Dagur - 18.10.1985, Side 16
Akureyri, föstudagur 18. október 1985
Fjölskyldutilboð í Smiðju og á Bauta
sunnudaginn 20. október í hádeginu og um kvöidið
Matseöill: Prinsessusúpa, sítrónukryddaöur lambahryggur með bakaðri kart-
öflu og cognacsósu. Verð á Bauta kr. 350.00. Verð í Smiðju kr. 400.00.
Fyrir 12 ára og yngri í fylgd foreldra frír hamborgari eða
samloka með frönskum kartöflum
Skaut uglu í
stað rjúpu!
Rjúpnaskytta nokkur sem var
að veiðum ekki fjarri flugvell-
inum í Aðaldalshrauni í fyrra-
dag fékk óvæntan feng.
Hann hafði skotið eina rjúpu
og var að beygja sig eftir henni
þegar fugl flaug upp mjög nærri
honum. Skyttan brá byssunni á
loft og skaut á fuglinn, sem lá
og var maðurinn að vonum
ánægður.
Ánægja hans stóð þó ekki
lengi því í ljós kom að fengur
hans var ekki rjúpa, heldur
brandugla. Varð manninum
mikið um og fór hann þegar til
lögreglunnar á Húsavík og
skýrði þar frá því sem gerst
hafði. Ljóst var að hér var um
algjört óhappaverk að ræða, en
þó mun óheimilt að skjóta rjúp-
ur þar sem þessi atburður átti
sér stað, en manninum var ekki
kunnugt um það. Uglan var síð-
an send til Náttúrufræðistofn-
unarinnar í Reykjavík. gk-.
Dalvík:
Nóg vinna hja
iðnaðarmönnum
„Það er nú ýmist í ökkla eða
eyra atvinnuástandið hjá iðn-
aðarmönnum,“ sagði húseig-
andi á Dalvík í samtali við
blaðamann og kvartaði undan
því að það væri jafnvel erfitt
að fá þá til að vinna fyrir sig
vegna anna.
„Það hefur að minnsta kosti
verið nóg að gera hjá okkur að
undanförnu og næg verkefni
fyrirliggjandi fram yfir áramót,"
sagði Bragi Jónsson fram-
kvæmdastjóri Tréverks hf., sem
er langstærsta byggingarfyrirtæk-
ið á Dalvík með 13 iðnaðarmenn
á sínum snærum.
Bragi sagði að um áramótin
83/84 hefðu þeir þurft að segja
upp öllum iðnaðarmönnum en
fljótlega upp úr því hefði farið að
birta til og verið nokkuð gott
síðan.
„Svo erum við með 8 íbúðir í
smíðum fyrir stjórn verkamanna-
bústaða sem við eigum að skila í
apríl ’86, þannig að það er bara
gott hljóð í okkur,“ sagði Bragi
Jónsson. BB.
Verður afgreiðsla áfengisvarnanefndar Akureyrar við umsóknum um nýja
vínveitingastaði með þessum hætti? Mynd: - KGA.
„Svar
mitt
er nei“
- segir formaður áfengis-
varnarnefndar Akureyrar
um vínveitingaleyfi fyrir
veitingastaðinn Svartfugl
„Ég veit ekki um afstöðu ann-
arra nefndarmanna en svar
mitt er nei,“ sagði Arnfinnur
Arnfinnsson formaður Áfeng-
isvarnarnefndar Akureyrar er
við spurðum hann hvort nefnd-
in hefði sent umsögn sína varð-
andi vínveitingaleyfi veitinga-
hússins Svartfugls á Akureyri
til dómsmálaráðherra.
Veitingahúsið Svartfugl er í
Alþýðuhúsinu nýja á Akureyri
og hefur forsvarsmaður þess sótt
um leyfi til vínveitniga. „Ég ve.it
ekki hvaða hugmyndir félagar
mínir í nefndinni hafa, þeir
mynda sér sína skoðun,“ sagði
Arnfinnur er við spurðum hann
hvort nefndin starfaði á sömu
nótum og áfengisvarnarnefndin í
Hafnarfirði sem ávallt mælir gegn
slíkum leyfum þar í bæ. „Það get-
ur verið að skoðanir séu skiptar
innan nefndarinnar, það er þarna
fólk sem ekki er bindindisfólk.
Mín afstaða liggur auðvitað
fyrir og ég færi þau rök fyrir
henni að eftir því sem auðveldara
er að ná í þetta og stöðunum
fjölgar aukist drykkjan,“ sagði
Arnfinnur. gk-.
Kreditkortaviðskipti hjá KEA
- Hagkaup hóf viðskipti með kreditkort á þriðjudaginn
Frá og með morgundeginum
verður hægt að versla með
kreditkortum frá Visa og
Eurocard í Vöruhúsi KEA og
kjörmarkaði félagsins við
Hrísalund. Síðan munu aðrar
verslanir félagsins bætast við
ein af annarri næstu daga.
„Pað er fyrst og fremst tíðar-
andinn sem rekur okkur út á
þessa braut, þar sem kreditkorta-
viðskiptin hafa haslað sér völl í
viðskiptum hérlendis að undan-
förnu. Einnig hafa kreditkorta-
fyrirtækin lækkað þá þóknun sem
verslanirnar þurfa að greiða,“
sagði Magnús Gauti Gautason,
fulltrúi hjá KEA, í samtali við
blaðið.
Það kom fram í samtalinu við
Gauta, að tekið verður við kred-
itkortum í öllum almennum
verslunum félagsins. Það tekur
hins vegar einhvern tíma, að
koma þessu á í þeim öllum, setja
starfsfólkið inn í þennan nýja
greiðslumáta og fá nægilega
margar vélar. Magnús vildi ekki
tilgreina það nákvæmlega, hvað
langan tíma þetta tekur, en það
verður unnið að þessu verkefni
jafnt og þétt.
Hjá Hagkaup hófust kredit-
kortaviðskipti sl. þriðjudag. Að
sögn Guðmundar Friðrikssonar,
verslunarstjóra, er notkun þeirra
ekki komin verulega á skrið enn.
Enda hafi það verið reynslan, að
kortin eru mest notuð í upphafi
hvers greiðslutímabils, eftir 17,-
20. hvers mánaðar. Með því móti
fá korthafar allt upp í 45 daga
greiðslufrest. - GS
Um klukkan níu í gærmorgun
fauk þakið af hlöðunni á bæn-
um Hæringsstöðum innarlega í
Svarfaðardai. Hlaðan var
næstum full af heyi, en litlar
skemmdir urðu á því.
„Það var sviptivindur sem
feykti þakinu af,“ sagði Jón Þór-
arinsson bóndi á Hæringsstöðum.
„Þeir eru stundum mjög sterkir í
, ..... , suðvestan átt, sem getur orðið
Síðdegis í gær var unnið við að endurbyggja þakið á hlöðunm a Hænngsstoðum. Það voru nábúar Jóns sem aðstoð- hvöss hérna. Veðrið var verst um
uðu hann við verkið. Á innfelldu rnyndinni er Jón Þórarinsson. vi.,n#i:.. \ ....
- moðunni a Hæringsstoðum í
Svarfaðardal - litlar skemmdir
urðu á heyinu
AÆ A• i/r- * ’ -ww »c*i vuiai UIII
Myndir: KGA. nóttina en var að mestu gengið
niður um klukkan átta í ga
morgun. Síðan kom hviða u
níuleytið og þá fór þakið,“ sag
Jón.
Brak úr þakinu dreifðist ví
vegar um túnið ofan við bæinn i
eitthvað af heyi fauk upp um le
og þakið, þó ekki verulegt mag
Jón sagði að það hve tjónið yi
mikið réðist af því hversu fljc
gengi að gera við þakið, þann
að heyið í hlöðunni blotna
ekki. - KGv
„Sviptivindur
tók þakið af“