Dagur - 18.12.1985, Qupperneq 13

Dagur - 18.12.1985, Qupperneq 13
18. desember 1985 - DAGUR - 13 sig og ekki haft nein afskipti af því.“ Þorbjörg: „Hann fær aö smakka sitt vín ef hann langar til, ég er ekki fanatísk. Ég get haldið minni trú þó aö ég búi í Garði og hafi ekki mína kirkju nálægt, samt finnst mér ég ekki vera eins trúrækin og þegar ég haföi mína kirkju í Keflavík. Ég var mikið í skáta- og barnastarfi og fannst virkiiega gaman aö vinna viö það og þess sakna ég, þó ekki það mikið að mér finnst betra að eiga heima hér. Og ég vildi ekki skipta þó að mig langi að vinna meira með börnum. Ég kenni handavinnu í Skúlagarði einu sinni í viku, en það er svo lítið að mér finnst ég ekki vera hluti af starfsfólkinu.“ - Hefurðu tekið þátt í félags- lífi í sveitinni? „Ég er í ungmennafélaginu, það sér um jólaballið í ár fyrir börnin og það er gaman að vinna við undirbúninginn. Ég spiia bridds, Jón er mikill briddsmaður og kenndi mér, en þó ég sé fé- lagslynd og hafi gaman af að vera með fólki er ég mjög heimakær líka.“ 0 Pað er enn talað um mig sem happdrættis- vinninginn - Þakkið þið Degi að þið skyld- uð kynnast? „Ég kaupi Dag enn, og reyni að borga hann skilvíslega,“ segir Jón, og Þorbjörg bætir við: „Við sættum okkur við að Dagur á sinn þátt í þessu. Kjartani Helga- syni finnst hann eiga stóran þátt í þessu og við fengum brúðkaups- gjöf frá ferðaskrifstofunni. Það er enn talað um mig sem happ- drættisvinninginn, þetta er nú ef til vill ekki meiri tilviljun heldur en gengur og gerist í þessum efnum, fólk hittist á balli eða ein- hvers staðar. Við giftum okkur hér í Garði, en það gekk erfið- lega að fá prest á þessum tíma vegna sumarleyfa, prestastefnu og fleiri orsaka, en að lokum fengum við sr. Örn Friðriksson á Skútustöðum." Ég fæ að skoða heimilis- albúmið og því er gaman að fletta, þar eru blaðaúrklippur um ferðavinninginn hans Jóns, heillaóskakort frá brúðkaupinu, fæðingum og afmælum barnanna og ýmsum merkisatburðum hjónabandsins. Einnig fæ ég að sjá myndir úr hinni afdrifaríku ferð og frá dvöl Þorbjargar í Bandaríkjunum, þaðan gæti hún sagt okkur margt fróðlegt. Hún hafði ákveðið að stunda frekara nám, þegar hún kaus að gerast heldur húsfreyja í Garði. En meðal annars hefur Þorbjörg lært dálítið í tónlist. Guðmundur Nordal, sem var hennar fyrsti kennari, fullyrðir að hún sé fyrsta stelpa sem verið hafi í fullorðinslúðrasveit á ís- landi. Jón er einnig gefinn fyrir söng nú er hann að æfa heimatil- búið efni, ásamt fleirum úr ung- mennafélaginu, til flutnings á jólasamkomu. Hjónin minnast þess er Þor- björg kom í heimsókn um jólin fyrir fjórum árum og Jón tók hana með sér upp á sviðið í Skúlagarði til að aðstoða sig við hlutaveltu. Líklega hefur þá mörgum Keldhverfingnum dottið í hug að þarna væri frúarefnið kornið, og reynst sannspár. Ég verð að kveðja fjölskylduna og þakka fyrir viðtökurnar. Um kvöldið ætlar Þorbjörg á að- ventukvöld með dótturina en Jón ætlar að gæta sonarins heima. Það var gott að koma í Garð og spjalla við þetta indæla fólk. Ég held heim á leið ánægð með að vinna hjá Degi sem átti sinn þátt í að leiðir þeirra lágu saman. Fjölskyldan í Garði; Brynja Dögg 2ja ára, Jón Sigurðsson, Þorbjörg Bragadóttir og Bragi 9 mánaða. var hér tæpan sólarhring. Síðan hringdi Jón í mig á Þorláksmessu og bauð mér að koma norður." - Hvað varstu þá farinn að hugsa Jón? „Ja, ekki um hjónaband, það var ekkert slíkt á döfinni þá. Við vorum bestu kunningjar og höfð- um haft samband gegnum síma. Svo þróaðist þetta svona smátt og smátt.“ - Um jólin? „Já, það má segja að það hafi byrjað um jólin. Það má geta þess að Kjartani Helgasyni þótti þetta dálítið mikill vinningur. Að ég skyldi fá ferðina fyrir tvo og taka svo af honum fararstjórann. Það fannst honum heldur gróft og talar um það við mig enn þann dag í dag.“ „Þann 27. feb. opinberuðum við, við vorum mjög ákveðin þegar þetta fór loksins af stað. Okkur fannst við vera orðin það gömul að við vissum hvað við værum að gera.“ í byrjun maí flutti Þorbjörg í Garð, þau giftu sig þriðja júlí og sama sumar byrjuðu þau að byggja nýja íbúð- arhúsið. 0 Ég er mikil jólamanneskja - Eru jólin mikil hátíð á ykkar heimili? „Ég held að fólki í Kelduhverfi finnist ég skrýtin, því ég byrja að undirbúa jól í september, þá fer ég að útbúa jólagjafir. Eg er mjög mikil jólamanneskja, ég er alin upp við að eyða nóvember og desember í jólaundirbúning. Móðir mín saumaði og bjó til jólagjafir eins og ég geri núna og það þarf ekki að kosta svo mikla peninga. Mamma segir að jólin séu eig- inlega punkturinn yfir i-ið, þá er búiö að vinna svo mikið að undirbúningi og jólin verða svo mikið skemmtilegri. Mér finnst ekki nóg að fara í búð á Þorláks- messu, kaupa jólagjafir, en hafa ekkert fyrir þeim sjálf. Mér finnst mjög gaman að sauma á börnin, baka, elda góðan mat og búa til allt kaupæði mikið seinna hingað, skreytt var með heimatil- búnu skrauti, og til dæmis kom ekki ríkisrafmagn fyrr en 1966.“ - Hvernig gengur að samræma jólasiðina ykkar? , „Mjög vel,“ segir Þorbjörg. „Við lögum okkkur bæði eftir að- stæðum, ég þarf að hafa laufa- brauð og rjúpur sem ég hef alls ekki alist upp við, mér finnst fyllt lambalæri betra og við höf- um hvort tveggja." % Mér finnst betra að eiga heima hér Þorbjörg mig langar að vita svolítið meira um aðventista, er til dæmis eitthvað í sambandi við matarvenjur þeirra sem olli því að fólk hélt að Jón fengi ekki al- mennilegan mat? „Aðventistar eru bókstafstrú- armenn, trúa á Biblíuna og taka hana bókstaflega, þeir eru mjög kirkjuræknir, trúa á endurkomu Krists og boðorðin tíu. Mikil áhersla er lögð á heilbrigt líferni, og t.d. þess vegna neita þeir hvorki tóbaks né áfengis. Hvor- ugt hef ég reynt og veit ekkert hvað það er, en sakna þess ekki neitt, get skemmt mér án þess. Aðventistar neyta ekki óhreinnar fæðu, sem kallað er, t.d. svínakjöts og skelfisks, sem sagt ekki dýra sem eru alætur eða dýra sem ekki jórtra. Þetta er ekkert vandamál, mér finnst allur matur góður, en ég er alin upp við að svínakjöt sé ekki góður matur, og þá finnst mér það ekki góður matur, mér hálfpartinn býður við því. í raun þarf ég ekki að neita mér um neitt. en ég sakna þess mikið að komast ekki í kirkju um hverja heigi. Afi minn sem er ný- látinn, sendi mér alltaf messur á kassettum og ég hafði mínar messur hér heima. Svo eru að- ventistar mjög félagslynt fólk." - Jón, eru menn hættir að vor- kenna þér vegna fæðisins? „Já, það held ég, ég hef nú lítið heyrt af þessu umtali. Við ákváðum að þar sem ég er lítið trúaður maður skyldum við semja um að blanda trúmálum ekki saman við okkar líf, ég hef leyft henni að hafa sitt út af fyrir Bömin á heimilinu; Bragi og Brynja Dögg. jólasælgæti." - Hvað finnst þér um auglýs- ingaflóðið og fleira sem farið er að fylgja jólunum? „Auglýsingarnar fara í taug- arnar á mér, mér finnst fólk hugsa allt of lítið um jólin sem jólin. Mér finnst nauðsynlegt að hafa aðventukvöld og jólamessu á jólunum sjálfum, ég hef verið aðventisti síðan ég var 17 ára og aðventistar gera mikið úr jólum. Þeir hafa alltaf aftansöng á jóladagskvöld og jafnvel jóla- guðsþjónustu líka, síðan eru mjög skemmtilegar jóla- árshátíðir þar sem öll fjöl- skyldan er saman komin. Það var kannski helst þetta sem ég sakn- aði þegar ég flutti hingað að hafa ekki mína kirkju í sveitinni. Áður en ég kom áleit fólk að ég væri stórskrýtin og aumingja Jón mundi aldrei fá almennilegan mat að borða.“ - Jón þú ert ekki aðventisti, hvernig voru jólin þegar þú varst að alast upp? „Nei, ég er ekki aðventisti og ákaflega lítið kirkjurækinn maður, en Þorbjörg sækir flestar messur hér. Hjá karlmönnum í sveit er allt- af töluvert mikill annatími um jólin, fyrir strák eins og mig sem hafði gaman af kindum og kunni ærbókina utan að, var alltaf mik- ið meira gaman af útivinnu held- ur en innivinnu. Ég hef lítið verið gefinn fyrir matseld og slíkt. Hér var einangrað, þegar ég var krakki, sótti faðir minn eini suður í heiði til að búa til jólatré úr, Það voru sett kerti á það og þau fest með þvottaklemmum. Vegna einangrunarinnar barst

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.