Dagur - 03.06.1985, Qupperneq 3
3. júní 1985 - DAGUR - 3
Gúmmívinnslan fram-
leiðir
Gúmmívinnslan hf., Akureyri,
hefur nú hafið framleiðslu og
sölu á millibobbingum fyrir
sjávarútveginn. Bobbingarnir
eru framleiddir úr gúmmísalla
sem fellur til við hjólbarðasól-
un í landinu og sem hingað til
hefur enginn markaður verið
fyrir. Við framleiðsluna er not-
uð aðferð sem er þróuð af
sænska fyrirtækinu JLP Pro-
ducts A/B, sem er meðeignar-
aðili að Gúmmívinnslunni h/f.
Bobbingarnir hafa nú verið til
reynslu í IV2 ár í íslenskum tog-
urum og hafa gefist mjög vel.
Á næstu mánuðum mun fyrir-
tækið einnig hefja framleiðslu á
ýmsum gerðum af gúmmímottum
annars vegar fyrir frystihús og
iðnfyrirtæki og hins vegar bása-
mottur fyrir kýr og hesta.
Á aðalfundi Gúmmívinnslunn-
ar hf., sem haldinn var fyrir
nokkru, kom fram að afkoma
fyrirtækisins á síðasta ári var vel
viðunandi. Var ákveðið af því til-
efni að greiða starfsmönnum sér-
staka launauppbót fyrir sl. ár að
upphæð kr. 25.000 á hvern
starfsmann.
Á aðalfundi félagsins mætti
framkvæmdastjóri JLP Products
A/B og kom fram að framleiðsla
þess fyrirtækis á gólfflísum
gengur mjög vel og að eftirspurn
væri mikil alls staðar í Evrópu.
Pá kom fram að fyrirtækið hefur
í undirbúningi sams konar fram-
leiðslu í Bandaríkjunum, Suð-
austur-Asíu og Ástralíu.
Gúmmívinnslan hf. ráðgerir ekki
framleiðslu á gólfflísum að sinni
en hefur hafið umboðssölu á
þeim hér innanlands. Umræddar
gólfflísar henta sérstaklega vel í
hvers konar skrifstofuhúsnæði
þar sem tölvur eru notaðar svo og
í heilsuræktarstöðvar o.fl.
Akureyri:
Tjaldsvæð-
ið opnað
„Það er afráðið að byggðar
verða nýjar snyrtingar á efra
tjaldsvæðinu,“ sagði ívar Sig-
mundsson forstöðumaður
tjaldsvæðanna.
Byggingaframkvæmdir hefjast
í júní. Búið er að teikna húsið,
og hafa verið veittar 800 þúsund
krónur til verksins. „Ástandið
hefur verið mjög slæmt eftir
stækkun svæðisins og má til
marks um það segja, að á svæð-
inu hafa verið allt upp í 900
manns um 4 snyrtingar, en með
þessari byggingu verður ástandið
allt annað og betra,“ sagði ívar.
Gert hefur verið heildarskipu-
lag af svæðinu við sundlaug,
tjaldsvæði og íþróttahöll sem
unnið verður eftir í framtíðinni.
Þess má geta að tjaldsvæðið
verðuropnaðumaðrahelgi. gej
Framkvæmdahugur
a Hvammstanga
„Þaö er mikill framkvæmda-
hugur í sveitarstjórnar-
mönnum, en þaö er einkum
tvennt sem er á dagskránni í
sumar. Annars vegar er það
stóráfangi í byggingu grunn-
skólans en við stefnum að því
að taka þar í notkun í haust
efri hæð viðbyggingar, sem er
fjórar kennsíustofur,“ sagði
Kristján Björnsson oddviti á
Hvammstanga, aðspurður um
fyrirhugaðar framkvæmdir
sveitarfélagsins í sumar.
Grunnskóli Hvammstanga hef-
ur verið í húsnæði sem byggt var
árið 1960 og var það orðið allt of
lítið. Sóttu nemendur sem eru
um 140 kennslu í félagsheimili og
var handavinnukennsla dreifð í
bílskúrum víðs vegar um bæinn.
Pessi bygging bætir því úr brýnni
þörf.
„Við áætlum að veita til bygg-
ingarinnar um sex milljónum í
sumar, en fengum ekki fjárveit-
Frá Hvammstanga.
ingu frá ríki nema fyrir 1,4
milljónum. Hitt verðum við að
fjármagna sjálfir," sagði Kristján.
„Annað aðalvandamálið hjá okk-
ur í sumar eru gatnagerðarfram-
kvæmdir, en við ætlum að taka
verulegan áfanga og leggja bund-
ið slitlag.“
Fyrirhugað er að leggja rúm-
lega einn kílómetra af bundnu
slitlagi á Hvammstanga og vænt-
anlega fer annað eins í endur-
nýjun á eldra slitlagi, sem orðið
er mjög lélegt að sögn Kristjáns.
Þá má nefna að jarðvegsskipti
verða á þremur götum í sumar.
Alls eru gatnagerðarframkvæmd-
ir áætlaðar fyrir 13 milljónir. Er
þetta töluvert mikið fé sem til
gatnagerðar fer en ekki vanþörf
á að sögn Kristjáns, því innan við
20% gatna á Hvammstanga voru
með bundnu slitlagi. Sagði hann
að Hvammstangi hefði verið
langt á eftir nágrannabyggðunum
í þessum efnum.
„Við fjármögnum þessar fram-
kvæmdir þannig, að við fáum lán
úr svokölluðum 25% sjóði vega-
gerðarinnar, en það er sérstakur
sjóður sem ætlaður er til lagning-
ar varanlegs slitlags. Þá er einnig
sérstakur sjóður innan vegagerð-
arinnar sem hjálpar þeim sveitar-
félögum sem illa eru á vegi stödd
í þessum efnum, úr þeim sjóði
fáum við verulegt framlag, eða
4,5 milljónir. Auk þess fáum við
verulegar upphæðir í gatnagerð-
argjöld, þannig að sveitarfélagið
þarf ekki að leggja fram mikla
peninga, líklega eitthvað í kring-
um 5 milljónir.“ - mþþ
Þórarínn Kristjánsson framkvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar heldur hér á
millibobbingum. Mynd: KGA
Gisting á sveitaheimilum
Það er hvorki meira né minna
en 51 heimili í sveit sem bjóða
fram þjónustu við ferðamenn
erlenda og innlenda. Sú
ánægjuiega þróun hefur átt sér
stað að stöðugt fjölgar þeim ís-
lendingum sem kjósa að dvelja
á sveitaheimili einhvern hluta
úr sumarieyfinu.
Það eru ótrúlega fjölbreytilegir
möguleikar sem bjóðast til
skemmtilegrar dvalar í sveit. Það
eru sveitaheimili um allt land sem
eru aðilar að Ferðaþjónustu
bænda. Það er hægt að stunda sil-
ungsveiðar, þá eru margir með
hestaleigu, sjóstangaveiði er
hægt að stunda eða bara gamal-
dags skak á handfæri. Göngu-
ferðir og náttúruskoðun er einnig
boðið upp á.
Það er ekkert sem jafnast á við
dvöl í góðu yfirlæti á sveitaheim-
ili og láta fara vel um sig og fjöl-
skylduna. Kynnast fólkinu í
sveitinni og fá glögga mynd af
landbúnaði og mikilvægi hans
fyrir þjóðarbúið.
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
O
NÝLAGNIR
VIÐGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslift hjá fagmanni.
—Carðslöngur
grænar með ívafi
25 m verð kr. 425,-
30 m verð kr. 515,-
Bláar slöngur
25 m verð kr. 575,-
Vinylslöngur
25 m rauðar verð kr. 410,-
30 m grænglærar
verð kr. 492,-
Opið laugardaga kl. 10-12.
Póstsendum.
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 ■ sími 22275
[
, Sjómenn-
Útgerðarmenn
Eigum fyrirliggjandi á lager úrvals
japönsk þorskanet.
Einnig höfum við handfærabúnað
og búnað til togveiða.
Oddeyrarskála sími (96) 26120 Akureyri
Sími (96) 24654 eftir kl. 17.00.
Frá Bændaskólanum
á Hvanneyri
Auglýsing um innritun nemenda:
BÆNDADEILD: Tveggja ára námsbraut (4 annir) að bú-
fræðiprófi.
Helstu inntökuskilyrði:
Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi og fullnægi lág-
markskröfum um einkunn til inngöngu í framhalds-
skóla.
Umsækjandi hafi öðlast nokkra reynslu við landbúnað-
arstörf og að jafnaði stundað þau eigi skemur en eitt ár,
bæði sumar og vetur.
Skrifleg beiðni um inngöngu .ásamt prófskírteinum sendist
skólanum fyrir 10. júní nk.
BÚVÍSINDADEILD: Þriggja ára námsbraut að kandidats-
prófi (BS-90).
Helstu inntökuskilyrði:
Umsækjandi hafi lokið búfræðiprófi með 1. einkunn.
Umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi á raungreinasviði
eða öðru framhaldsnámi sem deildarstjórn telur jafngilt
og mælir með.
Umsóknir ásamt prcfskírteinum skulu hafa borist fyrir 10. júní
nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á Hvanneyri í síma
93-7500.
Skóiastjóri.