Dagur - 18.12.1985, Qupperneq 14
14 - DAGUR - 18. desember 1985
dagdvelja.
Brandarar
- Læknir, sagði hræddur sjúkiing-
ur. - Nú er illt í efni. Ég gleypti
munnhörpuna mína áðan þegar ég
var að æfa mig að spila á hana.
- Svona maður, sagði læknirinn. -
Vertu bara rólegur, þetta hefði
getað verið verra. Hugsaðu þér
bara ef þú hefðir nú verið að æfa
þig á píanóið....
- Læknir, ég er að verða svo
gleyminn.
- Eg skil Jónatan minn. Viltu ekki
fá þér sæti?
- Takk fyrir - fá mér hvað?
- Sæti. Jæja Jónatan minn. Hve-
nær tókstu fyrst eftir þessu vanda-
máli?
- Hvaða vandamáli....?
- Hvers vegna í ósköpunum er
rjóminn dýrari en mjólkin, spurði
uuga frúin í mjólkurbúðinni.
- Það er nú vegna þess vina mín,
að það er miklu crfiðara að fá
kýrnar til að setjast á litlu fernum-
ar, svaraði afgreiðslumaðurinn.
Tveir ungir snákar í frumskóg-
inum:
- Ætli við séum citraðir?
- Það veit ég ekki. Af hverju
spyrðu?
- Ég beit mig óvart í neðri vörina.
Geysistórt Ijón var á rölti um
fmmskóginn og allt í einu sá hvar
lítil mús trítlaði yfir veginn
skammt undan. Ljónið stoppaði
og þefaði af músinni.
- Þú ert mjög lítil, urraði það illi-
lega.
- Já, ég hef nýlega verið veik,
svaraði músin afsakandi.
- Þú verður að standa þig bctur,
sagði yfirþjónninn við þjónustu-
stúlkuna. - Gesturinn við borð
númer 10 situr þarna og sefur.
Kastaðu honum út!
- Nei, það vil ég ekki.
- Hvers vegna ekki?
- Vegna þess að í hvert skipti sem
ég vek hann, borgar hann reikn-
inginn.
- Vill þjónninn vera svo vænn að
ioka glugganum?
- Ó, blæs á yður?
- Nei, en buffið hefur fokið þrisvar
sinnum á gólfíð.
Kona nokkur hafði boðið litlum
syni nágrannans að borða hjá sér.
- Ertu viss um að þú getir skoríð
kjötið þitt hjálparlaust, spurði
hún.
- Já, já, svaraði hann hiklaust. -
Það er oft svona seigt heima.
Hjá ráðningarstjóranum:
- Þér emð vonandi heiðarlegur?
- Hvort ég er. Ég hef starfað sem
sundlaugarvörður í sex ár án þess
að fara nokkurn tímann í bað.
Óskar var fímmtugur og vinir hans
vildu stríða honum dálítið og skutu
saman í geit til að gefa honum.
Gjöfína aflientu þcir ásamt lisfa
með nöfnum gefcnda. Óskar leit
fyrst á geitina og síðan á listann,
grafalvarlegur, og sagði svo:
- Þetta er þá líklega ættartalan
hennar....
- Hvemig er nýi forstjórinn?
- Fúll, en réttlátur.
- Hvemig þá?
- Hann er fúll við aila.
Við upptöku kvikmyndarinnar átti
leikarinn að fara inn í búr hjá
Ijóni. Honum leist vægast sagt illa
á það en lciksfjórinn reyndi að
hughreysta hann:
- Þú getur verið alveg rólegur fé-
lagi. Ljónið cr tamið. Það hcfur
verið hellt í það mjólk alla tíð.
- Einmitt það já, svaraði leikarinn
vantrúaður. - Ég hef svo sem líka
fengið mjólk alla tíð, en mér fínnst
samt gott að fá mér kótelettu
svona annað slagið.
- Hugsaðu þér bara, er þetta virki-
lega tóbaksplanta, sagði elskuleg
gömul kona, þegar hún var að
skoða stóran trjágarð.
- Og hvað er nú langt þangað til
vindlarnir verða þroskaðir...?
Fisksali var að mála skilti við búð-
ina hjá sér. Hann ætlaði að festa
það yfír dyrnar á versluninni. Á
skiltinu stóð: Nýr fískur seldur hér
í dag.
Þá kom vegfarandi til físksalans og
sagði við hann:
- Þú þarft nú ekki að mála „í dag“
á skiltið. Ég mcina nú bara að ekki
sclur þú fískinn í gær eða á
morgun, cða er það?
- Nei, ég býst ekki við því, svaraði
físksalinn og strikaði þessi orð út.
- Svo þarftu ekki að setja „hér“
heldur, því ekki selur þú fiskinn
annars staðar, sagði vegfarandinn
þá.
- Nei, þetta er alveg rétt hjá þér,
samþykkti físksalinn og strikaði
orðið út.
- Og hvers vegna þá að mála
„seldur", ja, ég meina ekki gefur
þú fískinn, eða er það?
- Nei, auðvitað geri ég það ekki,
svaraði fisksalinn.
- Og hvers vegna í ósköpunum
dettur þér í hug að taka það fram
að fískurínn sé nýr? Ekki selur þú
gamlan físk?
- Vitanlega ekki, sagði físksalinn.
- Og svo er bara eitt enn, sagði
vegfarandiun að lokum, - það er
aiger óþarfí að taka það fram að
fískur sé á boðstólum, því maður
fínnur það á lyktinni langar leið-
ir. . . .
- Fórstu að ráðunt mínum gegn
svefnleysinu? Taldir þú kindur?
- Já, það gerði ég læknir. Ég taldi
upp að 482.354!
- Og sofnaðir þú ekki?
- Nei, þá var kominn tími til að
fara á fætur...
Læknaneminn var í heimsókn á
geðveikrahælinu.
- Hvernig farið þið að því að fínna
út hvort fólk er orðið heilbrigt,
spurði hann.
- Við látum það fá teskeið, fyllum
baðkar af vatni og segjum því að
tæma baðkarið, svaraði yfírlæknir-
inn.
- Hvað segir það um heilbrigði
sjúkiingsins?
- Jú, sjúklingamir sem eru orðnir
frískir taka bara tappann úr og
hleypa vatninu úr baðkarinu á
þann hátt.
- Já, ég hefði ekki látið mér detta
það í hug.
- Það er eitthvað að kaffínu hjá
ykkur. Ég fæ í magann af því.
- Ertu viss um að það sé kaffið?
- Það getur ckki verið annað. Ég
hef ekki lifað á öðru í fjórar vikur.
Maðurinn var hjá augnlækni
hersins.
- Jæja, lestu á þetta spjald sem er
þama á veggnum, sagði læknirinn.
- Hvaða spjald??
- Nú, þetta þarna fyrir ofan
stólinn.
- Hvaða stól?
Það var ekki um ncitt að efast.
Maðurinn var úrskurðaður óhæfur
til herþjónustu. Þcgar hann kom
út frá augnlækninum, brá hann sér
í bíó þar ■ grenndinni. Þcgar Ijósin
voro kveikt í hléinu, sá maðurinn
sér til mikiliar skclfíngar, að í
næsta sæti sat augnlæknirinn.
Maðurinn lét þó á engu bera og
sagði sallarólega:
- Getið þér sagt mér hvort þessi
strætó fer niður í miðbæ?
Davið gamli koin til prestsins,
mjög vandræðalcgur og gat loks
stunið upp að hann þyrfti að biðja
hnnn um að skíra hjá sér.
- Þetta eru gleðifréttir. Ég óska
ykkur innilega til hamingju, sagði
prestur. -Hvað á baraið að heita?
- Tja, okkur Maríu minni datt í
hug að láta drenginn heita Hósí-
anna.
- Hvað er að heyra þetta? Hósí-
anna! Það gengur ekki. Það hefði
kannski veríð hægt ef stúlka hefði
átt í hlut, en sveinbarn...
- Ja, við María lásuin þetta nú í
sjálfri Ritningunni.
- í Ritningunni?
- Já, þar stendur skýrum stöfum
unt innreiðina í Jcrúsalem að fóik-
ið hafí hrópað: Hósíanna, þú son-
ur Davíðs.
Umsjón: Bragi V. Bergmann
Þrautir
1) Hvaða efni er maðurinn
með í glasinu?
EVTORIH.
2) Varðmaður á vakt horfir í
vestur. Þá kemur liðþjálfinn
og hrópar til hans:
„Til hægri snú.“
„Snúðu þér við.“
„Til vinstri snú.“
í hvaða átt horfir varðmað-
urinn eftir að hafa framfylgt
þessum skipunum?
7) Eftirtöldum orðum er raðað
upp eftir ákveðinni reglu:
PÍPAN
TRÚAR
JESÚS
TAKTS
UNGUR
Hvert eftirtalinna orða á að
koma næst samkvæmt regl-
unni?
OFLOF
VÖLVA
SÓSUR
ÚLFÚÐ
8) Eftirtöldum orðum er raðað
upp eftir ákveðinni reglu:
KREPPT
SLANGA
ILMAÐI
Hvert eftirtalinna orða á að
koma næst samkvæmt regl-
unni?
BORAÐI
FYLKIÐ
AUSUNA
LANGAR
3) Tveir arabar setjast niður f
eyðimörkinni til þess að
hvílast og borða nesti. Ann-
ar þeirra átti 5 kexkökur en
hinn átti 7. En áður en þeir
byrjuðu að borða kom
ókunnur maður á úlfalda til
þeirra. Hann settist hjá þeim
og þeir deildu með honum
matnum. Þegar maðurinn
fór gaf hann þeim 12 gull-
peninga að launum fyrir ör-
Iætið.
Annar arabinn vildi skipta
peningunum þannig á milli
þeirra að sá sem hafði átt 7
kexkökur fengi 7 gullpen-
inga en hinn fengi 5. Er það
rökrétt leið til að skipta pen-
ingunum? Ef svo er ekki,
hvað átti þá hvor um sig að
fá marga gullpeninga?
4) Jón reisti sér hús. Það var
ósköp venjulegt í alla staði,
með tveiinur gluggum á
hverri hlið, alls átta gluggar.
En hið óvenjulega var, að
ailir gluggarnir snéru í
suður. Hvernig getur staðið
á því?
5) Ef það tekur 5 menn 6 daga
að grafa 7 holur, hversu
lengi er þá einn maður að
grafa hálfa holu?
6) Endurraðaðu stöfunum 13
hér að neðan þannig að þeir
myndi aðeins eitt orð.
ONIÐSETEÐRITA.
9) Eftirtöldum orðum er raðað
upp eftir ákveðinni reglu:
MAÐUR
AÐILA
RÓFUR
ÓVÆRA
HÓTEL
ÁRANA
Hvert eftirtalinna orða á að
koma næst samkvæmt regl-
unni?
DÓMUR
ÓMYND
HEFLA
DEYÐA
10) Um miðnætti á sunnudegi er
úrhellisrigning. Páll lítur út
um gluggann og staðhæfir að
eftir 72 klukkustundir muni
ekki verða sólskin. Á hverju
byggir hann slíka langtíma-
11) Hesturinn og asninn rétt sil-
uðust áfram, enda báru báðir
þunga byrði. Asninn kveink-
aði sér og þá sagði hesturinn:
„Hvað ert þú að kvarta? Ef
þú létir mig hafa einn böggul
mundi ég bera helmingi fleiri
böggla en þú. Og ef ég léti
þig fá einn böggul, mundum
við hafa jafn marga.“
Hversu marga böggla bar
hvor um sig?
' trr- ^ — — -O)
13) Með því að færa eina eld-
spýtu til er hægt að mynda
ferhyrning. Hvernig??
14) Hér fyrir neðan er skúffa,
búin til úr fjórum eldspýtum.
Utan við skúffuna er pening-
ur. Getur þú látið peninginn
vera í skúffunni með því að
færa til tvær eldspýtur?
Sjá lausnir
á bis. 27