Dagur - 03.06.1985, Side 6
6 - DAGIIR — 3. júní 1985
Slæmt
hjá
Leiftri
Þad ætlar að reynast erfitt fyrir Leift-
ursmenn frá Olafsfírði að komast á
blað í hinni hörðu keppni 2. deildar.
Liðið hefur nú lokið þremur leikjum,
hefur enn ekki skorað mark og ekki
hlotið stig.
Margir keppast við að segja að
Leiftursliðið eigi eftir að koma á óvart
og liðið eigi eftir að hala inn stig.
Sennilega verður liðið að byggja þær
vonir sínar á árangri á heimavelli, liðið
er þar til alls líklegt eins og sást er það
sló Völsung út úr bikarnum á dögun-
um, en útivöllurinn ætlar að verða erf-
iður.
Leiftur fór í heimsókn til Breiða-
bliks í Kópavogi um helgina og mátti
halda heim með 0:5 ósigur á bakinu. I
fyrstu umferð tapaði liðið 0:3 á Húsa-
vík þannig að enn hefur hið reynslu-
litla Leifturslið ekki skorað mark en
fengið tvo skelli á útivelli.
Bikar-
leikir
Tveir bikarleikir í Noröurlandsriðli
Bikarkeppni KSÍ eru á dagskrá á mið-
vikudagskvöldiö. Leiftur og KS leika
á Ólafsfírði og á Sauðárkróki eigast
við Tindastóll og KA.
Búast má við mikilli baráttu í þess-
um leikjum, ekki síst í Ólafsfirði, enda
litlir kærleikar með leikmönnum þess-
ara félaga. Leiftur mætti Völsungi
þar í bikarkeppninni á dögunum og
hafði sigur þannig að KS-menn ættu
ekki að ganga of sigurvissir til leiks í
Ólafsfírði á miðvikudagskvöldið.
Tindastóll með Árna Stefánsson
markvörð í markinu fær að glíma við
KA og þar getur raunar allt gerst, KA-
liðið þó sigurstranglegra fyrirfram en
allt getur gerst í knattspyrnu.
Þau lið sem sigra í þessum leikjum
mætast svo innbyrðis og leika um sæti
í aðalkeppninni, en þá koma liðin úr
1. deild til leiks.
Jafntefli
KS og
Fylkis
KS náði ekki nema einu stigi í leik sín-
um gegn Fylki á gervigrasinu í Laugar-
dalnum um helgina, og eru liðin utan
Reykjavíkur óhress með að vera boð-
ið upp á að leika þar.
Úrslitin 1:1, Fylkismenn skoruðu á
undan en Óli Agnarsson jafnaði strax
fyrir KS og staðan var 1:1 í hálfleik.
LJndir lok leiksins áttu KS-menn að fá
vítaspyrnu er Friðfínnur Hauksson var
felldur gróflega inni í vítateig en dóm-
arinn sá ekkert athugavert.
Nýstofnaður stuðningsmannaklúbb-
ur KS hafði sig mikið í frammi fyrir
leikinn, auglýsti hann grimmt í útvarpi
og settu félagar klúbbsins skemmtileg-
an svip á leikinn - en það dugði ekki
að þessu sinni.
Þórhallur Pálsson. Inga Magnúsdóttir.
Nissan-mótiö í g oll fi:
Þórhallur og Inga
urðu sigurvegarar
Þórhallur Pálsson og Inga
Magnúsdóttir urðu sigurvegar-
ar í Nissan-mótinu sem fram
fór hjá Golfldúbbi Akureyrar
um helgina. Leiknar voru 36
holur með og án forgjafar, og
mættu um 50 kylfíngar til leiks
að Jaðri.
Keppnin í karlaflokki var mjög
jöfn og skemmtileg og fjórir
menn sem bitust um sigurinn
fram á síðustu holu. Eftir fyrri
daginn var Jón Þór Gunnarsson
bestur á 75 höggum, Sverrir Þor-
valdsson og Sigurður H. Ring-
sted á 76 og Þórhallur Pálsson á
77.
Þegar leiknar höfðu verið 9
holur síðari daginn var staða
efstu manna sú að Jón Þór og
Þórhallur voru á 114, Sverrir á
115 og Sigurður á 116. Þórhallur
hafði það svo á endasprettinum
sem fyrr sagði.
Þórhallur Pálsson 77+74 - 151
Sverrir Þorvaldsson 76+76 - 152
Jón Þór Gunnarsson 75+78 - 153
Sigurður H. Ringsted 76+79 - 155
Með forgjöf:
Þórhallur Pálsson 139
Sverrir Þorvaldsson 140
Jón Þór Gunnarsson 141
í kvennaflokki hafði Inga Magn-
úsdóttir nokkra yfirburði og lék
hún mjög jafnt golf allt mótið út
í gegn. Annars urðu úrslit sem
hér segir:
Inga Magnúsdóttir 87+ 85 - 172
Jónína Pálsdóttir 96+ 91 - 187
Karólína Guðmundsd. 104+108 - 216
Með forgjöf:
Inga Magnúsdóttir 148
Jónína Pálsdóttir 155
Aðalheiður Alfreðsdóttir 164
Tvenn aukaverðlaun voru
veitt. Á 4. holu síðari dag var Verðlaun í Nissanmótið voru
Inga Magnúsdóttir næst holu, gefin af umboðsmanni Nissan á
1,71 m og á 18. holu var Ólafur Akureyri, Bifreiðaverkstæði Sig-
Þorbergsson næstur, 0,56 m. urðar Valdimarssonar.
Næsta mót hjá GA er „Véla-
mót“ á fimmtudag, og á föstudag
hefst keppni um Gullsmiðabikar-
l inn.
Þór 70 ára:
Landsliðið
á Þórsvellinum
íþróttafélagið Þór á Akureyri
verður 70 ára nk. fimmtudag,
og er ýmislegt á döfinni í til-
efni þess.
Meðal þess sem verður boðið
upp á á Þórsvelli á afmælisdaginn gegn Spáni í næstu viku og fá
verður leikur íslenska landsliðs- áhorfendur því að sjá til margra
ins í knattspyrnu við 1. deildar lið knattspyrnumanna okkar sem
Þórs. Er talið að hingað komi leika erlendis. Við segjum nánar
það Iið fullskipað sem á að leika frá þessu í blaðinu á miðvikudag.
Árni varði vítaspymu
og Tindastóll vann
Árni Stefánsson fyrrum lands-
liðsmarkvörður, nú þjálfari og
leikmaður Tindastóls á Sauð-
árkróki, sýndi um helgina að
lengi lifír í gömlum glæðum.
Tindastóll lék við Magna og 3
mínútum fyrir leikslok fengu
Magnamenn vítaspyrnu sem
Árni gerði sér lítið fyrir og
varði stórglæsilega.
Þetta gerði það að verkum
öðru fremur að Tindastóll hirti 3
stig úr leiknum. í hinu markinu
stóð annar landsliðsmarkvörður,
Þorsteinn Ólafsson, og hann
mátti sjá á eftir boltanum í mark
sitt þegar um 10 mínútur voru til
leiksloka. Varnarmaður ætlaði
þá að gefa boltann aftur á Þor-
stein, Eiríkur Sverrisson komst
hins vegar inn í sendinguna og
skoraði sigurmark Tindastóls,
úrslitin 1:0.