Dagur - 21.12.1984, Blaðsíða 16

Dagur - 21.12.1984, Blaðsíða 16
Ég held, að í raun s_éu flestir for- eldrar og aðrir uppalendur á móti stríðsleikföngum. En æði margir hafa'gefist'upp fyrir umhverfinu. Börnin vilja eignast stríðsleikföng eins og leikfélagar þeirra eiga og eins og þau sjá í auglýsingum. Svo má ekki gleyma því, að það eru ekki bara foreldrar sem gefa leik- föng. - Hann Bjössi frændi getur tekið upp á því, að gefa Palla litla byssu, þó að hann viti ósköp vel að pabbi og mamma eru á móti því. En krakkagreyið langar svo í þetta og allir eiga byssu! - Skyldi hann svo gefa Gunnu systur Palla byssu, næst þegar hún á afmæli? Það dreg ég í efa. (Ætli hún fái ekki „Barb- ie“.) Fólk talar oft um að tilgangslaust sé að neita börnum um stríðsleik- föng, þau búi þau þá bara til, úr kubbum til dæmis. Þetta höfum við öll séð. En þar með er ekki eins. gott að leggja niður skottið, hlaupa út í næstu búð og kaupa byssu. Alls ekki, því um leið og við höfum gef- ið vopn, höfum við viðurkennt það sem leikfang og það sem meira er, við höfum viðurkennt ofbeldið sem stríðsleikföng bjóða upp á. Ofbeldi í sjónvarpi getur kallað fram árásargirni hjá börnum. Pá er talað um að þau séu að „leika sig frá“ því sem þau sáu, þ.e. að reyna að skilja það sem þau sáu og að reyna að losasig við hræðsluna sem ofbeldið vakti. Þegar barn verður hrætt, gerir það sér oft ekki sjálft grein fyrir því, það getur ekki kom- ’ ið til okkar og sagt okkur frá hræðslu sinni, þess í stað getum við séð merki hræðslunnar í gerðum þess, ef við erum athugul. Þá er okkar að grípa inn í og ræða málin, útskýra og reyna að skilja. En það þarf ekki stríðsleik eða stríðsleik- tong, til að losna við árásargirni, margir leikir, sem krefjast mikillar orku.og þar sem börnin eru virk, koma betur að gagni. Stríðsleikur stríðir gegn lífinu sjálfu! Við viljum og eigum að ala börn upp í friðarhugsjón. Kcnna þeim að leysa ágreiningsefni með samræðum, en ekki með handalög-' máli. En þá verðum við sjálf líka að vera fær um að leysa ágreiningsefni okkar þannig. Barnið tekur for- eldra sína sér.til fyrirmyndar, j)ví er mikilvægt að fyrirmyndin sé góð. Þá á ég ekki við gallalaus, heldur að hún sé sjálfri sér samkvæm, .segi ekki eitt í dag og annað á morgun cða segi eitt en framkvæmi annað. Hún þarf líka að geta viðurkennt mistök sín og geta beðist fyrirgefn- ingar. Það er ekkert að því að biðja barn fyrirgefningar. Stríö er Nú segja. e.t.v. einhverjir: „Svona er nú einu sinni lífið.“ En svona viljum við ekki hafa lífið, við viljum að börn dagsins í dag nái því að verða fullorðin og fái að lifa í friði. Það er líka ýmislegt sem við- gengst í þessu lífi, sem við getum ekki hugsað okkur að börn taki þátt í. Við gæfum aldrei leikföng sem tengjast þjófnaði, hanska til að fela fingraför eða áhöld til að brjóta upp hurðir svo dæmi séu nefnd, en tengist leikfangið stríði virðist mál- ið horfa öðruvísi við. Þeir (vonandi fáu), sem ekki eru á móti stríðsleikföngum, vilja að við hin sýnum fram á skaðann sem þeim fylgir. Sá skaði er lítt mælan- legur og kemur ekki fram í útbrot- um. En rannsóknir benda til þess, að stríðsleikir auki líkur á því að börn venjist á að leysa ágreinings- efni sín með ofbeldi. Leikur er æf- ing fyrir fullorðinsárin, hér þarf engan stríðsleik, við höfum engan íslenskan her. Mér finnst óhugnanleg sú þróun sem átt hefur sér stað f gerð stríðs- leikfanga. Þau eru svo nákvæmar eftirmyndir raunverulegra 'vopna, að glæpamenn geta notað þau (sem ógnun) í stað hinna raunverulegu. Við höfum heyrt fréttir af því oftar en einu sinni. Að endingu: Sá sem vill frið gef- ur ekki stríðsleikfang! Eða hvað? Og viljum við ekki öll frið? Fótatak Valtýr Guðmundsson frá Sandi Bókaforlag Odds Björnssonar sendir nú frá sér nýja bók eftir Valtý Guð- mundsson frá Sandi: Fótatak. Valtýr Guðmundsson frá Sandi hefur góð tök á frásagnarefni sínu, hvort sem eru minningar um atvinnu- sögu, menn eða málefni. í þessari nýju bók sinni segir hann m.a. frá Þeistareykjum, Breiðafjarðarbyggð- um, frá Noregi og vfðar, t.d. strand- ferð með „Esjunni" gömlu. Kápu gerði Snæfríður Njálsdóttir. „Fóta- tak“ er 126 bls. að lengd, prentuð og bundin inn hjá Prentverki Odds Björnssonar hf. á Akureyri. Enn er annríkt í Glaumbæ Guðjón Sveinsson Eftir þriggja ára hlé kveðja Glaum< bæingar dyra hjá þakklátum lesend- um Guðjóns Sveinssonar, því nú gef- ur Bókaforlag Odds Björnssonar út bókina Enn er annríkt í Glaumbæ. Þetta er þriðja bókin um fjölskyld- una í Glaumbæ. Þar gengur á ýmsu, enda margt að sýsla á stóru heimili. Sumarið er að kveðja, haustannir að ■taka við og tindarnir ofan við þorpið setja upp hvíta húfu'. Fjölskyldan ratar í mörg ævintýri, eins og kaflaheitin bera með sér. „Málarinn mjói o.fl. málarar", „Ærsl og uppskera", „Ný verkefni í vændum“, „Töfratækið“ og „Súkku- laðistrákarnir". En gleðin er ekki einráð, það skiptast á skin og skúrir í þessari tilveru og sorgin drepur á dyr. Guðjón Sveinsson er með kunnari og virtari barnabókahöfundum okk- ar um þessar mundir. Hann hóf rit- störf innan við fermingu. Fyrstu bækur hans voru reyfarar, en 1972 ritar hann bókina „Ört 'rennur æskubláð“, ósvikna sjóarasögu. Um hana segir Silja Aðalsteinsdóttir í bók sinni „íslenskar barnabækur 1780-;1979“: „Nýstárleg oggagnrýnin skáldsaga sem markar tímamót í skrifum fyrir unglinga.“ 1979 hlaut Guðjón'Viðurkenningu samtaka móðurmálskennara í smá- sagnasamkeppni. Saga hans kom út í samnorrænu smásagnahefti „Reve- sommer og andre noveller" árið 1981. „Enn er annríkt íGlaumbæ“ er 15. bók Guðjóns, 148 bls. að stærð, prentuð og bundin inn hjá Prentverki Odds Björnssonar hf. Akureyri. Umsjón: Jón Bjarnason frá Garðsvík Lyfdr huga himins til Íiátíð Ijóss og friðar Þátturinn hefst með vísum eftir - Benedikt .Valdemarsson frá Þröm. ' Þegar trúin verdur veik. vissu hvergi að finna ber ég þá að köldum kveik kvndil vona minna. Bátum hleður nú i naus f nöpur veðurhrina. Niður kveður húm og haust hugargleði mína. Hingað tíðum birtu barst, blóm á fríðu trafi og í hríðarveðrum varst vona óg blíðugjafi. Veldið svarta víkur hcr. vorið bjart þú dáir. Yndi margt að augum ber, yl sem hjartað þráir. Ama bugar ástríkt geð. ' Andans flug þitt vari. Greind og dugur glæðist með góðu hugarfari. Aðalsteinn Ólafsson kvað á jólum: Vekja jólin von og þrá. Vorsins þjóðin bíður. Svarta þokan sjónum frá senn í burtu líður. Jólin lífga innri yl, ýtist þras til hliðar. Lyftir huga himins til hátíð Ijóss og friðar. Þótt við rólum' eldgíg á, uppspennt tólin gapi skuggar óláns flýja frá fólksins jólaskapi. Sigurður Kristjánsson í Leir- höfn mun hafa kveðið þetta til gests er var á förum. Hvar sem bólið byggja fer burtu róli mæða. Góða njólu gefi þér gylfi sólarhæða. Gunnar Einarsson á Bergskála kvað: Ei skal kvarta, leiðarljós lýsir svartar nætur. Engilbjarta á ég rós innst við hjartarætur. Júlíus Sveinsson kvað: _ Þegar blessuð börnin smá -blíðum rómi hjala hörpu drottins heyra má huldumáli tala. Valtýr Guðmundsson á Sandi kvað á heiðskírum haustmorgni: ' Stjörnur lýsa loftið blátt, Ijóma fjöll og dalir. Opnir standa upp á gátt allir himinsalir. Þættinu'm lýkur með vísum sem helgaðar eru sumrinu 1984 og eru þær heimasmíð. Sólin hlær á Ijóssins leiðum, Ijóma slær á græna jörð. Signir blær frá suður heiðum silfurtæran Eyjafjörð. Þegar geislum sólar sinnar sveipar drottinn Eyjafjörð hverju barni byggðarinnar ber að flytja þakkargjörð. Fangbrögð áttu fljóð og gumar ferleg oft við sumur köld. Máski kemur sólarsumar svipað þessu á næstu öld. Gleðileg jól. Jón Bjarnason.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.