Dagur - 02.12.1985, Blaðsíða 13
2. desember 1985 - DAGUR - 13
íþróttiL
Þórsarar töpuðu
með einu stigi
- fyrir Breiðabliki 64:65 W
Björn Sveinsson 18, Konráð Bestir Blikanna voru Hannes
Óskarsson 14, Hólmar Ástvalds- Hjálmarsson, Kristján Rafnsson
son 11 og Jóhann Sigurðsson 10. og Jón Guðjónsson. - AE
Stóiieikur
hjá Konráð
- dugði Þór ekki gegn Fram
Jón Hcðinsson.
Jón
ekki
með
Það hefur vakið mikla athygli
að Jón Héðinsson hefur ekki
leikið með Þórsliðinu í þeim
leikjum sem liðið hefur spilað
á útivelli til þessa í vetur.
Samkvæmt heimildum Dags
er ekkert útlit fyrir að breyting
verði á þessu, og Jón muni því
aðeins leika heimaleiki Þórs.
Ekki er vitað hvað þessu veld-
ur en óneitanlega kemur þetta
einkennilega fyrir sjónir. Jón
er jafnan einn máttarstólpi
Þórsliðsins á heimavelli en liö-
ið án hans í útileikjunum sem
eru að sjálfsögðu erfiðari leik-
ir.
Breiðablik og Þór áttust við í
1. deildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsinu við Digranes á
föstudagskvöldið. Breiðablik
sigraði með einu stigi 65:64.
Leikurinn var allan tímann
mjög jafn og liðin skiptust á um
að hafa forustuna. Staðan í hálf-
leik var 30:28 fyrir Þór.
Um miðjan síðari hálfleik náði
Breiðablik 8 stiga forskoti og
virtist vera að gera út um leikinn
endanlega. Staðan þá 52:44 og sá
munur hélst svo til óbreyttur þar
til 4 mín. voru til leiksloka, en á
tóku Þórsarar að saxa á forskotið
og náðu að jafna 64:64 þegar ein
mínúta og 20 sek. voru til leiks-
loka. Brieðablik fékk þá tvö víta-
skot og skoraði úr öðru þeirra.
Þórsarar fengu tækifæri til að
komast yfir í lokin en þeim tókst
ekki að nýta sér þær 40 sek. sem
eftir voru af leiknum og BÍreiða-
blik slapp því með sigurinn.
Bestu menn Þórs í þessum leik
voru Björn Sveinsson og Konráð
Óskarsson sem átti frábæran leik
í fyrri hálfleik. Hann lenti hins
vegar fljótlega í villuvandræðum
í síðari hálfleik og náði sér ekki á
strik eftir það. Jóhann Sigurðs-
son var óhemju drjúgur undir
lokin og skoraði öll sín stig í síð-
ari hálfleik.
Stigahæstir í liði Þórs voru
Þórsarar sóttu ekki gull í greip-
ar Framara er liðin áttust við í
1. deildinni í körfubolta í
Hagaskóla í gær. Fram vann
öruggan sigur 84:64, þrátt fyrir
góða baráttu Þórsara.
Þórsarar byrjuðu leikinn mjög
vel, höfðu frumkvæðið framan
af, 2-4 stiga forskot þar til staðan
var 14:10. Þá tóku Framarar mik-
inn kipp og breyttu stöðunni í
21:16 sér í hag, og þeir juku við
forskotið til leikhlés og leiddu í
hálfleik 34:24, og sýnir þetta lága
skor hversu sterkar varnir lið-
anna voru.
Framarar bættu enn við for-
ustu sína í byrjun síðari hálfleiks
og komust í 57:40. Þá tók Kon-
ráð Óskarsson sig til og skoraði 3
þriggja stiga körfur í röð. í einu
tilvikinu var brotið á honum um
leið þannig að hann fékk vítaskot
að auki sem hann skoraði úr
þannig að þar var raunar um að
ræða 4 stiga körfu. Staðan var þá
orðin 59:50 og menn sáu fram á
spennandi lokamínútur. Svo fór
þó ekki. Framarar hleyptu Þórs-
urum ekki nær sér en skoruðu
þess í stað 6 stig í röð og eftir það
var ekki spurning um úrslitin.
Yfirburðamaður í liði Þórs var
Konráð Óskarsson sem skoraði
31 stig, þar af 23 í síðari hálfleik
og fimm 4 stiga körfur í leiknum,
en allt liðið barðist vel gegn mjög
sterku liði Fram. Konráð var að
sjálfsögðu stigahæstur Þórsara,
Jóhann Sigurðsson var með 10
stig, Hólntar Ástvaldsson 8 stig,
Eiríkur Sigurðsson og Ólafur
Adolfsson 4 hvor og aðrir minna.
ísland - Vestur-Þýskaland á Akureyri á laugardaginn:
Allir bestu leikmenn
íslenska liðsins með!
Einn af landslcikjum íslands
og V.-Þýskalands um næstu
helgi verður háður í íþrótta-
höllinni á Akureyri og verður
hann á laugardag kl. 13.30.
Forsala aðgöngumiða verður í
Sporthúsinu og hefst á mið-
vikudag.
Allir leikmenn íslenska lands-
liðshópsins hafa gefið kost á sér í
þessa leiki nema Þorbergur Aðal-
steinsson sem leikur í Svíþjóð.
Þetta þýðir að Akureyringar fá
nú loksins að sjá til Alfreðs Gísla-
sonar en mörg ár eru nú liðin síð-
an hann hefur sést í leik í heima-
bæ sínum. Þá koma allir aðrir at-
vinnumenn íslands í leikinn sem
fyrr sagði, Páll Ólafsson, Kristján
Árason, Bjarni Guðmundsson og
Atli Hilmarsson frá V.-Þýska-
landi og þeir Einar Þorvarðarson
og Sigurður Gunnarsson frá
Spáni.
V.-Þjóðverjar eru í dag með
eitt af sterkustu landsliðum í
heiminum. Á „Super-Cup“ mót-
inu á dögunum urðu þeir í 4. sæti
á eftir Sovétmönnum, Júgóslöv-
um og Rúmenum en á undan lið-
um eins og Póllandi, Tékkó-
slóvakíu, Danmörku og Svíþjóð.
Hér er því ekkert miðlungslið á
ferðinni og í liðinu eru margir
heimsþekktir leikmenn.
Ekki er að efa að nú gefst
handknattleiksáhugamönnum á
Akureyri og nágrenni kostur á að
sjá leik sem getur orðið mjög jafn
og spennandi. Þótt mótherjarnir
séu sterkir er íslenska liðið þræl-
gott lið með alla sína bestu leik-
menn innanborðs þannig að eng-
inn ætti að missa af þessari viður-
eign.
Sem fyrr sagði er forsala í
Sporthúsinu frá miðvikudegi. Þá
verður fólki gefinn kostur á að
spá fyrir um úrslit leiksins í
íþróttahöllinni, og sá sem getur
spáð rétt fær helminginn af inn-
komunni í þeirri getraun.
Alfreð Gíslason í leik í Skemmunni
á Akureyri fyrir nokkrum áruni.
Agavandamál!
- og Völsungar töpuðu í Borgarnesi
„Þetta var vægast sagt lélegur
leikur hjá okkur, og viö áttum
alltaf undir högg að sækja,“
sagði Sveinn Pálsson liösstjóri
Völsunga, en liðið tapaði fyrir
Skallagrími í Borgarnesi 21:18
í 3. deild handboltans um helg-
ina.
Völsungar voru heldur fáliðað-
ir í þessum leik, þrír leikmanna
liðsins fengu að sitja á áhorfenda-
pöllum vegna agabrota þannig að
fátt var um skiptimenn, aðeins
einn fyrir útispilarana og vara-
markvörður.
Skallagrímur hafði því alltaf
undirtökin í fyrri hálfleik og
leiddi að honurn loknum með
9:5. í síðari hálfleik reyndu
Völsungar allt hvað þeir gátu að
vinna þennan mun upp, þeir
náðu tvivegis að minnka í tvö
mörk en nær komust þeir ekki.
Þeir skoruðu 13 mörk gegn 12 í
síðari hálfleik og töpuðu því
leiknum 18:21.
Mörk Völsunga gerðu Sig-
rnundur Hreiðarsson 6, Pétur
Pétursson 4, Helga Helgason 3,
Birgir Skúlason 2, Bjarni Boga-
son, Pálmi Pálmason og Gunnar
Jóhannsson 1 hver. - Völsungar
réðu ekkert við Björgvin Björg-
vinsson í liði Skallagríms. Hann
skoraði 14 mörk eins og gegn Þór
daginn áður, og var þó tekinn úr
untferð allan síðari hálfleik. gk-.
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi:
1. deild:
Arsenal-Birmingham 0:0
A. Villa-Tottcnham 1:2 2
Ipswich-Sheff. Wed 2:1 1
Luton-Man. City 2:1 1
Liverpool-Chelsea 1:1
Man. Utd.-Watford 1:1 x
Ncwcastle-Leicester 2:1 1
QPR-Coventry 0:2 2
Southampton-Everton 2:3 2
West Ham-WBA 4:0
Oxford-Nott. Forest sunnud.
2. deild:
Barnsley-Millwall 2:1
Bradford-Portsmouth fr. 1
Brighton-Hull 3:1
Charlton-Carlisle 3:0
Fulham-Oldham 2:2 x
Grimsby-Blackburn 5:2 1
Leeds-Norwich 0:2 2
Middlesb.-Schrewsb. 3:1
Sheff. Utd.-C. Palace 0:0
Stoke-Sunderland 1:0 1
Wimbledon-Huddersf. 2:2
STAÐAN
1. deild
Man. Utd. 19 13 4 2 36:10 43
Liverpool 19 125 2 42:17 41
West Hara 19 11 4 3 35:19 38
Chelsea 19 11 4 4 31:20 37
Sheff. VVed. 19 10 5 4 27:25 35
Everton 19 10 4 5 41:27 34
Arsenal 19 95 5 22:22 32
Luton 19 8 6 5 33:23 30
Newcastle 19 8 5 6 27:28 29
QPR 19 8 3 8 20:24 27
Nott. Forest 18 8 2 8 29:29 26
Tottenhara 18 7 4 7 31:24 25
Watford 19 6 5 8 34:34 23
Coventry 19 6 5 8 24:25 23
Southampton 19 5 6 8 23:28 21
A. Villa 19 48 7 23:25 19
Man. City 19 4 6 9 18:27 18
Oxford 19 4 6 9 28:38 18
Leicester 19 4 6 9 24:36 18
Birrainghara 18 5 2 11 11:25 17
Ipswich 19 3 3 13 16:34 12
W.B.A. 19 1 4 14 14:47 7
STAÐAN
2. deild
Portsmouth 17 11 2 4 29:12 35
Sheff. Utd, 19 9 7 3 37:22 35
Charlton 17 10 3 4 33:19 33
Norwich 19 96 4 33:20 33
Wimbledon 19 9 6 4 23:18 33
C. Palace 19 9 4 6 26:21 31
Barnsley 19 85 6 22:16 29
Brighton 19 8 4 7 33:29 28
Blackburn 19 7 6 6 22:23 28
Oldhara 19 84 7 22:29 28
llull 19 67 6 31:26 25
Sunderland 19 7 4 8 19:26 25
Grimsby 19 6 6 7 32:27 24
Stoke 19 5 8 6 22:13 13
Leeds 19 6 5 8 22:27 13
Millwall 18 6 3 9 25:29 21
Eulham 16 6 2 8 17:22 20
liuddersf. 19 4 7 8 21:33 19
Bradford 16 5 3 8 17:24 18
Middlesb. 18 4 6 8 13:22 18
Schrewsbury 19 4 5 10 23:31 17
Carlisle 18 2 3 12 18:46 9