Dagur


Dagur - 18.10.1985, Qupperneq 12

Dagur - 18.10.1985, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 18. október 1985 Alþjóðlega bílasýningin f Frankfurt 1985: Nýr Honda Accord Stærsti mótorhjólaframleiðandi heims, Honda, átti stóra sýning- ardeild í Frankfurt. Þar voru nokkrar nýjungar og þá fyrst og fremst tvær nýjar útgáfur af Honda Accord. Fólksbíllinn með nýju útliti, mýkri línur. Ennfremur ný útgáfa, með skuthurð, sem nefnist Aero- deck. Sá bíll minnir nokkuð á Civic en er þó talsvert stærri. Báðar gerðirnar eru fáanlegar með nýrri 2 1 vél, sem er ýmist 106 hö. eða 122 hö. Enn ein gerð þessarar vélar verður fáan- leg í Honda Prelude og verður hún þar 136 hö. og er ætlað að knýja Preludinn yfir 200 km/klst. Nissan Nissan-verksmiðjurnar heiðr- uðu Evrópubúa með því að sýna í fyrsta skipti nýjan sport- bíl í Frankfurt þó aðeins nokkr- ar vikur séu í bílasýninguna í Tokyo. Sportbíllinn kallast MID-4, og hefur eins og nafnið gefur til kynna, vél í miðjum bílnum. Sú er 6 strokka, 230 hö. Bíllinn er búinn drifi á öllum hjólum og verður fyrst um sinn aðeins á markaði í Japan. Þá mátti sjá Nissan Prairie með drifi á öllum hjólum ásamt hefðbundinni framleiðslu Niss- an sem ekki virðist hafa breyst ýkja mikið. En bílasýningin í Tokyo hefst eftir nokkrar vikur og þar er líklegt að Japanir op- inberi fleiri nýjungar. Færra var um nýjungar frá frændum vorum Svíum en búist var við. Margir hafa um nokk- urt skeið átt von á því að Volvo kynnti nýjan framhjóladrifinn smábíl, sem leysa á af hólmi 340-gerðina og gæti jafnframt gefið til kynna hvað í vændum kann að vera þegar dagar 240- bílanna verða allir. Ekki varð þó af því að þessu sinni. Volvo sýndi þó í fyrsta sinn á Evrópu- markaði nýju „herragarðsvagn- ana“ (station) af 740 og 760 gerðunum. Þetta eru risastórir bílar að utan og innan með allt það rými sem venjulegt fólk getur nokkurn tíma þurft á að halda. Fáanlegar eru 4 og 6 strokka vilar, bensín- og dísel- vélar, 82-156 hö. Alþjóðlega bílasýningin í Frankl'urt, sú 51., varopnuð 12. september sl. Þessi sýning er sú mesta sinnar tegundar sem haldin er og ekki brá út af þeirri venju að þessu sinni, enda er nú um þessar mundir haldið upp á 100 ára afmæli bílsins. Öld er liðin frá því þeir Daimler og Benz kynntu uppfinningu sína, bílinn. Það farartæki átti lítið sameiginlegt með því sem við köllum sama nafni nú á dögum. Fátt hefur þó átt jafnríkan þátt í því að létta daglegt líf fólks og auðvelda samgöngur og samskipti manna á milli og bíllinn. Þetta mikilvæga sam- göngutæki má nú teljast al- menningseign og áhugi almenn- ings á bílnum og samgöngumál- um sýnir ekki hvað sst hve háan sess bíllinn skipar í hugum fólks. Sýningin í Frankfurt að þessu sinni var tengd aldarafmæli bíls- ins og umræður á sýningunni og í tengslum við hana snerust annars vegar um þessi tímamót og hins vegar um nýjungar sem fram kontu á sýningunni. Þegar litið er til sýninga á fyrri áratug- um hafa nýjungar í útliti og hönnun ekki verið jafn áber- andi á sýningum seinni ára. Svo virðist sem bílaframleiðendur hafi komist að svipaðri niður- stöðu í aðalatriðum og að flest- ar nýtilegar lausnir hafi verið reyndar. Það þýðir hins vegar ekki að bíllinn sé nú í endan- legri mynd. Öðru nær. Sér- fræðingar bílaiðnaðarins kepp- ast við að bæta framleiðsluna í enn ríkara mæli en nokkru sinni fyrr. Nú voru nýjungarnar fólgnar í bættum drifbúnaði (fjórhjóladrif), hreinni útblæstri frá vélum (katalysator) og bættri nýtingu eldsneytis (for- þjöppur, fjölvenllavélar og ör- tölvustýringar fyrir eldsneytis- og kveikjukerfi). í tengslum við opnun sýning- arinnar fór fram nokkur um- ræða um þátt bíla í mengun og áhrif þeirra á þá hættu sem gróðurlendi stafar af súru regni, svo og um hugmyndir um hraðatakmarkanir á þýsku hraðbrautunum. Skiptar skoð- anir eru um þessi mál en þó virt- ust margir andvígir hraða- takmörkunum og töldu þær litl- um tilgangi þjóna. Þjóðverjar eru sjálfir tilbúnir að verja um- talsverðum fjármunum í því skyni að draga úr mengun en telja að slík fjárfesting muni tæplega skila tilætluðum árangri nema flestar eða allar Evrópu- þjóðir geri slíkt hið sama. Porsche 959 Háþróað, hrað- skreitt tœkniundur Porsche 959 er af mörgum tal- inn fullkomnasti, hraðskreiðasti og jafnframt dýrasti fjöldafram- leiddi bíll heims. Reyndar er ekki um fjöldaframleiðslu að ræða enn, heldur verða fyrst í stað aðeins smíðuð 200 eintök af honum svo hann fáist viður- kenndur sem keppnisbíll. Öll 200 stykkin eru víst löngu seld enda þótt það fyrsta verði ekki afhent fyrr en í ágúst 1986. Verðið er aðeins 420.000 þýsk mörk. Porsche 959 er sportbíll með óvenjulega eiginleika. Vél- in er gamla 6 strokka boxer- vélin, að þessu sinni með vatns- og loftkælingu, 2 útblásturs-1 drifnum forþjöppum (turbo), 4 knastásum, 4 ventlum við hvern strokk, rafeindastýrðu eldsneyt- is- og kveikjukerfi og smurkerfi sem lætur sig litlu varða hvort vélin snýr upp eða niður. Vélin er 450 hö., og slagrými er 2,8 lítrar. Bíllinn er með drif á öll- um hjólum og stýrir örtölva því, til hvaða hjóla aflinu er beint hverju sinni, gírkassinn er 6 gíra, ABS bremsukerfi, og hægt er að breyta hæð bílsins frá götu með einu handtaki. Viðbragðið frá 0-100 er ca. 4 sek. og hámarkshraðinn er ca. 320 km/klst. Því miður eru þeir allir uppseldir. Umsjón: Úlfar Hauksson Porsche 959. Nissan Prairie 4wd. Volvo 240 GL (station). Bílasýningin í Frankfurt er haldin annað hvert ár og gert var ráð fyrir því að meira en hálf önnur milljón manna kæmi á þeim ellefu dögum sem hún var opin. Sýningarsvæðið í Frankfurt er gríðarstórt eins og þeir sem þar hafa komið vita, en sýningarhallirnar eru alls um 240.000 fermetrar auk úti- svæða. Sýnendur voru 1666 frá nær 40 löndum. Hér á síðunni er getið nokk- urra nýjunga sem sýndar voru í Frankfurt, en á næstunni verður svo greint frekar frá því sem þar var að sjá og heyra. lAAVk tr0* Honda Accord Aerodeck EX. Honda Accord Limousine.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.