Dagur - 03.06.1985, Qupperneq 7
3. júní 1985 - DAGUR-7
Framarar skoruðu
tvö á 14 mínútum!
- eftir það voru Þórsarar síst lakari aðilinn en Framarar unnu 2:1
og hafa ekki tapað leik í 1. deildinni
„Það var algjör klaufaskapur
að tapa þessum leik. Það er
eins og við þurfum alltaf lang-
an tíma til þess að komast í
gang, og nú vorum við komnir
með tvö mörk á bakið eftir 15
mínútur.
Eftir það áttum við
allan leikinn og þetta voru
slæm úrslit fyrir okkur.“ Þetta
sagði Bjarni Sveinbjörnsson
Þórsari, en Þór tapaði 1:2 fyrir
Fram á Laugardalsvelli um
helgina í 1. deild.
Pað er óhætt að taka undir orð
Bjarna. Þórsarar virkuðu bein-
línis ragir til að byrja með, og
fengu í staðinn tvö mörk í andlit-
ið. Ómar Torfason skoraði það
fyrra með skalla á 8. mínútu og
Guðmundur Torfason það síðara
á 14. mínútu.
Eftir þetta voru Þórsarar síst
lakari aðilinn og áttu tvö gullin
tækifæri í fyrri hálfleik. Jónas
Róbertsson átti skot í þverslá
Fram-marksins og Þórsarar vildu
meina að þeir hefðu átt að fá víta-
spyrnu þegar Sigurði Pálssyni var
brugðið í vítateignum en dómar-
inn færði brotið út fyrir teiginn.
í síðari hálfleik gekk á ýmsu,
bæði liðin fengu upplögð tækifæri
til að bæta við mörkum en ekkert
gekk fyrr en undir lokin að
Bjarni Sveinbjörnsson skoraði
gott mark eftir sendingu Nóa
Björnssonar. Rétt áður hafði
Kristján Kristjánsson skotið í
stöng Fram-marksins þannig að
sjá má að Þór átti færi til þess að
minnsta kosti ná öðru stiginu og
ef leikmenn hefðu verið með frá
byrjun er ekki að vita nema Þór
hefði getað náð í 3 stig. En svona
er knattspyrnan, leikurinn stend-
ur yfir í 90 mínútur og það eru
mörkin sem gilda þegar upp er
staðið.
„Við
vorum
heppnir"
„Þróttararnir voru miklu betri og við
vorum heppnir að ná jafnteflinu,“ |
sagði Magnús Guðnason hjá Austra
eftir að Austri og Þróttur N. gerðu
jafntefli 1:1 á Eskifirði í b-riðli 3. |
deildar um helgina.
Austramenn komust strax á 8. mín- i
útu yfir með marki Sigurjóns Krist-
jánssonar og staðan í hálfleik var 1:0.
I upphafi jafnaði Guðbjartur Magna- (t
son nýliði fyrir Þrótt og þar við sat og
máttu heimamenn vel við þessi úrslit
una.
Fimm mörk og mikið
fjör á Húsavík
- þegar Völsungur vann KA 3:2
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspymu eftir leiki helgarinn-
ar er sem hér segir:
Fram-Þór 2:1
ÍBK-KR 1:1
Akranes-Þróttur 1:0
Valur-FH 3:0
Víkingur-Víðir 0:1
Fram 4 3 1 0 10:4 10
Akranes 4 2 1 1 9:3 7
Valur 4 2 1 1 8:5 7
ÍBK 4 2 1 1 7:6 7
Þróttur 4 2 0 2 5:3 6
Þór 4 2 0 2 6:5 6
FH 4 1 1 2 2:5 4
Víkingur 4 1 0 3 3:7 3
KR 4 0 3 1 3:6 3
Víðir 4 1 0 3 2:10 3
Staðan I 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir leiki helgarinn-
ar er sem hér segir:
UMFS-IBV
Völsungur-KA
UBK-Leiftur
Fylkir-KS
UMFN-ÍBÍ
ÍBV
UBK
ÍBÍ
Völsungur
KS
KA
UMFN
Fylkir
UMFS
Leiftur
3 2 10
3 2 0 1
3 2 10
3 2 0 1
3 111
2 10 1
3 111
2 0 11
3 0 12
3 0 0 3
7:3
8:5
5:0
6:6
6:4
5:3
2:2
1:2
2:8
0:9
7
6
7
6
4
3
4
1
1
0
Tryggvi Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir KA en það dugði ekki gegn
Völsungi.
Það var mikil stemmning á
Húsavíkurvelli á laugardag er
Völsungur og KA mættust þar
í 2. deildinni. Leikið var við
nokkuð góð skilyrði, völlurinn
þó þungur yfírferðar en áhorf-
endur sem voru fjölmargir
fengu að sjá fjörugan og góðan
leik, fímm mörk og ekki spillti
það fyrir heimamönnum að
þrjú þeirra komu frá leik-
mönnum Völsungs sem sigraði
því 3:2.
Það sem gerði útslagið í þess-
um leik var að Völsungar nýttu
sín marktækifæri mun betur en
KA-menn. Fyrsta mark leiksins
skoraði þjálfarinn hávaxni hjá
Völsungi, Sigurður Halldórsson,
skallaði boltann inn eftir auka-
spyrnu.
Markaskorarinn Tryggvi
Gunnarsson ætlar að halda upp-
teknum hætti frá fyrra sumri, og
það var hann sem jafnaði leikinn
í fyrri hálfleik. Tryggvi lék þá á
varnarmenn Völsungs og skoraði
síðan, fallegt mark hjá Tryggva.
Þannig var staðan \ hálfleik, og
Tryggvi kom KA yfir í síðari
hálfleiknum fljótlega með lag-
legu marki. Ftam að þessu höfðu
KA-menn verið sterkari aðilinn í
leiknum, en þeir voru nú farnir
að þreytast mjög og Völsungarnir
„Þetta var sanngjarn sigur hjá
þeim, ég hef ekki séð mína
menn svona slaka áður og þeir
fóru því létt með þetta,“ sagði
Róbert Agnarsson þjálfari
HSÞ-b eftir að lið hans hafði
tapað á heimavelli um helgina
fyrir Leikni í 3. deildinni.
Róbert var að taka út leikbann
og mátti sætta sig við að sjá sína
menn tapa 0:2. Það var Borgþór
Harðarson sem skoraði fyrra
komu sífellt meira inn í leikinn.
Það var svo Jónas Hallgríms-
son sem jafnaði 2:2 með marki úr
vítaspyrnu og þegar 8 mínútur
voru til leiksloka skoraði Jón
Leó Ríkharðsson sigurmark
Völsungs. Skagamennirnir tveir
hjá Völsungi, Sigurður Halldórs-
son og Jón Leó skoruðu því
báðir, og Tryggvi sem kom frá ÍR
til KA skoraði bæði mörk Akur-
eyringanna.
Sanngjarn sigur hja
Fáskrúðsfirðingunum
mark Leiknis, en Óskar Ingi- ið og gulltryggði stigin þrjú fyrir
mundarson skoraði síðara mark- . Fáskrúðsfirðingana.
STAÐAN
Mikil
barátta
Huginn og Valur gerður jafntefli 1:1 í
b-riðli 3. deildar um helgina en liðin
léku á Seyðisfírði.
Ekki þótti leikur liðanna rismikill
knattspyrnulega séð, en þeim mun
meiri áhersla var lögð á að berjast um
hvern bolta. Sigurður Víðisson skor-
aði fyrir Hugin í fyrri hálfleik, en þeg-
ar stutt var til leiksloka jafnaði Sigur-
jón Marinósson fyrir Val.
Staðan
Staðan í b-riðli 3. deildar eftir leiki
helgarinnar er sem hér segir:
Austri-Þróttur
HSÞ-b-Leiknir
Tindastóll-Magni
Huginn-Valur
1:1
0:2
1:0
1:1
Leiknir 3 2 0 1 4:4 6
Austri 3 1 2 0 6:2 5
Valur 2 1 1 0 3:1 4
Tindastóll 2 1 1 0 2:1 4
Huginn 2 0 2 0 2:2 2
Þróttur 3 0 2 1 2:4 2
Magni 1 0 0 1 0:1 0
HSÞ-b 1 0 0 1 0:2 0
Einherji 1 0 0 1 0:2 0
Þór
sigraði
Þór og KA léku sinn fyrsta leik í 1.
deild íslandsmóts kvenna í knatt-
spyrnu fyrir helgina. Um var að ræða
innbyrðis viðureign liðanna og var
leikið á Þórsvelli.
Þór sigraði í leiknum ineð einu
marki gegn engu og var það Inga Huld
Pálsdóttir sem skoraði sigurmark Þórs
á 20. mínútu leiksins. Þórsliðið þótti
leika betur og sigur liðsins verðskuld-
aður.