Dagur - 18.10.1985, Blaðsíða 5
18. október 1985 - DAGUR - 5
,-hjátrú eða hvaðZ
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Epíí
Eplið er eins og allir vita ávöxtur-
inn sem slangan freistaði Evu
með í aldingarðinum Eden. Það
hafði skelfilegar afleiðingar þess
vegna skyldi engin borða epli
áður en fyrst, að hafa þvegið það
vandlega, annars gæti sá vondi
legið í leyni. Epli eru nátengd
ástinni. Ef stúlka vill leita frétta
af því hvort hún komi til með að giftast piltinum sem
hjarta hennar stendur til, þá er ekki til annað betra ráð en
að flysja epli og henda flusinu, sem Nota Bene, verður að
vera heilt, yfir vinstri öxlina. Haldist það í heilu lagi og
myndi fyrsta stafinn í nafni piltsins er um ræðir, giftist hún
honum. Ef flusið rifnar í sundur giftist hún aldrei. Einnig
getur hún lesið framtíð sína í eplinu sjálfu ef það er skorið
í tvennt og fræin talin, kvöldið fyrir Tómasarmessu, sem er
í endaðan desember. Ef tala þeirra er jöfn er gifting í
vændum. Ef hún er svo óheppin að skera í sundur eitt eða
fleiri fræ þá er það ógæfumerki og hún endar sem ekkja.
Ef stúlka á sér marga elskhuga og verður að velja á milli
þeirra er kjarnhús eplisins gott hjálpartæki. Hún nælir sér
í jafn mörg kjarnhús og elskhugarnir eru og hendir þeim
hverju á fætur öðru á eld og leið og hún mælir fram nöfn
mannanna. Ef kjarnhúsið brennur án þerss að springa þá
er ást viðkomandi málum blandin, en springi það, þá er sá
sem um ræðir, að sjálfsögðu, að springa úr ást.
Fyrsta eplið á ungu tré verður kona að eta sem átt hefur
mörg börn og þá mun tréð verða frjósamt.
„Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni“, segir íslenskur
málsháttur og tekur þar meira tillit til stuðlasetningar en
þeirrar staðreyndar að epli vaxa ekki á eikartrjám. Margir
reyna að vera meiri en þeir eru eins og þessi málsháttur ber
með sér: „Vér eplin með sögðu hrossataðskögglarnir“.
Eldingar
Eldingar eru náttúrufyrirbæri sem
ekki sjást oft á íslandi en þær vekja
óhug hvar sem þær sjást. Alveg síð-
an í Grikklandi hinu forna hefur
þetta haft í för með sér alls konar
hjátrú. Allir kannast við að „eldingu
slær aldrei niður á sama stað“. Þessi
fullyrðing gefur falska öryggiskennd
sem sannast best á því að Empire
State Building í New York verður fyrir rúmlega fimmtíu elding-
um á ári.
í fornöld trúðu menn því að eldingin væri þyrnir eða refsivönd-
ur guðanna. Seifur gat sent eldstólpana til jarðar þar sem hann sat
á Olympsfjalli og Ása-Þór átti ekki í vandræðum með það
heldur.
Sagt er að ef einhver sefur á meðan eldingu lýst niður þá sé
hann feigur, en ef hann vaknar við leiftrið þá er það góður fyrir-
boði. Ekki þykir ráðlegt að tala um eldinguna rétt á eftir að henni
hefur slegið niður, það boðar ekkert gott og einnig var það álit
sumra að hætta væri á því að missa vitið ef horft væri á þær.
Margs konar aðferðir eru til að vernda sig gegn eldingum s.s.
að vefja slönguskinni um höfuðið eða liggja á fjaðradýnu. í
Ameríku vita margir að tré sem hefur orðið fyrir eldingu má
aldrei nota sem eldivið því þá aukast líkurnar á því að húsið verði
fyrir eldingu.
Þrettán
Talan þrettán hefur verið illræmd frá
upphafi alda. Líklegasta skýringin á
því er sú að akkúrat þrettán menn
voru viðstaddir síðustu kvöldmáltíð-
ina. Þeir þurfa því að vera hugaðir
sem halda veislu eða samkomu þar
sem þrettán gestum er boðið. Eng-
um góðum gestgjafa ætti að láta sér
detta slíkt og þvílíkt í hug, vegna
þess að samkvæmt einni kenningu um þrettán þá ætti einn af
þessum gestum að láta lífið innan árs, nefnilega sá sem fyrstur
stendur upp frá borðum. Það er sjaldgæft að sjá þetta númer á
skrifstofum eða á verslunum og flugfélög hafa verið þekkt fyrir
að veigra sér við að nota þrettán sem flugnúmer. í París er ekki
líklegt að rekast á þrettán sem húsnúmer, þar hafa þeir líka leist
vandann af franskri smekkvísi þar sem númer þrettán er sleppt
en í stað þess notað tólf plús. Beri þrettánda upp á föstudag er
eins gott að gæta sín og réttast að leggja niður allt starf í samfé-
laginu og halda þjóðinni innan dyra undir slíkum kringumstæð-
um.
HoQSöes/ BIIASAIA
| I- C Cg,
bíiasalínn
VIÐ HVANMAVtLLI
5:24119/24170
Toyota Carina, sjálfsk. ary. '80, ek.
67000 Verð 240.000.
Colt GLX 1400 árg. '81, ek. 65.000.
Verð 250.000
Peugeot 504 árg. '79, ek. 75.000.
Verð 250.000
Subaru station árg. '82, ek. 70.000.
Verð 360.000.
Land-Rover diesel árg. '71, ek. 71.000.
Verð 100.000.
Lada Sport '79, ek. 60.000.
Verð 180.000.
Saab 99 5 gíra árg. '82, ek. 35.000.
Verð 370.000.
Gott úrval af bílum
á góðum kjörum.
Opid frá kl. 9-19 daglega.
„Laugardaga kl. 10-17.
KMGpisf
Gleraugu - Gleraugu
■
Notar bamið þitt gleraugu?
Vorum að taka upp níðsterkar bama-
og unglingaumgjarðir frá Essilor
í Frakklandi.
Bamagleraugu em
sérgrein okkar.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7 - í miðbæ Akureyrar
«.
O)
rj
<
SjcMUm
Föstudagur 18.10.
Húsið opnað kl. 20.00.
Bandaríski discósöngvarinn
Forrest mætir í Sjallann, aðeins
þetta eina kvöld
kl. 23.15.
Diskótekið
á fullu, nýtt efni
vikulega.
Diskótek allt
kvöldið.
Laugardagur 19. október
TÍSKUSÝNING:
'fióluvetðlun Síeírtunnat
J Nýja tiskulinu á haus
haustdrögtum
frá hollenska fyrirtækinu „CIN“.
Þýska kvöld-model kjóla frá
„MUREK + MUREK“.
Vönduð frönsk pils frá „PARÍS".
Pils og peysur
frá danska
fvrirtækinu
,MICHA“.
Kjallarinn
Jazz - Jazz
Sunnudaginn 20. október.
Hálft í hvoru
Mánudaginn 21. október.
Þnðjudaginn 22. október.
Miðvikudaginn 23. október.
Vel klædd er konan ánægð.
Sýningarflokkur frá Dansstudíói Alice.
Hljómsveitin AllltUJ leikur fyrir dansi
ásamt diskóteki.
Tilboð
Marineraður hörpufiskur
á teini m/kryddsoði
Piparsteik m/grænpiparsósu, djúpsteiktum
laukhringjum, smjörsoðnu spergilkáli og
kartöflugratín.
Heitt eplapie m/þeyttum rjóma.
kr. 795.-
Grímur Sigurðsson og Kristján Guðmundsson
leika fyrir kvöldverðargesti.