- í>að er Aðalsteinn ísfjörð
harmonikuleikari frá Húsavík
sem þetta segir, en hann hefur
nú leikið inn á plötu ásamt
öðrum kunnum harmoniku-
leikara, Jóni Hrólfssyni frá Kópa-
skeri. Hún ber heitið „Samsþil"
og á henni leika þeir félagar 14
lög. Það er Tónaútgáfan á Akur-
cyri sem gefur plötuna út en
upptakan fór fram í Stúdíó
Bimbó undir stjórn Pálma Guð-
mundsonar. Auk þeirra Aðal-
steins og Jóns leika á plötunni
Birgir Karlsson á gítar, Finnur
Finnsson á bassa og Steingrímur
Stefánsson á trommur.
Við spurðum Aðalstein hvern-
ig stóð á því að hann og Jón fóru
að spiia saman á nikkurnar og
hvenær það hafi verið.
„Það var árið 1980 er við hitt-
umst í gleðskap á Raufarhöfn þar
sem við vorum við vinnu. Síðan
erum við búnir að æfa saman og
spila á skemmtunum víða, t.d. á
árshátíðum og þorrablótum.“
- Hvernig æfið þið?
„Það er allur gangur á því. Við
höfum m.a. æft í gegnum sfma!
Eitt laganna á plötunni varð t.d.
til á svoleiðis æfingu, lagið Veiði-
maðurinn sem Jón á heiðurinn
af.“
- Hvenær var svo ákveðið að
spila á plötu?
„Það er um eitt ár síðan það
var. Þá spiluðum við í Sunnuhlíð
þar sem Pálmi íTónaútgáfunni er
með verslun og hann færði þetta
í tal við okkur. Við vorum strax
til í slaginn og í suntar fórum við
að æfa lögin á plötunni. Upp-
tökur fóru síðan fram í septem-
ber."
- Hvernig eru lögin á plötuna
valin?
„Við Jón sendunt Pálma nokk-
urn fjölda af lögum og hann valdi
þau stðan úr sem eru á plötunni.
Ég myndi segja að það væri létt
yfir þessari plötu, hún er senni-
lega góð í gleðskap eins og þann
er við Jón vorum í þegar við byrj-
uðum að spila saman."
- Sem fyrr sagði eru 14 lög á
plötunni „Samspil", Þau eru öll
erlend nema „símalagið” Veiði-
maðurinn og þar eru polkar,
valsar, rælar, tangóar. marsar,
skottísar og áfram mætti telja.
gk-.
Tónleikar
Kristjáns
Kristján Jóhannsson, óperu-
söngvari. heldur jólatónleika
í Akureyrarkirkju föstudaginn
28. desember kl. 20.30. Á efn-
isskránni verða lög tengd jóla-
hátíðinni og heiðursgestir
Kristjáns á tónleikunum verða
félagar í Kirkjukór Lögmanns-
hlíðarsóknar undir stjórn
Áskels Jónssonar. Kristján
kont til landsins í vikunni og
h.mn heldur jólatónleika í
Háskólabíói á morgun. þar
scm barnakór Ölduselsskóla
aðstoðar við flutninginn.