Dagur - 18.12.1985, Qupperneq 9
18. desember 1985 - DAGUR - 9
Á klettaveggnum eru festingar með Utlum hillum þar sem hægt er að kveikja
a kertum 1 minnmgu latins astvinar. 6 J
vísað var til hér á undan, minna
menn á hógværð - að þeir miklist
ekki af verkum sínum og þá ekki
heldur af byggingu þessarar
kirkju. Guð veit veginn til spek-
innar og viskunnar, - þess sem
máli skiptir að höndla.
Tœr fdjómburður
En á veraldlegan mælikvarða
mega höfundar þessa húss vera
stoltir. Pað er alveg einstök til-
finning að ganga inn í klettinn.
Hljómburðurinn er frábærlega
tær og mikill. Undirritaður var
svo heppinn að vera þarna á ferð
á sunnudegi og viðstaddur lúth-
erska messu á ensku, en kirkjan
er notuð af tveimur evangelísk
lútherskum söfnuðum, öðrum
finnskumælandi og hinum
sænskumælandi. Auk þess fá aðr-
ir lútherskir söfnuðir inni í kirkj-
unni og þar eru gjarnan haldnir
hljómleikar, eins og gefur að
skilja, þar sem kirkjan er þekkt
fyrir hljómburð. Yfir 170 þúsund
manns taka þátt í kirkjulegum at-
höfnum á hverju ári og um hálf
milljón manna heimsækja hana
árlega.
180 loftgUujgar
rorgið sem kirkjan eða klettur-
nn stendur við fékk nafn sitt árið
1906. Smám saman þróuðust
íugmyndir um að reisa þarna
drkju. Samkeppni um bygging-
ina var haldin 1932 en engin
ausn þótti viðunandi. Önnur
amkeppni var haldin 1936 og þá
'ar hugmynd prófessors J.S. Sir-
:n samþykkt, sem í grundvallar-
itriðum byggðist á því að nota
teininn sjálfan. Byrjað var að
;rafa út klettinn 1939, en því
tarfi varð að hætta vegna
/etrarstríðsins og heimsstyrjöld-
i setti síðan strik í reikninginn.
'riðja samkeppnin var haldin
961 og þá varð ofan á að nota
hugmynd tveggja bræðra, Timo
og Tuomo Suomalainen. Fram-
kvæmdir hófust 14. febrúar 1968
°g þeim var lokið á skömmum
tíma, 28. september 1969. Kirkj-
an er 13.760 rúmmetrar að stærð,
vegghæð frá 5 til 9 metrar. í>ak
kirkjunnar er gert úr kopar,
steinsteypubitum og 180 gluggum
á milli þeirra. Mesta hæð kirkju-
loftsins er 24 metrar. Kirkjan
sjálf tekur 940 manns í sæti og
auk þess er safnaðarheimili sem
tekur 130 manns í sæti.
Aítarisveggur úr
ísaídarkíetti
Kirkjan er skammt frá miðborg
Helsinki. Grunnhugmyndin var
sú að varðveita klettinn eins og
frekast væri kostur. Hægt er að
ganga upp á hann, en kirkju-
hvolfið er varið fyrir hávaða og
umferð gangandi fólks með
hlöðnum steinvegg, sem er bund-
inn með járni, sem ekki sést.
Engar bjöllur eru í kirkjunni.
Veggir hennar eru hafðir gróf-
gerðir og mun það m.a. hafa ver-
iö gert af hljómtæknilegum
ástæðum. Sjá má för eftir borana
sem notaðir voru til að hola
klettinn. Kletturinn tekur á sig
margvfslegar myndir og liti og við
vissar aðstæður má sjá vatn seytla
út úr sprungum í klettaveggjun-
um. Það rennur undir gólfið og
þar undir mun vera ýmiss tækni-
búnaður s.s. hitakerfi. Altar-
isveggurinn er ísaldarklettur og
á surnrin falla sólargeislar á hann
við morgunmessur. Gegnt altar-
inu eru svalir, allar klæddar með
kopar eins og loftið. Þar er að-
staða fyrir útvarps- og sjónvarps-
upptökur. Geysistórt og voldugt
pípuorgel er í kirkjunni með 4
hljómborðum, 43 stillihnöppum
og 3.001 pípu.
Einfaldast er að lýsa þessari
kirkju með því að segja að hún
sé hreint guðdómleg. Slík lýsing
hlýtur að eiga vel við. HS
,,Pabbi, trúirðu á jólasveininn?“ Sú stutta pældi ntikið í jólasveinunum þegar þeir voru í fiöneueötunni á
dogunum. Hvort pabbinn trúir á sveinana skal ósagt látið. 8 "!"8°tU"!J! .a
Mynd: KGA
OKUMAIMNA
Mikil-
vægt er
að menn
geri sér grein
fyrir þeirri miklu
ábyrgð sem akstri
fylgir. Bílar eru sterk-
byggðir í samanburði við
fólk. Athyglisgáfan verður því
að vera virk hvort sem ekið er á
þjóðvegum eða í þéttbýli
rtæ FERÐAR
f
\
n
u
Oskum viðskiptávinum okkar
gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári
4| Þökkum viðskiptin.
Jrar
^/Skipagötu 12, 2. hæð, sími 23022.
<4
i/
ter kletturinn skapar ákaflega sérkennilegt andrúmsloft og mjög góðan
ljómburð.
óskar lesendum sínum
gleðilegm jóla
og gœfuríks komandi árs.