Dagur - 03.06.1985, Page 9

Dagur - 03.06.1985, Page 9
3. júnf 1985 - DAGUR - 9 Pt ® f * I X' PV2I 5I&, j HPSMK’t W * 7MÍé Mjwp 'lKwiy*’ iip» v?| „Nu skal reiddur aflahlutur“ Verkmenntaskólanum á Akur- eyri var slitið að afloknu fyrsta starfsári á laugardaginn. Pann dag átti skólinn ársafmæli. Við skólaslitin voru útskrifaðir fyrstu nemendurnir frá skólanum, þar á meðal fyrstu stúdentarnir. Um starf skólans í vetur sagði Bernharð Haraldsson, skóla- meistari, m.a. í ræðu sinni: Þetta fyrsta starfsár Verk- menntaskólans á Akureyri hefur verið viðburðaríkt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Innritaðir nemendur voru um 780 við upp- haf skólaárs, um 100 færri á vorönn, nokkrir útskrifuðust við haustannarlok, námshópar fóru um annaskipti og aðrir komu, all- margir nemendur hafa hætt af ýmsum ástæðum og er víst ekkert við því að segja. Skólahaldið hefur goldið um- róts í þjóðfélaginu í vetur, verkföll, vinnudeilur og umræða um skólamál, allt of oft einkennd af vanþekkingu, hafa óhjákvæmi- lega sett mark sitt á starfið. Það má enginn líta svo á, að skóli sé einangrað fyrirbæri innan luktra veggja, þangað inn berst þungur ölduniður, orð og atburðir um- hverfisins fara ekki framhjá nein- um og því skal ekki leynt, að okkur hefði komið betur, svona á fyrsta starfsári, meðan barns- sporin voru hvað erfiðust, að fá frið og ró, til að njóta þeirrar ánægju að mega fást við þekk- ingu og fræði með ungu fólki, nýta dýran tímann til hins ítrasta. Námsbrautin varð því mörgum erfiðari en til stóð, en margir nemendanna, ég vil segja þorri þeirra, stóð af sér öldurótið og stefndu ótrauð að hinu upphaf- lega marki. Því er nefnilega þannig farið með æskufólk, að ætli það sér eitthvað, sem máli skiptir, er engin áreynsla spöruð til að árangur náist. Um húsnæðismál skólans sagði Bernharð: Að ýmsu öðru hefur verið starfað eins og vonlegt er í nýjum skóla, sumu hefur miðað vel, öðru miður, áhyggjur okkar, sem hverfa í fögnuði dagsins, hafa einkum bundist fé - sem forfeður okkar kölluðu rógmálm skatna - kaupum á kennslutækjum og byggingu húsa. Ég hlakka til þess dags, þegar hægt verður hér á þessum stað, að segja að nú séu fullbúin hús á Eyrarlandsholti, nú sé hægt að hýsa alla undir einu þaki, sameina hópinn í leik og Fyrsti stúdentahópurinn sem útskrifast frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. starfi; megi sá dagur koma sem fyrst. Áætlanir okkar um uppbygg- ingu húsa á Eyrarlandsholti hafa breyst og næsta skólaár verður húsakostur hinn sami og í ár. Þetta hefur valdið okkur nokkr- um vonbrigðum; gerir okkur erf- iðara um vik að rækja með ungu fólki samkennd og samhug, því þótt námið sjálft, stærðfræði og stjórnun véla, bókhald og bakstur, hjúkrun sjúkra, íslenska og þýska, sé það, sem starf okkar snýst mest um, þá má ekki gleyma, að skólinn er samfélag ungs fólks, þar sem mannleg samskipti næra sálina, gefa lífinu aukið og æðra gildi. Sameining náms og mannlegra samskipta. eykur skilning á lífinu sjálfu, kennir mönnum að greina kjarn- ann frá hisminu og að láta ekki fánýta hluti glepja hugann. í lokin afhenti Bernharð nem- endum pröfskírteini. en áður en að því kom sagði hann: Nú renn- ur stundin upp sern þið hafið beð- ið með vaxandi óþrevju síðustu vikurnar. Nú skal ykkur reiddur aflahlutur. Það hefur verið gam- an að kynnast ykkur og gott að vinna með ykkur. - GS Að lokum var faðmast og kysst - og strokið var af vanga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.