Dagur - 18.12.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 18. desember 1985
Guðshús í kktá
Það er ekki amalegt fyrir þá sem búa umhverfis klettakirkjuna að hafa þetta útsýni.
Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína,
umturnar fjöllunum frá rótum.
Hann heggur göng í björgin
og auga hans sér alls konar dýrindi.
Hann bindurfyrir vatnsœðarnar, tilþess að þær tárist ekki,
og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.
En spekin, hvar er hana að finna,
og hvar á viskan heima?
Guð veit veginn til hennar
og hann þekkir heimkynni hennar.
Pví að hann sér til endimarka jarðar,
lítur allt, sem undir himninum er.
Og við manninn sagði hann:
„Sjá, að óttast Drottin - það er speki,
og að forðast illt - það er viska. “
(Job 28:9-12, 23-24, 28).
Geysifullkomið pípuorgel er í kirkjunni.
Svalirnar og hvolfþakið eru úr kopar.
Þessi orð úr Jobsbók eru eink-
unnarorð Tempel kirkjunnar í
Helsinki í Finnlandi. Hún heitir
raunar Temppeliaukion kirkko á
finnsku en Tempelplatsens kyrka
á sænsku. Hún hlýtur að vera
með sérkennilegri og stórfeng-
legri guðshúsum. Hún er höggvin
í klett. Hún er stórfenglegt
mannvirki og finni menn ekki
fyrir návist guðdómsins í þessu
húsi, þá eru þeir líklega fjarlæg-
ari honum en góðu hófi gegnir.
En orðin úr heilagri ritningu, sem
Sunnudagsmessa í klettakirkjunni.