Dagur - 20.12.1985, Side 13

Dagur - 20.12.1985, Side 13
-bækuL 20. desember 1985 - DAGUR - 13 Fimm á hættuslóðum eftir Enid Blyton Iðunn gaf á sínum tíma út 18 bækur í þessum flokki og nú kemur út nítj- ánda bókin sem aldrei hefur birst á íslensku áður. Þessi spennandi og ævintýralega saga er algerlega sjálfstæð og sögu- hetjurnar þær sömu og í fyrri bókum, þau Júlli, Jonni, Anna, Georgína og hundurinn Tommi. Jólin nálgast og félagarnir fimm leggja af stað í skíðaferðalag, glaðir og áhyggjulausir. En jólafríið fer á annan veg en þeir ætluðu því alls staðar verða ævintýrin á vegi þeirra. Krakkarnir finna jarðgöng sem liggja að gömlum turni og þar er greinilega eitthvað dularfullt á seyði; að minnsta kosti eru ókunnir ekki velkomnir því umhverfis turn- inn er rafmagnsgirðing og grimmur varðhundur gætir dyranna. En félagarnir fimm hafa áður komist í hann krappann og eru stað- ráðnir í að komast að leyndardóm- um gamla turnsins. Höfundinn, Enid Blyton, þarf vart að kynna en hún hefur með Ævintýrabókunum, Dularfullu bókunum og bókunum um félagana fimm sýnt að hún kann flestum bet- ur að skrifa bækur sem börn kunna að meta. Kvikmyndir hafa verið gerðar eftir mörgum bóka hennar og eftir Ævintýrabókunum verið gerð útvarpsleikrit sem flutt hafa verið í Ríkisútvarpinu. Iðunn gefur út. Álfheiður Kjart- ansdóttir þýddi. Bækurnar eru prentaðar í Odda hf. og kápa er hönnuð á Auglýsingastofunni Octavo. Frank fífldjarfur frétta- maður Bækurnar eru eftir franskan höfund Jacques Martin Ut eru komnar hjá Iðunni tvær fyrstu bækurnar í nýjum flokki teiknimyndasagna. Hér eru á ferðinni ósviknar spennubækur fyrir unglinga „á öllum aldri“. Áðalsöguhetjan heitir Frank Fanndal, blaðamaður og einka- spæjari. Frank hefur einstakt lag á að koma sér í lífsháska og er oft ekki nema hársbreidd frá dauð- anum þegar hann á í höggi við hvers kyns lögbrjóta. Önnur bókin nefnist Úlfagren- ið. Dularfull og óhugnapleg skemmdarverk eru framin í fjallaþorpi í Ölpunum. Skammt þar frá er verið að reisa stór- virkjun og tengist bygging hennar þessum atburðum. Frank er feng- inn til að upplýsa málið, en þó er svo að sjá sem einhver vilji hann feigan frá upphafi! Hin bókin heitir Við hlið vítis. í henni lenda Frank og vinur hans, Nonni, fyrir tilviljun í óskemmtilegum lífsháska. Til- raunir með gereyðingarvopn fara úr böndunum, líf • á jörðinni hangir á bláþræði og engu er lík- ara en djöfladýrkun og svarti- galdur frá miðöldum ráði atburðarásinni. Kölski skyldi þó aldrei vera til? Bækurnar eru eftir franskan höfund, Jacques Martin. Jón Gunnarsson íslenskaði. Bækurn- ar eru prentaðar í Belgíu. Á bláþræði eftir Gísia Þór Gunnarsson Komin er út hjá Iðunni skáldsagan Á bláþræði eftir Gísla Þór Gunnars- son. Þetta er önnur bók höfundar. Fyrsta bók hans, „Kærleiksblómið" kom út árið 1981. Um efni þessarar nýju bókar segir m.a. á kápubaki: „Pétur er áttavillt- ur menntaskólanemi sem aldrei hef- ur risið undir kröfum foreldra sinna. Skyndilega og óvænt verður hann húseigandi. Hann ákveður að lifa sínu eigin lífi óháður fjölskyldunni. Á fjörur hans rekur brátt önnur ungmenni með svipaðan bakgrunn og þarna verður eins konar sambýli. Sambúðin gengur þó skrykkjótt enda söfnuðurinn sundurleitur: Hommi, eiturlyfjaneytandi, einstæð móðir og landflótta ítalskur yógi. Tilfinningar Péturs sveiflast milli austurlenskrar dulspeki og stúlk- unnar sem hann elskar og sem niðurlægir hann í sífellu. Þetta er áhugaverð og skemmtileg skáldsaga um ungt fólk í háska; ungt fólk í leit að sjálfu sér.“ Höfundurinn Gísli Þór Gunnars- son er fæddur árið 1958. Að loknu stúdentsprófi hefur hann dvalið í hinum ýmsu heimshornum um lengri eða skemmri tíma, á Ítalíu, Grikklandi, ísrael, Egyptalandi, Indlandi og Bandaríkjunum. Bókin er prentuð í Odda hf. Auglýsingastofan Octavo hannaði kápu. Leyndardómar fortíðarinnar - unglingabók eftir verðlaunahöfund Komin er út ný bók eftir Anke de Vries en hann skrifaði bókina Leyndardómar gistihússins sem seldist upp á örskömmum tíma. Sú bók var sæmd viðurkenningu dóm- nefndar um Evrópsku unglinga- bókaverðlaunin. Þessi nýja bók nefnist Leyndardómar fortfðarinnar og fjallar um Markús sem er átján ára. Hann tekur að sér að gera upp gamalt hús í Frakklandi sem staðið hefur autt árum saman. En hann verður þess brátt áskynja að í hús- inu hafa gerst dularfullir atburðir og þegar hann reynir að grafast fyrir um þá, verður fátt um svör. íbúar þorpsins vita meira en þeir vilja láta uppi og þeir bregðast illa við spurn- ingum Markúsar. Það eina sem hann fær upp úr þeim er að óráðlegt sé að dveljast í húsinu að næturþeli. Auk þess á Markús í baráttu við sjálfan sig. Sárar endurminningar úr fortíðinni leita á hann og valda hon- um alvarlegum kvíðaköstum. Það er ekki fyrr en hann kynnist Júlíettu að hann getur loks deilt leyndarmáli sínu með öðrum og með hennar hjálp tekst honum að leggja fortíð- ina að baki. Anke de Vries er hollenskur höf- undur sem hefur unnið sér mikinn orðstír fyrir barna- og unglingabæk- ur sínar sem þýddar hafa verið á mörg tungumál. Álfheiður Kjartansdóttir þýddi. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Bókin er prentuð í Hólum hf. Njósnir á hafinu -eftir Alistair MacLean „Hljóðlaust og átakalaust og án við- vörunar, rétt eins og þegar raf- straumurinn fer af stórborg, slokkn uðu Ijósin um borð í San Andrea klukkustund fyrir dögun.“ Þannij hefst hin nýja bók spennuhöfundar ins Alistair MacLean - söluhæst: þýdda höfund á íslandi samkvæm niðurstöðum Hagvangs. Um efr bókarinnar segir enn fremur: „Ei hér var ekki um venjulegt rafmagns leysi að ræða. Einhver um borð e staðráðinn í að vinna skemmdar verk. Skipstjórinn og fyrsti stýri maður særast alvarlega i óvinaárás Archie McKinnon bátsmaður verð ur að taka við stjórninni. Hann vei að um borð er óvinveittur aðili. Ein hver úr áhöfninni hefur svikist a' þeim og þessi skemmdarverkamað ur hefur í fórum sínum miðunartæk sem beinir þeim í hendur óvinanna. Og svo er áttavitinn eyðilagð- ur . . .“ í þessari nýju bók sinni, Njósnir á hafinu, er Alistair MacLean aftur kominn til sjós og vekur minningar um HMS Ódysseif, fyrstu skáldsögu sína. Bækur Alistair MacLean hafa um árabil verið söluhæstu spennu- bækur á íslandi. Þær eru þýddar á fjölmörg tungumál og flestar þeirra hafa verið kvikmyndaðar. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Gunnar Gunnarsson þýddi. Oddi hf. prentaði. Kápa er hönnuð á Auglýsingastofunni Octavo. Olíubylgjan blakka eftir Hammond Innes Nítjánda bók spennuhöfundarins Hammond Innes á íslensku nefnist Olíubylgjan blakka. Um efni bók- arinnar segir m.a. í kynningu for- lagsins: „Hver var maðurinn með mörgu nöfnin sem fór huldu höfði og hafði ótal sjóslys á samviskunni? Var hann kaldrifjaður glæpamaður og morðingi eða ástríkur faðir sem lét nota sig til óhæfuverka? Trevor Rodin lét það sig engu skipta, hann vissi að þrjóturinn David Price hafði valdið dauða Karenar, er olíuskipið Jupiter strandaði og var á góðri leið með að eyðileggja hans eigið líf. Hann ásetur sér að finna Price, en sú leit kostar raunir og hættur. Vik- um saman lifir hann og hrærist í undirheimum Austurlanda, þar sem mannvíg og misferli eru daglegt brauð. Það er ekki fyrr en í þjón- ustu illmennisins og skipstjórans á Aurora B að Price kemur í leitirnar. en hin fagra dóttir Price er vís til hefnda og ruglar Trevor í ríminu. Æsispennandi bók eftir Hammond Innes sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Álf- heiður Kjartansdóttir þýddi. Oddi hf. prentaði. Kápa er hönnuð á Auglýsingastofunni Octavo. Islensk-norsk orðabók eftir Ivar Orgland og Frederik Raastad Út er komin hjá NSK-forlaget í Osló íslensk-norsk orðabók eftir þá Ivar Orgland og Fredrik Raastad. Bókin er hugsuð sem hagnýt orðabók fyrir skóla og daglega notkun. Hún hefur um 15000 uppflettiorð sem þýdd eru bæði á nýnorsku og bókmál. Fremst í bókinni eru leiðbeining- ar um íslenskar beygingar og framburð og í lok bókar listi yfir algengustu íslensk mannanöfn og staðanöfn. Höfundarnir segja m.a. í formála fyrir bókinni: „Fyrst og fremst var ætlun okk- ar að semja orðabók sem væri handhæg og auðveld að hafa með sér hvert sem vera skal. Við höf- um lagt áherslu á að taka upp öll algengustu orð daglegs máls á ís- landi. Auk hins daglega máls nær orðaforðinn einnig yfir algenga málnotkun á svið menningar og almennra greina. Ennfremur er hér nokkuð af nýyrðum úr tal- máli, tölvumáli, fjölmiðlum og seinni tíma bókmenntum. Al- menna bókafélagið hefur umboð og dreifingu orðabókarinnar á ís- landi. Hún er 267 bls. að stærð, pappírskilja. Ný teiknimynda- bók um Sval og Val Komin er út 20. bókin á íslensku um hina ráðsnjöllu og ævintýrafúsu blaðamenn, Sval og Val. Nefnist hún Vélmenni í veiðihug, og kornast hetjurnar hugrökku hér í hann krappann eins og í fyrri bókum. Höfundar þessara vinsælu bóka eru franskir og heita Tome og Janry. Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Bækurn- ar eru prentaðar í Belgíu en bókaút- gáfan Iðunn gefur út.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.