Dagur - 03.06.1985, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
1 Litmynda-
framköllun
AKUREYRl
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 3. júní 1985
59. tölubiað
í gær við
Lónsbrú
Bíll valt út af Norðurlandsvegi
laust eftir hádegið í gær, skammt
fyrir utan Lónsbrú. Ekki er vitað
hvað ollu útafakstrinum, en eng-
in slys urðu á mönnum. Bifreiðin
er hins vegar mjög illa farin eftir
veltuna.
Fyrstu stúdentarnir útskrifuðust úr Verkmenntaskólanum á Akureyri á laugardaginn. Nánar í máli og myndum
á bls. 9.
„Setjið maikið hátt“
- Verkmenntaskólanum á Akureyri slitið í Akureyrarkirkju sl. laugardag
Bátarnir
búnir með
kvótann
„Afli hefur verið nokkuð góð-
ur undanfarið. Stakfellið er
væntanlegt með 140 tonn, en
það á eftir um 700 tonn af
þorskkvóta sínum,“ sagði Stef-
án Jónsson sveitarstjóri á
Þórshöfn.
„Bátarnir eru hins vegar allir
búnir með sinn kvóta. Það hefur
verið nóg að gera hér, það eru
eitthvað á milli 50 og 60 manns
við vinnu í frystihúsinu og málun-
um hefur verið bjargað með tals-
verðri yfirvinnu,“ sagði Stefán.
- mþþ
„Þeir fiska sem róa segir mál-
tækið og víst er að aflahlutur -
þessi í umslögunum hérna við
hliðina á mér - er misjafn að
magni og gæðum. Eg ætla ekki
að fella neinn dóm, hver og
einn verður að gera upp við
sína eigin samvisku hvernig til
Siglufjöröur:
Fékk flug-
vélarflak
í netið
„Sæljónið frá Eskifirði kom
inn til löndunar í morgun og
var með 6 tonn af rækju og
hluta af flugvélarflaki,“
sagði Sveinn Björnsson hjá
Þormóði ramma á Siglufirði
þegar við hringdum í hann
á föstudagsmorguninn.
Sagðist Sveinn hafa hringt í
loftferðaeftirlitið og þar hefði
verið hald manna, að um am-
eríska njósnaflugvél væri að
ræða, en hún hrapaði í Skjálf-
andaflóa fyrir um 15 árum. Að
sögn Sveins var flakið alger-
lega ónýtt og ekki fyrirhugað
að gera annað við það en að
henda því. - mþþ
hafi tekist. Mér er þó nær að
halda, að þið getið, þegar á
heildina er litið verið ánægð
með ykkar hlut, a.m.k. flest
hver, þótt mig gruni, að mörg
ykkar, ef ekki öll, svona innst
inni, setji sér það mark að
berjast betur næst, að sækja
dýpra og fastar á mið þekking-
ar og lærdóms, leita þeirrar
fullkomnunar, sem þó aldrei
næst, var og mun ávallt verða
utan mannlegrar seilingar.“
Þannig talaði Bernharð Har-
aldsson, skólameistari, m.a. til
nemenda Verkmenntaskólans á
Bernharð Haraldsson, skólameist-
ari.
Þórshöfn:
Akureyri, þegar hann sleit skól-
anum eftir fyrsta starfsárið, í Ak-
ureyrarkirkju á laugardaginn, en
þá var liðið nákvæmlega eitt ár
frá því að til skólans var stofnað.
Við skólaslitin útskrifaði Bern-
harð fyrstu stúdentana frá skól-
anum, en einnig útskrifaði hann
sjúkraliða, iðnnema, nemendur
af raungreinasviði tækniskóla,
tækniteiknara, vélstjóra og mat-
sveina á fiskiskip. Alls útskrifuð-
ust liðlega 100 i'nanns úr skól-
anum.
í lok ræðu sinnar sagði
Bernharð: „Setjið ykkur
markmið, hvert eftir áhuga og
getu, sparið hvorki áreynslu né
erfiði til að ná því, látið sóknina
eftir menntun og þroska aldrei
niður falla. Vinnið vel. hvert sem
verkið er og hver sem húsbónd-
inn er, verðið mikil af sjálfum
ykkur.
Setjið markið hátt. öslið ekki
mýrar og móa, leitið á brattann.
klífið hjallana hvern af öðrum,
gefist ekki upp þótt þvngist fyrir
fæti, „því sá, sem hræðist fjallið
og einlægt aftur snýr. fær aldrei
leyst þá gátu, hvað hinutn tnegin
býr"."
Nánar er sagt frá skólaslitum
Verkmenntaskólans á bls. 9.
„Mikill heiður"
- segir Sverrir Leósson, stjórnarformaður félagsins
„Þessi viðurkenning er mikill
heiður fyrir starfsfólk Útgerð-
arfélagsins, hvort heldur sem
er á sjó eða landi,“ sagði
Sverrir Leósson, stjórnarfor-
maður Útgerðaifélags Akur-
eyringa, í samtali við Dag.
Viðurkenningin sem Sverrir
talar um kom frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og dótturfyr-
irtæki þess í Bandaríkjunum,
Goldwater Seafood Corporation.
Magnús Gústafsson afhenti
Gunnari Lórenzsyni viðurkenn-
ingarskjöldinn við athöfn í kaffi-
stofu félagsins á fimmtudaginn,
en Magnús er forstjóri Goldwat-
er Seafood. Viðurkenningin er
veitt fyrir gæði og vöruvöndun,
en auk starfsfólks ÚA fékk
starfsfólk Jökuls á Raufarhöfn
hliðstæða viðurkenningu, en ekki
önnur frystihús SH á Norður-
landi.
Þetta er í áttunda skiptið sem
SH og Goldwater Seafood veita
slíkar viðurkenningar og í öll
skiptin hefur starfsfólk Útgerðar-
félags Akureyringa orðið fyrir
valinu, sem er einsdæmi. Mörg
önnur frystihús SH hafa fengið
viðurkenningar, en ekkert þeirra
er með „fullt hús" eins og ÚA.
Starfsfólk Útgerðarfélags Akureyringa fær viðurkenningu:
D
Frá 1. júní kostar áskrift
að Degi kr. 220,00 á
mánuði og grunnverð
auglýsinga verður kr.
210,00 pr. dálksm.
Bílvelta