Dagur - 21.12.1984, Qupperneq 19
21. desember 1984 - DAGUR - 19
Helgarferðir
til Akureyrar
I tengslum við sýningu
Leikfélags Akureyrar á
verki Sveins Einarssonar,
„Ég er gull og gersemi",
hafa ýmsir aðilar f btenum
hafið samvinnu um helgar-
ferðir til Akureyrar. Þessir
aðilar eru Leikhúsið, Lax-
dalshús, Ferðaskrifstofa
Akureyrar. Fluglciðir og
Sjallinn. Inni í þessunt
helgarpakka er flugfar til
Akureyrar og frá, leikhús-
miði, á „Ég er gull og ger-
semi", gisting í tva-r ntctur
á hóteli og kvöldverður.
Sjallinn mun annast mat-
seld sem fólki verður boðið
upp á að borða í Laxdals-
húsi.
Þar verður sýning á
gömlum munum og Ijós-
myndir úr leikritinu verða
uppihangandi.
Fyrirhugað er að nota
cinungis kertaljós til að
skapa þægilcga leikhús-
stemmningu. Húsið veröur
opnað kl. 6 og er opið fram
að sýningu, en er síðan
opnað aftur kl. II og geta
þá lcikhúsgestir átt nota-
lega stund og spjallað um
leikritið, dreypt á léttu víni
og ýmsum smáréttum.
Laxdalshús mun því
verðaopnað á ný t tengsl-
um við leiksýninguna, en
fyrirhugaðar eru miklar
breytingar á húsinu. Um
mánaðamótin jan.-febr.
verður hafist handa við
innréttingar á efri hæð
hússins sem að líkindunt
verður tekin í gagnið næsta
vor.
Helgarfcrðir til Akureyr-
ar koma til með að kosta
um 3.800 krónur scm er
gjafverð. en þctta er þáttur
f viðleitni áhugamanna um
Skemmtamr um
jólin og áramótin
Þrátt fyrir jólahátíð og mikið
kristnihald, slá forráðamenn
skemmti- og danshúsa ekki
slöku við um hátíðarnar og
opið verður nær öll kvöld fram
yfir áramót.
í Dynheimum er boðið upp
á diskótek fyrir unglinga
fædda 1970 og eldri á annan
dag jóla en þá kemur Ómar
Ragnarsson í heimsókn og
sprellar. Á nýársnótt hefst
gleðin í Dynheimum svo laust
upp úr miðnætti og stendur
fram til kl. 03.
Mikið verður um að vera í
Sjallanum. Staðurinn verður
opinn alla daga utan aðfanga-
og jóladags. Aðalball Sjallans
um jólin verður á annan jóla-
dag, einkasamkvæmi verður í
Sólarsal 27. des. og Ómar
Ragnarsson treður upp 28. og
29. desember með hina frá-
bæru sýningu sína. Á gamlárs-
kvöld er opnað kl. 23 og dans-
inn stiginn fram á næsta ár til
kl. 04. Á nýársdag er aðeins
opið fyrir matargesti og ölstof-
an verður lokuð.
í H-100 verður opið öll
hugsanleg og óhugsanleg
kvöld um jól og áramót nema
hvað lokað verður á aðfanga-
dag og jóladag. Stórdansleikir
verða í H-inu á annan dag jóla
og gamlárskvöld. Á annan í
jólum hefst gleðin ki. 22 og
stendur fram til kl. 03 og um
áramótin er opið frá kl. 23.30
á gamlársdag fram til kl. 04 á
nýársnótt. Ymsar uppákomur
verða í H-100 flesta dagana.
Lokað verður á Hótel KEA
um jól og áramót hvað varðar
skemmtanir og dansleikja-
hald.
Hátíðar-
Brátt verður líf ■ Laxdalshúsi. hessi uivnd var tekin þar s.l. sumar.
ferðamál, að drífa sunnan- eyrai og gera Akureyri ntannabæ sem hún einu
mcnn scm ogaðra til Akur- aftur að þcim fcrða- sinni var. - mþþ
Ómar Ragnarsson.
Friðarblysför á
Húsavík
Friðarsamtök Þingeyinga
gangast fyrir blysför fyrir friði
á Húsavík laugardaginn fyrir
Þorláksmessu. Kjörorð göng-
unnar eru: „ísland gegn kjarn-
orkuvá-Friðurá jólum 1984-
Brauð handa hungruðum
heimi". Safnast verður saman
við sundlaugina kl. 17.00 og
þar verður kveikt á blysunum.
Síðan verður gengið að kirkj-
unni. Þar verður flutt stutt
ávarp og kórfélagar leiða
fjöldasöng.
Brauð handa
hungruðum heimi
Söfnunin „Brauð handa
hungruðum heimi" stendur
nú yfir eins og á sama tíma í
fyrra, og eiga söfnunarbaukar
að hafa borist með póstinum
á öll heimili í landinu.
í fyrra stóðu sóknarnefndir
sameiginlega að móttöku
söfnunarbaukanna í göngugöt-
unni á Þorláksmessu. Það
gafst ákaflega vel og var mikl-
um fjölda þeirra komið
þangað.
Að þessu sinni verður fyrir-
komulag á móttöku söfnunar-
baukanna þannig, að laugar-
daginn 22. des. nk. verður
söfnunarbíll í göngugötunni
frá kl 16.00 og þar til verslun-
um verður lokað kl. 23.00.
A sunnudag, Þorláksmessu,
verður tekið á móti söfnunar-
baukum í Akureyrarkirkju kl.
13.00-18.00, og gefst þá einnig
færi á að eiga kyrrláta stund í
kirkjunni áðui en jólahátíðin
gengur í garð.
Þeir, sem eiga óhægt með að
skila af sér söfnunarbaukum,
mundu hringja í síma 23665 í
kirkjunni á sunnudaginn, og
verða þeir þá sóttir til þeirra.
Þá taka sóknarprestar einn-
ig við söfnunarfé eins og áður.
Með von um góðan árangur
af þessari söfnun senda sókn-
arnefndir Lögmannshlíðar- og
Akureyrarsóknar öllum Akur-
eyringum bestu óskir um
gleðileg jól.
Glæsilegur nýárs-
fagnaður í Sjáílanum
Það verður vel vandað til
veislu í Sjallanum á nýárs-
kvöld er hinn hefðbundni ný-
ársfagnaður verður haldinn
þar.
Tekið verður á móti gestum
með viðhöfn í anddyri hússins
kl. 19.30 með lystauka o.fl.
Borðhald hefst stundvíslega
kl. 20.15 og er vel vandað til
hátíðamatseðilsins. Á mat-
seðlinum er reyktur áll og
laxapaté með kavíarfylltum
eggjum og spínatmauki. Milli-
réttur er nautakjötseyði með
hleyptu eggi og bútterdeigs-
svönum. Aðalrétturinn er
hvítvínssteiktur kalkún með
sykurbrúnuðum jarðeplum.
gufusoðnu spergilkáli, wald-
orfsalati og fylltum tómati. 1
eftirrétt er svo kransaköku-
karfa fyllt með koníekti. og
kaffi.
Vönduð skemmtidagskrá er
á boðstólum. Hollywood
strings leika fjölbreytta tónlist
- Michael Clarke og Þuríður
Baldursdóttir syngja öúetta af
léttara taginu - félagar úr
Leikfélagi Akureyrar flytja
annál ársins - dansflokkur frá
Alice sýnir. og að lokum verð-
ur stiginn dans til kl. 02 við
undirleik hljómsveitar Ingi-
mars Eydal.
Miðasala verður í Sjallanum
30. des. kl. 17-19 og borða-
pantanir í síma 22970 alla
daga. Athygli er vakin á því að
hátíð þessi er einungis fyrir
matareesti.
guðs-
þjónustur
Hátíðarguðsþjónustur verða í
Akureyrarkirkju um jólin á
sama' tíma og verið hefur
undanfarin ár.
Aftansöngur verður í kirkj-
unni kl. 6 á aðfangadag. Á
jóladag verður hátíðarguðs-
þjónusta kl. 2 síðdegis. Þar
mun Páll Jóhannesson, söngv-
ari, syngja einsöng. En við
barna- og fjölskylduguðsþjón-
ustu á annan jóladag syngur
Kór Barnaskóla Akureyrar
undir stjórn Birgis Helgason-
ar, kennara. Sú athöfn hefst
kl. 1.30 e.h. Þá verður einnig
hátíðarguðsþjónusta í Minja-
safnskirkjunni á annan jóladag
kl. 5 síðdegis, þar sem Kirkju-
kór Akureyrarkirkju leiðir
söng undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar, organista.
Ennfremur verða guðsþjón-
ustur á Fjórðungssjúkrahús-
inu, Hjúkrunardeildinni Seli I
og Dvalarheimilinu Hlíð, eins
og nánar er auglýst í jólablað-
inu.
„Kynlegir kvistir
IJt eru komnar önnur og
þriðja myndin í seríunni um
„kynlega kvisti", en það er
Ragnar Lár. mvndlistarmaður
á Akureyri sem myndirnar
gerir.
Fyrsta myndin cr af Guð-
mundi dúllara, en þær tvær
sem fyrr er getið eru af Símoni
Dalaskáldi og Sæfinni með
sextán skó. Eftir áramótin
koma út mvndir af þeim
tveimur sem eftir eru; Sölva
Hclgasyni og Ástar-Brandi.
Myndirnar eru sáldþrykktar
og gefnar út í 200 tölusettum
og árituðum eintökum í papp-
írsstærð 31x44 cm. en stærð
myndflatar er 25x35 cm.
Hvert eintak kostar kr. 300.
Pantanasímar eru 96-26562 og
23688. Þeir sem áhuga hafa.
geta gerst áskrifendur að
ákveönum númerum.