Dagur


Dagur - 21.12.1984, Qupperneq 5

Dagur - 21.12.1984, Qupperneq 5
21. desember 1984 - DAGUR - 5 Kjartan Höskuldsson. ...og svo hefég tosað á hortum Ég hringdi á barnaheimilið Iðavöll á Eyrinni á Akureyri ogfalaðist eftir einhverjum hressum krakka í viðtal. Einn af starfsmönnum sem varð fyrir svörum sagði að það væri ekkert vandamál að finna slíkan krakka fyrir mig, en sennilega væri betra að ég kæmi á staðinn til við- ræðna við viðkomandi. Pað varð úr, og því má segja að við svindlum örlítið á „lín- unni“ í dag. En hvað um það, ég settist niður með hressum strák á Iðavelli. - Hvað heitir þú? „Ég heiti Kjartan Höskulds- son.“ - Hvað ert þú gamall? „Ég er fjögurra ára og á. af- mæli 22. mars.“ - Ert veist þú hvers vegna jól- in eru? „Af því að Jesús átti þar af- mæli.“ - Veist þúh var Jesús fæddist ? „Já í Betlehem.“ - / rúmi? „Neieii, hann fæddist í jöt- unni.“ - Af hverju fæddist hann í jötu? „Af því bara.“ - Komu einhverjir til hans? „Já það komu vitringar." - Hvað eru vitringar? „Bara einhverjir menn.“ - Hvað voru þeir að gera til ■Jesú? „Bara að skoða hann.“ - Hvenær byrjar þú að hlakka til jólanna? „Ég Qr löngu. byrjaður að hlakka til jólanna" - Hvað er langt síðan, þegar sumarið var? „Nei ekki svo langt.“ - Hvað er skemmtilegast á jólunum? „Að opna jólapakkana." , - Hvernig vilt þú helst hafa jólapakkana? „Bara einhvern veginn.“ - Hvað vilt þú helst hafa í pökkunum? „Bara 'peninga." - Hefur þú fengið péninga í jólapakka? „Nei, ég fékk bara peninga í vasapening og kaupi jólagjafir fyrir þá.“ - Hverjum gefur þú jólagjaf- ir? „Ég er búinn að gefa pabba, jólagjöfin hans er uppi á hillu og ég er búinn að pakka henni inn. Ég er líka búinn að búa til jóla- gjöf handa mömmu í leikskólan- um en það má ekki segja hvað það er. Svo gef ég bróður mín- um líka.“ - Er ekki eitthvað fleira sem er gaman a jólunum en að fá pakka? „Nei, Jú annars, að borða jólakökurnar. Siíkkulaðikök- urnar eru bestar. Það er líka gott að fá.kjöt.“ - Hvað finnst þér um jóla- sveinana ? „Mér þykir líka gaman áð þeim, og Gáttáþefur er skemmtilegastur." - Hvers vegna? „Af því að hann gerir ekki neitt. Ég sá hann í sjónvarpinu og svo hef ég tosað í skeggið á honum einhvern tíma í fyrra á jólaballi.jí - Veistu hvar jólasveinartiir eiga heima? „Upp í fjöllum, þarna og þarna og þarna og þarna (beridir í allar áttir kotroskinn).“ - Hvað eru þeir margir? „Þrettán." - Hvað heita þeir? „Ég veit ekki alla. Einn heitir Gáttaþefur, einn Stúfur, einn Hurðaskellir, einn Kertasníkir, einn Bjúgnakrækir, einn Kjöt- krókur, einn Giljagaur, einn Stekkjastaur og svo veit ég ekki fleiri." - Eru þeir alltaf í fjöllunum þegar sumarið er? „Já þeir eru bara að sofa." - - Sofa þeir allt sumarið? „Þeir eru lfka stundum að smíða jólagjafirnar.“ - Sauma þeir líka föt? „Nei, mamma og pabbi gera það.en ef ég fæ föt í jólagjöf þá verð ég bara að fleygja þeirn. Ég vil ekkt fá lina pakka með . föturn, það er svo leiðinlegt að fá föt.“ - Ert þú húinn að fara í bæinn? „Já og ég sá fullt af jóla- skrauti." - Langaði þig ekki til að fá eitthvað sem þú sást i búðun- um? „Jú en ég bara gaf það allt." - Ferðu í kirkju á jólunum? „Já í kirkjuna þarna uppfrá, það er sungið og svoleiðis og það er gaman." ' - En segðu mér annað, hvað lajigar þig til að gera þegar þú verður maður? „Lögga. Þær taka menn sem gera það sem má'ekki og setja þá »fangelsið. Svo keyra þær um bæinn og leita að einhverju sem má ekki.“ - Ég þakka fyrir spjallið Kjartan og gleðjleg jól. gk-. Tákið eftir! Laugardaginn 22. desember ki. 4-6 e.h. áritar Páll Jóhannesson plötu sína í Vöruhúsi KEA, hljómdeild. Einnig árita Heiðdís Norðfjörð og Jóna Axfjörð plötuna Dolla dropa á sama tíma. Revklausi öskubakkinn heldur reykmengun í lágmarki. Ef þú vilt losna vió hvimleióan reyk og halda andrúmsloftinu hreinu kemur nýi reyklausi öskubakkinn aó góóum notum. Reyklausi öskubakkinn dregur reykinn i gegnum tvöfalda síu. Góögjöf, tilvalin fyrir heimiliog á skrifstofuna Sölustaður: Borgarsalan, Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.