Dagur - 21.12.1984, Blaðsíða 4

Dagur - 21.12.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 21. desember 1984 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 25 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÓRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRfKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Siðmenntim og hungursneyð Nú þegar jólin eru á næsta leiti, þessi hátíð ljóssins og friðarins, beinast augu manna enn á ný að hörm- ungum þeim sem dynja yfir meðbræður okkar í fjar- lægum heimshlutum. Að þessu sinni eru það íbúar í Afríkuríkinu Eþíópíu sem hvað harðast hafa orðið úti. Þar hefur jörð sem getur verið frjósöm ef hinar ár- legu rigningar láta ekki á sér standa, skrælnað svo vegna þurrka undanfarinna ára að hún hefur ekkert gef- ið af sér. íbúarnir hafa orðið að þola hungurdauða svo þúsundum og hundruðum þúsunda skiptir og þvílík- um fjölda fólks bíða sömu örlög, að íslendingar eiga erfitt með að ímynda sér hvað þarna er í húfi. Þó hef- ur ástandinu verið lýst í myndum og máli í útvarpi og sjónvarpi að undan- förnu. Hjálparstofnun kirkjunn- ar stendur enn einu sinni fyrir mikilli söfnunarherferð sem nefnist „Brauð handa hungruðum heimi“. Sem fyrr virðast íslendingar ætla að bregðast vel við, enda rennur þeim til rifja að sjá þær hörmungar sem fólkið þarf að ganga í gegn um. Skelfilegast er að horfa upp á börnin, máttfarin og sjúk vegna langvarandi van- næringar. Mörg þeirra, ef ekki flest, eiga enga framtíð fyrir sér, miðað við óbreytt- ar aðstæður. Þessar að- stæður eru til komnar vegna náttúrufars að mestu leyti en þó ekki öllu. Undanfarið hafa verið sýndar í íslenska sjónvarp- inu myndir um Afríku og sögu þeirra þjóða sem þar búa. Þær myndir hafa verið heldur dapurlegar sem þar hafa verið dregnar upp. Þær hafa sýnt okkur þá kýgun og það arðrán sem hinar svokölluðu siðmenntuðu þjóðir í Vestur-Evrópu hafa beitt Afríkubúa um alda- raðir. Þrátt fyrir það að nýlendukúguninni sé víð- ast hvar aflétt heldur arð- ránið áfram. Þjóðirnar eru neyddar til að framleiða ákveðnar vörur og síðan ráða auðhringar Evrópu því að þær geta ekki fram- leitt úr þeim dýrari fullunn- inn varning. Það er gert með tollamúrum og ýmiss konar höftum. Þessar sömu siðmenntuðu þjóðir ráða því einnig hvaða verð er greitt fyrir hrávörurnar sem frá Afríku koma. Því má með sanni segja að hinn siðmenntaði, kristni, vest- ræni heimur eigi stóra sök á því að Afríkumenn eru ekki betur í stakk búnir til að takast á við náttúruham- farir eins og nú cjanga yfir. í þeirri von að Islendingar bregðist vel við og gefi rausnarlega í söfnunarher- ferð kirkjunnar — bæti þar með í litlu fyrir allt það sem kynbræður þeirra í Evrópu hafa gert á hluta Afríku- þjóða — óskar Dagur öllum landsmönnum gleðilegra jóla. Þá cr biðin langa loks að fara að taka enda. Allt er að verða hreint og fínt, laufabrauðið bakað og búið er að dusta rykið af jólaskrautinu frá því í fyrra og hitteðfyrra, já og auðvitað að kaupa nýtt. í stuttu máli. Hin árvissa umturnun samfé- lagsins er búin að ná hámarki. Með jólin á hreinu Aðventan er fyrir margra hluta sak- ir eitt skemmtilegasta tímabil ársins. Hún er í rauninni ekki síður full af sjarma, en jólahátíðin sjálf. t*að sem ef til vill á svo mikinn þátt í þessum sjarma, er hin sérstaka stemmning eftirvæntingar og til- hlökkunar seni skapast. Allir fá það svo sterkt á tilfinninguna að eitt- livað mikið og stórkostlegt sé í að- sigi, eitthvað mikið og háleitt sem engin orð fá lýst. Með sanni niá segja að við ís- lendingar höfuni okkar jólahald á hreinu. Tölur segja okkur að nóv- ember og desember séu yfirleitt þeir mánuðir sem viðskiptahalli þjóðarinnar er hvað mcstur, og það þótt engar gengisfellingar komi til. Og sem kunnugt er Ijúga tölur aldrei, það eru bara stjórnmála- mennirnir sem Ijúga þegar þeir eru að túlka tölurnar málstað sínum í hag, en það er með tölurnar eins og Biblíuna út úr hinum sömu tölum má fá tvær mismunandi niðurstöður sem hvor um sig réttlæta jafnvel al- gerlega andstæð sjónarmið. Þessar tölur um mikinn við- skiptahalla síðustu mánuði ársins sýna svo ekki verður um villst, að miklu er eytt fyrir jólin, þó að vísu komi fleira til, eins og mikil olíu- notkun. Við eigum auðvitað ekki nógu sterk orð til að fjargviðrast yfir öllu Heims um ból bruðlinu í kringum jólahaldið, en tökum vitaskuld þátt í því af lífi og sál. Það lyftist líka brúnin á æði mörgum kaupmanninum þessa dag- ana, og gylliboðin skortir ekki. í síbylju glymja yfir okkur slagorð á borð við „vöruverð í lágmarki", „það borgar sig að versla hjá okkur", og „hápunktur hagstæðra innkaupa" . . . Einn kaupmaður hér á Akureyri gekk meira að segja svo langt að auglýsa vöru sína „fyrir næstum ekki neitt", og líklega hef- ur hann verið meðal hinna raun- særri, því hvað þýðir annað en bjóða almenningi hér um slóðir vörur fyrir „næstum ekki neitt“, ef satt er það sem sagt er að hér séu allir blankir eftir að hafa goldið honum Ágústusi fyrir sunnan það sem honum ber, nema það sé sama svartagallsrausið og hjá hátekju- mönnunum sem á dögunum héldu spástefnu þar sem þeir komust að því að ekki væri hægt að bæta lífs- kjörin næstu árin. Það gefur auga leið að auðvitað er ekki hægt að bæta þeirra lífskjör á næstunni en það eru til aðrir sem slíkar bætur þurfa. Flóðbylgjur og jólatré En það er fleira en gjaldeyrisaust- urinn sem setur svip sinn á jólaund- irbúning okkar íslendinga sem bet- ur fer. Dagana og vikurnar fyrir jól skella flóðbylgjur bæði bóka og hljómplatna yfir landslýð. Sem bet- ur fer drukkna nú fáir í flóðbylgjum þessum, þótt óneitanlega fari marg- ur á bólakaf, og sé dálitla stund að ná fótfestu á ný eftir að bylgjan hef- ur sjatnað í byrjun næsta árs. Það gefur auga leið, að flóðbylgja þessi skolar mörgu og misjöfnu á land. Mikið er auðvitað um lítilsvert spýtnabrak, en innan um leynast svo hinar mestu gersemar. Mikill meirihluti þeirra bóka og hljóm- platna sem út koma fyrir hver jól hafa fallið í gleymsku þegar um næstu jól. En hið besta heldur velli. Þannig getur verk sem í dag flokk- ast til fagurbókmennta fljótt gleymst, en reyfari, ef hann á ann- að borð er góður orðið býsna lang- lífur. Vel gerð poppplata getur oft vænst lengri lífdaga, en illa gerð klassísk. Þannig er öll flokkun varasöm. Þá má ekki gleyma enn einu ein- kenni hins aðvífandi jólahalds, en það eru jólatrén stóru og fögru sem spretta upp út um borg og bý, og sem kveikt er á með tilheyrandi ræðuhöldum og lúðrablæstri, að ógleymdum öllum jólasveinunum, sem varla hafa undan við að mæta á slíkar athafnir, milli þess sem þeir standa í ströngu við að lokka við- skiptavinina að verslununum, auð- vitað á kostnað viðskiptavinanna sjálfra, en það er annað mál. En hvað jólatrén varðar þá hefur mað- ur það einhvern veginn á tilfinning- unni, að Akureyri beri einkar skarðan hlut frá borði. Það væri verðugt verkefni bæjarstjórnar að gauka því að fulltrúum einhvers vinabæjar okkar svona á þriðja eða fjórða glasi í einhverri móttökunni, að okkur bráðvanti hingað stórt og veglegt jólatré, sem kveikja mætti á við hátíðlega athöfn á Torginu, að viðstaddri bæjarstjórn og RÚVAK sem að sjálfsögðu miðlaði fréttum af athöfninni til landslýðs fyrir tilstuðlan hins ágæta starfsliðs síns, veraldlegrar og andlegrar stéttar. Þarna yrði enn einni rósinni bætt í hnappagat norrænnar sam- vinnu, sem ekkert gæfi Hildi og Nordsat eftir. Já, senn er amstrið á enda. Senn munu klukkur þessa lands klingja inn heilög jól. Enn einu sinni mun barnið sem í okkur öllum blundar vakna, og við munum tengjast handabandi og syngja „Heims um ból“. Enn einu sinni mun sagan endalausa og fagra um barnið sem í fátækt var borið hljóma út yfir fjöll og dal. Friðarljósið ber birtu st'na og yl þjáðu mannkyni út í blakka vetrarnóttina. Gleðileg jól.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.